Morgunblaðið - 08.04.2020, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 08.04.2020, Qupperneq 39
Dökkhærð Sunneva Eir Einarsdóttir, einkaþjálfari og áhrifavaldur, setti litanæringu frá Davines í hárið á sér. Eins og sést á myndinni kemur það vel út og klæðir hana vel. Ekki hreyfa þig Þú getur ekki ferðast um húsið á meðan þú ert í plastsokkunum frá Baby Foot. Lestu bók eða hringdu í vin á meðan. Marta María mm@mbl.is Ef þú ert með ljósar strípur í hárinu sem eru farnar að vaxa úr mæli ég ekki með því að þú aflitir á þér rótina. Hárgreiðslufólk varar við slíkum aðgerðum og er best fyrir alla að þeim fyrirmælum sé hlýtt. Það er ekki að ástæðulausu að varað sé við þessu því hárgreiðslufólk hefur ýmsa fjöruna sopið. Eftir að hafa séð alls- konar útgáfur af hryllilegum heima- litunum veit fagfólk í hárgreiðslu- heiminum hvað það syngur. Þótt ég hlýði Víði þá er ég samt alls ekki sammála því að fólk verði bara að vera með ljótt hár í þessu samkomu- banni. Það að hugsa vel um hárið, húðina og allt það ber vott um sjálfs- virðingu. Ég mæli með því að fólk haldi áfram að þrífa sig, þvo á sér hárið, setja á sig andlitskrem, serum og allt það. Ef þú vilt prófa þig áfram þá eru Alcemic-vörurnar frá Davines mjög góðar. Áhrifavaldurinn Sunneva Eir Einarsdóttir prófaði þessa litanær- ingu á dögunum með góðum árangri. Hárið varð karamellulitað og ansi hreint fínt og þannig losnaði hún við rótina. Alchemic-vörurnar eru hannaðar til þess að bæði hressa við og skerpa hárlitinn og þar með lengja endingu litarins eða til þess að breyta um lit tímabundið. Efnið hentar bæði í litað og ólitað hár. Alchemic-línan er 100% vegan og kemur sjampóið í sex mis- munandi litatónum og næringin í 11 mismunandi litatónum. Það að setja í sig litanæringu og litasjampó er frá- bær leið til að lífga aðeins upp á hárið á meðan fólk bíður eftir að komast á hárgreiðslustofu. Heima-háreyðing! Nú, svo eru það blessuð líkams- hárin sem vaxa eins og arfi þessa dagana. Ef þú ert vön að fara í vax og vilt ekki vera í náttúrulegum gam- mósíum þá eru nokkrar leiðir í boði. Þú getur náttúrlega rakað á þér lappirnar. Ekki stelast samt í rakvél eiginmannsins heldur keyptu þér þína eigin og sótthreinsaðu hana á milli aðgerða. Ef þú vilt ekki raka á þér lappirnar á er gamla góða háreyðingarkremið frá Veet alltaf klassískt. Þú berð það á þig, á fótleggi og undir hendur og bíður í þrjár mínútur eftir að efnið virki svo þú getir skaf- ið hárin í burtu. Þegar hárin eru farin burt er nauðsynlegt að fara í sturtu og skrúbba kroppinn hátt og lágt. Harðir hælar! Þið ykkar sem eruð vön að fara á snyrtistofu eruð kannski ekkert sérlega góð í að skrapa siggið af hælunum en þið þurf- ið ekki að örvænta. Baby Foot Easy Pack kemur til bjargar á tímum sem þessum. Um er að ræða djúpvirka fótameðferð sem losar þig við dauðar húð- frumur á einfaldan og árang- ursríkan hátt. Pakkinn inn- heldur sokka sem þú klæðir þig í eftir að hafa þvegið fæt- urna. Þú ert í sokkunum í klukkustund og þværð þér svo aftur með sápu og vatni. Eftir 2-7 daga byrja dauðu húðfrumurnar að flagna af á náttúrulegan hátt og fæt- urnir á þér verða mjúkir eins og á litlu barni. Baby Foot hefur verið þróað þann- ig að blandan ræðst á dauðar húð- frumur sem valda okkur óþægindum. Þökk sé 17 náttúrulegum kjörnum fjarlægir Baby Foot ekki bara dauðar húðfrumur, heldur nærir fæturna og veitir þeim fallegri áferð. Helstu innihaldsefni Baby Foot er ávaxtasýra (mjólkursýra, Glycolic sýra, eplasýra og sítrónusýra sem eru fengnar úr ávöxtum). Það eina sem þú þarft að passa er að hreyfa þig ekki neitt þenn- an klukkutíma sem þú ert í plast- sokkunum því það er eiginlega ekki hægt að ganga í þeim. Komdu þér rólega fyrir með hljóðbók eða haltu sauma- klúbb í tölvunni í gegnum Teams. Daginn eftir er svo ekki úr vegi að snyrta táneglurnar vel og lakka þær með Day- dream 735 frá Chanel eða Mirage 739. Hann er aðeins dekkri með bláum undirtón. Svo getur þú lakkað negl- urnar á höndunum líka ef þú ert í rosalegu stuði. Svona frískar þú upp á þig í samkomubanninu Fyrstu vikuna í samkomubanninu var fólk nokkuð „peppað“ og upplifði ævintýri við það að flytja vinnuna heim til sín. Sumum fannst mikil lífsgæði fólgin í því að geta unnið heima á sloppnum, geta hellt sér upp á sitt eigið kaffi og bakað kannski köku með sítrónu- glassúr í hádeginu. En eftir nokkrar vikur í heimavinnu þar sem jafnvel börn og makar eru líka heima þykknar upp. Hárið orðið úr sér gengið, fótleggirnir komnir í náttúrulegar gammósíur og siggið farið að gera vart við sig á hælunum. Háreyðingar- krem Þetta krem er vinur í raun í sam- komubanni og fæst til dæmis í Lyfju. Unsplash Náttúrulegar gammósíur Vaxa hárin eins og arfi á fótleggjunum? Unsplash Sniðugt Litasjampó og hárnæring frá Davines kemur í fjölmörgum litum. Toppaðu þig Þetta naglalakk er úr sumarlínu Chanel og fer ansi vel á tánöglum. Ljós- ari liturinn er númer 735 og dekkri í 739. Þetta virkar Plastokkarnir frá Baby Foot virka sérlega vel. Það er svo alger veisla þegar skinnið fer að skrælna af eftir viku eða svo. Þar að segja ef þér finnst gaman að plokka dauðar húðfrumur. MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 2020
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.