Morgunblaðið - 08.04.2020, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 08.04.2020, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 2020 51 Lausar stöður grunnskóla- kennara í Stóru-Vogaskóla Stóru-Vogaskóli óskar eftir að ráða grunnskóla- kennara í eftirfarandi stöður fyrir næsta skólaár: • Textíl • Sérkennslu • Smíði Stóru-Vogaskóli er 170 barna grunnskóli þar sem skólastarf er í senn metnaðarfullt og faglegt. Einkunnarorð skólans eru virðing, vinátta og velgengni sem endurspeglast í daglegu starfi í skólanum. Í skólanum er góður starfsandi og hefur skólinn að skipa öflugu og áhugasömu starfsfólki. Skólinn er staðsettur í einstöku umhverfi í nálægð við fjölbreytta náttúru. Stóru-Vogaskóli er Græn- fánaskóli. Menntunar- og hæfniskröfur: • Leyfisbréf til kennslu, skal fylgja umsókn • Kennslureynsla á því stigi sem sótt er um • Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður • Færni í samvinnu og teymisvinnu • Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum • Ábyrgð og stundvísi • Áhugi á að starfa með börnum Launakjör eru samkvæmt kjarasamning Kennara- sambands Íslands. Fyrirspurnir og umsóknir skal senda á póstfangið skoli@vogar.is fyrir 21. apríl 2020. Nánari upplýsingar veita Hálfdan Þorsteinsson skólastjóri og Hilmar Egill Sveinbjörnsson aðstoðarskólastjóri í síma 440 6250. Grunnskólakennarar Lausar eru til umsóknar kennarastöður við Reykja- hlíðarskóla í Mývatnssveit frá 1. ágúst 2020 Um er að ræða umsjónarkennslu á unglingastigi, stærðfræði, náttúrufræði og íþróttir. Nánari upplýsingar er að finna á www.skutustadahreppur.is og http://www.skutustadahreppur.is/skolinn Starfsstjórn Reykjalundar auglýsir laust til umsóknar starf forstjóra Reykjalundar. Leitað er að öflugum einstaklingi í krefjandi stjórnunar- og leiðtogastarf þar sem reynir á samskiptahæfni, frumkvæði og skipulögð vinnubrögð. Starfsstjórn ræður í starfið til fimm ára frá 1. júní 2020. Reykjalundur er heilbrigðisstofnun í eigu Sambands íslenskra berkla- og brjóstholssjúklinga (SÍBS) og vinnur samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu á Íslandi. Á Reykjalundi fer fram alhliða endurhæfing með það að markmiði að bæta lífsgæði, færni og sjálfsbjargargetu þeirra sem þangað leita. Um þjónustuna gildir þjónustusamningur milli Sjúkratrygginga Íslands og Reykjalundar. Þá annast stofnunin starfsnám í heilbrigðisgreinum og starfar í tengslum við háskóla á sviði kennslu heilbrigðisstétta og rannsókna í heilbrigðisvísindum. Hjá Reykjalundi starfa 200 starfsmenn. Hlutverk og ábyrgðasvið Hlutverk forstjóra er að hafa forystu um að Reykjalundur sé í fararbroddi á sviði endurhæfingar á landsvísu. Forstjóri ber ábyrgð á að Reykjalundur starfi í samræmi við lög og stjórnvaldsfyrirmæli. Forstjóri ber ábyrgð á starfsemi og þjónustu stofnunarinnar, að rekstrarútgjöld og rekstrarafkoma sé í samræmi við þjónustusamning og að fjármunir séu nýttir á árangursríkan hátt. Forstjóri starfar í samræmi við erindisbréf sem stjórn setur honum. Undir forstjóra heyra 4 framkvæmdastjórar sem mynda framkvæmdastjórn ásamt mannauðsstjóra sem hefur seturétt á framkvæmdastjórnarfundum. Menntunar- og hæfniskröfur • Háskólamenntun á