Morgunblaðið - 08.04.2020, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 08.04.2020, Blaðsíða 46
46 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 2020 Við Birgir Stein- grímur Hermanns- son ólumst upp í stórfjölskyldu. Inn- an hennar var farið með mál eftir óskráðum reglum, sem voru okkur strákunum jafnan hagfelldar. Við vorum í raun þrír. Stefán, sá elsti og ná- kvæmasti, en vingjarnlegur í nákvæmni sinni, lék sér ekki Birgir Steingrímur Hermannsson ✝ Birgir Stein-grímur Hermannsson fæddist 8. desem- ber 1940. Hann lést 21. mars 2020. Útförin fór fram í kyrrþey. með okkur Bibba. Ég var yngstur, talsvert uppátekt- arsamur og ekki laus við gorgeir. Það kom í hlut Bibba að koma í veg fyrir að ég lenti í vandræðum. Á það reyndi oft. Við vorum systrasynir, og fá ár milli okkar. Því fylgdumst við að, vorum saman í sveit á Staðarhóli, síðar á Hafsteinsstöðum og „sóttum sjó“ frá Grenivík, á skipi Stebba frá Miðgörðum. Ég gerði mér ekki grein fyrir því fyrr en löngu seinna, að hvar sem við vorum saman fylgdu mér vökul og áhyggjufull augu verndarans, sem ég leit raunar á sem bróður minn. Hann hafði hvort tveggja í sér, vin- gjarnleikann og sterka ábyrgðartilfinningu. Krókurinn beygðist snemma. Samkvæmt munnleg- um heimildum stórfjölskyld- unnar fannst Bibba skynsam- legt, þegar hann var á þriðja ári og ég vælandi hvítvoðung- ur, að mér yrði gefið ket, og lagði það til við móður sína. Bibbi var náttúrubarn. Hann sameinaði hæfileika úr báðum ættum. Í Skagafirði fann hann umsvifalaust það sem best var í hverjum hesti, og hestarnir áttuðu sig á því sem Bibbi hafði fundið. Þegar við smöluðum hlíðina, valdi ég mér reiðskjóta í krafti þess hvernig reiðskjóti Roy Rogers var á feldinn. Bibbi höndlaði besta hestinn, sem var ekki endilega sá glæsileg- asti. Hestarnir kenndu Bibba og hann kenndi mér. Á sjónum lagði Bibbi aldrei fyrir Stefán Stefánsson skip- stjóra spurningar sem lutu að sjómennsku. Hann fór hina leiðina, horfði, fylgdist með og ræktaði tilfinninguna fyrir öld- unni og fiskinum. Hann varð góður veiðimað- ur og sjómaður en ég sjóveik- ur. En við nutum báðir lífsins: jafnvel þegar maður skilar nánast öllu nema sálinni út fyrir borðstokkinn, er sjórinn óviðjafnanlegur. Þetta var á þeim árum þeg- ar Íslendingar lögðu stund á nýtni og sparsemi. Ég gekk því annaðhvort í fötum sem mamma hafði saumað eða þeim sem Bibbi hafði vaxið upp úr. Þau voru aldrei slitin. Bibbi sleit ekki fötum. Hann hreyfði sig erfiðislaust, með fágun sem fengin var frá báð- um, móður og föður. Það var fágun Fnjóskadals og Greni- víkur. Það sem gerir vel byggt fólk glæsilegt er einkum þegar það virðist ekki hafa hugmynd um hve vel það ber sig og glæsilega. Þannig íþróttamaður var Bibbi. Öruggur, áreiðanlegur, samstarfsfús og mikið prúð- menni í þessari makalausu íþrótt, sem knattspyrnan er, þar sem saman vefst einstak- lingsframtak og agi hópsins. Þegar hann lét af knatt- spyrnuiðkun, vöknuðu Greni- víkurgenin, þar sem ættmenn hans voru fyrir, allmiklir að vexti, veiðimenn og selaskytt- ur. Hann óx á alla kanta, en hélt samt líkamlegum styrk- leika og hraða. Síðasta áratuginn hittumst við æ sjaldnar. Við jarðarför eldri bróðurins, Stefáns fyrr- verandi borgarverkfræðings, fann ég aftur þennan granna og glæsilega frænda minn. Það höfðu runnið af honum ætt- arkílóin með aldrinum. En allt hitt var ósnortið. Hann gleymdi jafnan sjálfum sér, svo örlátur og upptekinn sem hann var við að greiða götu annarra. Nú þegar hann hefur kvatt, minnist ég stórfjölskyldunnar og umhyggjusemi þessa hlýja frænda míns. Það er gott að hafa átt slíkan að. Eiginkonu og ættingjum öll- um sendi ég samúðarkveðjur okkar hjóna. Tómas I. Olrich. ✝ Guðmundur Jó-hannesson fædd- ist í Helguhvammi á Vatnsnesi 4. júní 1934. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Hvammstanga 31. mars 2020. Foreldrar hans voru Jóhannes Guð- mundsson, f. 30. september 1904, d. 23. maí 1982, og Þorbjörg Marta Baldvinsdóttir, f. 10. nóvember 1897, d. 31. júlí 1980. Bræður Guðmundar voru Valdimar, f. 7. júní 1933, d. 26. maí 1997, sambýliskona Guðrún Bjarnadóttir. Eggert, f. 31. ágúst 1939, d. 15. júlí 2014, maki Auður Hauksdóttir. Uppeldissystir hans var Halldóra Kristinsdóttir, f. 9. janúar 1930, d. 31. janúar 2013, maki Ólafur Þórhallsson. Guðmundur giftist 29. desem- ber 1962 Helgu Magnúsdóttur frá Vigdísarstöðum. Börn þeirra eru: 1) Elín Kristín, f. 21. ágúst 1963, maki Ólafur Benediktsson, börn þeirra eru Guðmundur Bjarki, f. 1996, Ásgeir Ómar, f. 2002. og Elín Marta, f. 2002. 2) Þorbjörg Vigdís, f. 24. júlí 1966, sambýlis- maður hennar er Sigtryggur Sigur- valdason, dóttir þeirra er Jóhanna Helga, f. 1983. 3) Sigurður Magn- ús, f. 17. janúar 1973. maki María Inga Hjaltadóttir, börn þeirra eru Telma Rún, f. 2000, og Hjalti Freyr, f. 2004. Guðmundur ólst upp hjá for- eldrum sínum í Helguhvammi og átti þar heima alla ævi. Hann stundaði nám í farskóla sveit- arinnar eins og tíðkaðist í þá daga og hann var einnig einn vetur á Héraðsskólanum á Reykjum í Hrútafirði. Hans að- alstarf var bóndi og Guðmundur vann ýmis störf með búskapnum eins og t.d. á jarðýtum Búnaðar- sambands V-Hún. í mörg sumur og var í fjölda ára í sláturvinnu hjá kaupfélaginu og var einnig refaskytta í áratugi og fleira. Vegna aðstæðna í þjóðfélag- inu verða bara nánustu aðstand- endur viðstaddir. Hægt er að hafa samband við aðstandendur til að fá aðgang að streymi frá at- höfninni, eining verður útvarpað á FM 106.5 á Hvammstanga. Helguhvammur og Vatnsnes- fjallið var svæði Guðmundar alla tíð. Var bóndi. Bjó með sauðfé. Hross átti hann alla tíð. Var vel ríðandi. Helguhvammur er í fjallinu fyrir ofan Hvammstanga. Jörð- in er stór og mikið og gott beiti- land í fjallinu, þar sem féð gengur yfir sumarið. Góðir og öflugir reiðhestar koma að góð- um notum í smalamennsku á þannig landi. Guðmundur var gangnastjóri mörg haust í Vatnsnesfjalli. Réttardagurinn var hátíðis- dagur hjá honum. Ég keyrði Guðmund eitt sinn heim úr Hamarsrétt. Guðmundur var kátur enda ástæða til, lömbin komu væn af fjalli, göngur og réttarstörf gengu vel og fleygur við höndina. Við tókum góðan tíma í heimferðina, víða stoppað og spjallað við sveitungana. Hann sagði að ekkert