heilbrigðissviði, framhaldsmenntun er kostur. • Leiðtogahæfileikar og farsæl reynsla af stjórnun og rekstri. • Þekking og reynsla af stjórnun í heilbrigðisþjónustu er kostur. • Þekking og reynsla af mannauðsmálum. • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum. • Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum. • Þekking á opinberri stjórnsýslu æskileg. Hæfni umsækjenda verður metin í samræmi við menntunar- og hæfniskröfur. Starfsstjórn sem heilbrigðisráðherra skipaði 12.11.2019 ber ábyrgð á ráðningu nýs forstjóra skv. erindisbréfi. Viðtöl verða við þá einstaklinga sem uppfylla kröfur að mati starfsstjórnar. Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu. Nánari upplýsingar um starfið veitir Anna Stefánsdóttir starfandi forstjóri Reykjalundar (anna@reykjalundur.is). Umsóknir skulu berast Guðbjörgu Gunnarsdóttur mannauðsstjóra, Reykjalundur, 270 Mosfellsbær eða á netfangið: gudbjorg@reykjalundur.is eigi síðar en 25. apríl nk. Öllum umsóknum verður svarað þegar starfsstjórn hefur tekið ákvörðun um ráðningu í starfið. Forstjóri Reykjalundar endurhæfingarmiðstöðvar SÍBS Starfsmaður á skrifstofu fjármála og rekstrar Mennta- og menningarmála- ráðuneytið auglýsir eftir starfsmanni á skrifstofu fjármála og rekstrar. Nánari upplýsingar er að finna á vef ráðuneytisins mrn.is Umsóknarfrestur er til og með 20. apríl. 2020 Stjórnarráð Íslands Mennta- og menningarráðuneytið Smáauglýsingar Bækur BOKIN.IS 14.400 sérvaldar bækur til sölu á bokin.is: Þjóðsögur og þjóðlegur fróðleikur. Mikið úrval ljóðabóka eftir okkar bestu höfunda, mikið úrval ljóðabóka eftir konur. Héraðssaga og þjóðleg fræði, skoðið úrval bóka á bokin.is Skáldsögur, lögfræði, norræn fræði, handbækur, listaverka- bækur, erlend saga, hagfræði, dulræn málefni, matur og vín, ævisögur erlendra manna, stjórnmál, trúmál, heimskauta- ferðir og fjarlæg lönd. Ferðabækur. Erlendar bækur. Viljum sérstaklega minná ört vaxandi netbókabúð okkar bokin.is þú getur valið úr yfir 30 efnisflokkum bóka og verslar bækur eftir innskráningu. Við afgreiðum og sendum pantanir með Íslandspósti. BÓKIN ehf - Antikvariat. Klapparstigur 25-27. Opið 12-18 virka daga. Laugardaga 13-17. sími 5521710 - 8599090 Netfang: bokin@simnet.is bokin.is er alltaf opinn Bækur til sölu Spegillinn 1.-60. árgangur, einn- ig stakir árgangar á sama tíma- bili, Íslenkt fornbréfasafn ób. 2,3,4,5,12,13,14, Drepa Drepa eftir Einar og Dag, 130 bindi Stjórnartíðindi, gott band, 1885- 2000, Skarðsbók, Árbækur Espo- líns 1-12, 1821, Gestur Vestfirð- ingur. Uppl. í síma 898 9475 Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Iðnaðarmenn Málarar. Tökum að okkur alla almenna málningarvinnu, mjög sangjarnir í verðum. Upplýsingar í síma 782-4540 eða loggildurmalari@gmail.com Bílar Nýr Ford Transit 350 Trend L3H3 Sjálskiptur. 2 x hliðarhurð. Klæddur að innan. Dráttarkrókur. 1.276.400,- undir listaverði. Okkar verð 4.790.000 án vsk. www.sparibill.is Hátúni 6 A – sími 577 3344. Opið kl. 12–18 virka daga. Húsviðhald Tek að mér ýmiskonar húsaviðhald og allskonar verkefni Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Vantar þig starfsfólk? hagvangur.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.