lægi á heim, réttardagurinn væri bara einu sinni á ári. Eins og áður er getið var Helguhvammur og Vatnsnes- fjallið hans svæði. Var grenja- skytta í fjallinu í áratugi. Að loknum sauðburði oftast í byrj- un júní hófst grenjavinnslan. Oftar en ekki lá hann á greni einhvers staðar í fjallinu á af- mælisdaginn sinn 4. júní. Leið vel í bjartri sumarnóttinni í góðu veðri. En það var ekki alltaf blíðuveður þennan dag. Eitt sinn lágu Guðmundur og Gunnlaugur á Sauðá á greni í Bólinu og lágu í tjaldi sem kom sér vel er það skall á norð- austan blindhríð. Hituðu þeir sér ketilkaffi til hressingar. Ekki beint notalegur afmælis- dagur en eftirminnilegur alla tíð. Eitt sinn fórum við Guð- mundur á vélsleða upp á fjall, mikill snjór, afbragðs sleðafæri og gott veður. Fórum upp hjá Káraborginni síðan hjá Hnaus- unum, yfir Helguhvammsvötnin og stoppuðum svo austur í Grenjadal. „Hér undir er greni,“ sagði hann „og þarna fann ég eitt sinn kind seint að hausti“. Þetta var hans svæði, hér þekkti hann hverja þúfu og hvern stein. Eins og fyrr er getið þá fór Guðmundur ekki víða til vinnu. Var í sláturvinnu á hverju hausti lengi. Vann á jarðýtu hjá Búnaðarsambandi V-Hún. sem ungur maður. Fór hvort tveggja vel úr hendi. Ekki fannst mér hann vera mikill áhugamaður um vélar eða bíla. Átti að sjálf- sögðu hvort tveggja í gegnum árin. Fór vel með tæki og var farsæll ökumaður. Var í eðli sínu handlaginn, hnífar bitu alltaf vel hjá honum og var smiður góður. Guðmundur og Helga hættu búskap og létu búið í hendur Magga og Mæju sem héldu áfram því starfi sem þau höfðu unnið. Það gladdi Guðmund mikið að sjá það gerast. Helga og hann fluttu þá á efri hæðina, þau rýmdu til fyrir unga fólkinu, líkt og foreldrar hans gerðu á sínum tíma. Þar áttu þau góð ár. Guðmundur fór á Sjúkrahús- ið á Hvammstanga nú í byrjun árs. Aldurinn var farinn að segja til sín. Leið ágætlega og vel um hann hugsað en hann langaði samt alltaf heim í Helguhvamm. Honum líkaði illa að fá ekki heimsóknir síðustu vikurnar en aðstæður í þjóðfélaginu buðu ekki upp á það … því miður. Guðmundur bauð starfsfólki góðan dag að morgni 31. mars og sagðist ætla að hvíla sig að- eins lengur. Blessuð sé minning Guð- mundar Jóhannessonar frá Helguhvammi. Meira: mbl.is/andlat. Ólafur Benediktsson. Elsku afi. Ég sit hér og skrifa minning- arorð um þig og finnst enn svo- lítið óraunverulegt að þú sért ekki lengur hér með okkur þó svo að ég viti það að nú ert þú sáttur og kominn á betri stað. Þetta eru búnir að vera erfiðir og skrítnir tímar síðustu vikur þar sem það var orðinn fastur liður að kíkja í heimsókn til þín niður á sjúkrahús og knúsa þig og spjalla um daginn og veginn en síðan það var sett heimsókn- arbann á sjúkrahúsið þá breytt- ist allt og þú skildir ekki af hverju við gátum ekki komið lengur í heimsókn til þín og var það erfitt fyrir okkur öll. Við brölluðum ýmislegt á þessum tæplega 37 árum sem ég var svo heppin að hafa þig í mínu lífi og seinustu árin sem ég hjálpaði þér að sjá um allt sem tengdist hrossunum þínum sem þú varst alltaf svo stoltur af og hafðir gaman af að spjalla um. Norður og suður, austur og vestur allt sem ég á hann manna var bestur hvað sem að gerist og hvernig sem fer innst inn í hjarta mér ætíð hann er. Stjörnur og tungl, sólin svo skær hverfur á braut svo fögur og tær. Þurkkað́upp hafið og því sem þú sást mundu svo orð mín: „að eilífu ást“. Þín verður sárt saknað en ég veit að þér er ætlað stærra hlutverk annars staðar. Elsku afi, ég skal passa upp á ömmu fyrir þig. Þín Jóhanna Helga. Guðmundur Jóhannesson Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Hjartans þakkir fyrir alla samúð og hlýjar kveðjur vegna andláts og útfarar okkar ástkæra HARÐAR ÞÓRS HJÁLMARSSONAR, Siglufirði. Þakka einnig af alhug alla veitta aðstoð. Fyrir hönd systra hans, fjölskyldna þeirra, tengdafólks og vina. Ásdís Eva Baldvinsdóttir Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug og fallegar kveðjur vegna andláts og útfarar okkar ástkæra KRISTJÁNS FRIÐRIKS JÚLÍUSSONAR kranabílstjóra Brekkugötu 38. Starfsfólki lyfjadeildar SAK, Gunnari Þór og Heimahlynningu færum við sérstakar þakkir fyrir einstaka umönnun og ómetanlega hjálp síðustu ár. Aldís Ragna Hannesdóttir Júlía Björk Kristjánsdóttir Eggert Þór Ingólfsson Eva Laufey, Jón Októ, Aldís Hulda og Kristín Edda Ástkær sonur minn, bróðir, mágur og frændi, SIGMAR RAFNSSON, Miðbraut 4, Seltjarnarnesi, lést á gjörgæsludeild Landspítalans mánudaginn 23. mars. Minningarstund hefur farið fram í kyrrþey. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Slysavarnafélagið Landsbjörg. Pálína Sigurðardóttir Páll Rafnsson Moumtaze Alibaye Rafn Rafnsson Hólmfríður Helga Helgadóttir Vigdís Rafnsdóttir Guðni Georgsson Hugrún Rafnsdóttir Björn Westergren Árný K. Árnadóttir systkinabörn og ástvinir Ástkær eiginmaður minn og besti vinur, faðir, tengdafaðir og afi, MAGNÚS AXELSSON fasteignasali, Strikinu 8, Garðabæ, lést miðvikudaginn 1. apríl á heimili sínu eftir stutt veikindi. Útför fer fram í kyrrþey, minningarstund verður 15. september. Aðstandendur þakka auðsýnda samúð. Sérstakar þakkir fær HERA líknarþjónusta. Auður Guðmundsdóttir Steinar Örn Elín Clausen Ingi Makan Heiða Kristín Magnús Anton Guðrún Vala Hildur Karen Númi Þorkell Aðalsteinn Ragnar Elín Þórhallsdóttir og barnabörn Samkomubann og óvenjulegar aðstæður í þjóðfélaginu hafa leitt til þess að útfarir eru nú með breyttu sniði. Morgunblaðið hefur brugðist við með því að rýmka reglur um birtingu á minningargreinum. Minningargreinasíður blaðsins standa opnar öllum þeim sem vilja minnast ástvina eða sýna aðstandendum samúð og samhug. Í ljósi aðstæðna hefur verið slakað á fyrri verklagsreglum hvað varðar útfarir í kyrrþey. Ekkert er því til fyrirstöðu að birta minningargreinar sama dag og útför einstaklings er gerð hvort sem hún er háð fjöldatakmörkunum eða gerð í kyrrþey. Starfsfólk greinadeildar Morgunblaðsins er boðið og búið að aðstoða þá sem hafa spurningar um ritun minningar- greina eða hvernig skuli senda þær til blaðsins. Ekkert gjald er tekið fyrir birtingu minningagreina. Þær eru einnig birtar á www.mbl.is/minningar. Birting minningargreina
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.