Morgunblaðið - 25.04.2020, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2020
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Gunnar Pálsson,
sendiherra Ís-
lands í Brussel,
hefur verið kall-
aður heim, sam-
kvæmt heim-
ildum Morgun-
blaðsins. Gunnar
gagnrýni harð-
lega drög utan-
ríkisráðherra
um breytingar á skipun sendi-
herra.
Umræður munu hafa verið um
að Gunnar færðist í aðra sendi-
herrastöðu, en talið var erfitt að
flytja vegna kórónuveirufaraldurs-
ins. Strax eftir að Gunnar sendi
inn afar gagnrýna umsögn um
frumvarpsdrögin í samráðsgátt
stjórnvalda var tilkynnt að hann
ætti að flytja heim fyrir lok júní,
að því er heimildir blaðsins herma,
en engar skýringar voru gefnar á
því að svo skammur tími skyldi
vera gefinn og að þetta þyrfti að
gera við núverandi aðstæður.
Gunnar sagðist ekki geta tjáð
sig um málið að svo stöddu, þegar
hann var spurður um málið. Hann
hefur starfað í utanríkisþjónust-
unni frá árinu 1984 og verið sendi-
herra í 30 ár.
Sendiherra
fluttur heim
frá Brussel
Gagnrýndi frum-
varp ráðherrans
Gunnar Pálsson
Ýmsar kúnstir þarf til að halda listaverkinu Þúfu
á Granda fínu. Guðmundur Hrafn Arngrímsson
grjóthleðslumeistari notar meðal annars létta raf-
magnssláttuvél til að slá hliðarnar. Hann slær
snöggt og ber fiskimjöl á grasið og svo þarf einnig
að gera við göt sem myndast hafa í vetrarveðr-
unum. Þá þarf að halda stígnum upp Þúfuna í lagi.
Guðmundur segir að mikil umferð sé um Þúfuna.
Fólk fari greinilega þangað til að viðra sig.
Morgunblaðið/Eggert
Lóðréttur sláttur á Þúfunni á Granda
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Öllum þessum venjulegu leiðum hefur verið
riðlað og það eru miklar tafir á hefðbundn-
um póstsendingum hvert sem litið er,“ segir
Birgir Jónsson, forstjóri Íslandspósts.
Ástandið sem skapast hefur í samgöngum
í heiminum vegna kórónuveirufaraldursins
hefur valdið miklum seinkunum á póstsend-
ingum. Morgunblaðið fékk ábendingu frá
lesanda sem hafði beðið eftir bréfi frá
Bandaríkjunum í fimm vikur. Ástæðan er sú
að bréfpóstur er ekki lengur fluttur með
flugi frá Bandaríkjunum til Evrópu heldur
með skipum. Og þá á eftir að koma póst-
inum til Íslands.
„Við erum komin 50 ár aftur í tímann með
sjópóstinn. Það er búið að kippa stoðunum
undan þessari þjónustu. Við höfum lengi
fengið póst með flugi frá New York en nú er
kannski flogið tvisvar í viku til Boston. Við
erum alltaf að reyna að hafa samband við
póststjórnir í öðrum löndum en þetta eru
oftast stór batterí og svifasein. Það er erfitt
fyrir þær að breyta ferlum og það gerist
ekki hratt,“ segir Birgir.
Svipaða sögu er að segja með sendingar
frá Evrópu að sögn forstjórans. „Mikið af
sendingum fer með flugi í gegnum Liège í
Belgíu en því færri millipunktar sem send-
ingar fara í gegnum, þeim mun betur
gengur.“
Ótrúlegt magn sem fólk hefur pantað
Birgir segir að fleiri hlutar póstþjónust-
unnar líði fyrir það ástand sem hefur skap-
ast í samgöngum í heiminum. „Þetta al-
þjóðlega póstsamstarf er ekki nógu kvikt til
að takast á við svo örar breytingar. Við
vitum til dæmis að það eru tugir tonna sem
bíða í kerfinu eftir að komast frá Kína til Ís-
lands. Þetta eru sendingar frá netverslunum
og þær munu einhvern tímann skila sér. Við
bíðum á hverjum morgni eftir því að sjá
hvað kemur. Nú er eitthvað farið að koma
með Norrænu og eitthvað kemur með flugi.
Það er ótrúlegt magn sem fólk hefur pantað
sér.“
Ástandið muni á endanum lagast en það
verði varla fyrr en hefðbundnar samgöngur
komast aftur í gang. „Það er vissulega sorg-
leg staðreynd en það er enginn úti í heimi
að missa svefn yfir því að póstur berist ekki
til Íslands þegar flutningar eru í lamasessi.“
Birgir segir að þrátt fyrir að sendingar að
utan hafi tafist vanti ekki verkin hjá Póst-
inum. „Á móti kemur að innlend netverslun
hefur sprungið út og það hefur verið ofboðs-
lega mikið að gera hjá okkur við það.“
Morgunblaðið/Eggert
Á ferðinni Póstmenn bera út færri sendingar
að utan en innlend netverslun hefur aukist.
Margra vikna bið eftir sendingum
Póstur frá Bandaríkjunum fluttur með skipum en ekki flugvélum Tugir tonna af pósti bíða í Kína
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Ungur piltur var í gærkvöldi úr-
skurðaður í gæsluvarðhald, en alls
voru fjórir handteknir í fyrradag
eftir tvær lífshættulegar líkams-
árásir.
Málin tvö eru ótengd, en pilturinn
var handtekinn í Breiðholtinu um
miðjan daginn, þar sem sautján ára
piltur var stunginn tvisvar. Hann er
nú á sjúkrahúsi, en mun vera á bata-
vegi. Hitt málið kom upp í Kópavogi
upp undir miðnætti í fyrrinótt og
voru þrír menn handteknir í kjöl-
farið. Báðar líkamsárásirnar voru
sagðar lífshættulegar og liggur sá
sem varð fyrir árásinni í Kópavogi,
karlmaður á fimmtugsaldri, á spítala
og er sagður í lífshættu.
Karl Steinar Valsson, yfir-
lögregluþjónn hjá miðlægri rann-
sóknardeild lögreglunnar á höfuð-
borgarsvæðinu, sagði í samtali við
mbl.is í gærkvöldi að líklega yrði
farið fram á gæsluvarðhald yfir ein-
hverjum af mönnunum þremur.
Óvenju mörg alvarleg brot
Karl Steinar sagði fulla ástæðu til
þess að hafa áhyggjur af þróun of-
beldisbrota, en vísbendingar eru um
að þeim hafi fjölgað á nokkrum
sviðum.
Þá hafa 28 rán verið á borði lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu
það sem af er ári en á ársgrundvelli
eru að jafnaði um 50 rán rannsökuð
hjá embættinu.
„Frá áramótum höfum við séð
óvenju mörg alvarleg brot. Það eru
vísbendingar finnst okkur um fjölg-
un ofbeldisbrota á nokkrum sviðum.
Heimilisofbeldisbrotum hefur heldur
fjölgað, ofbeldisbrotum sem tengjast
líkamsárásum og svo þessi tilvik sem
eru auðvitað mjög alvarleg. Við er-
um nú þegar komin með eitt alvar-
legt mál inn á okkar borð og síðan
annað á Suðurnesjum svo það er full
ástæða til þess að hafa áhyggjur af
þessari þróun ef hún heldur áfram,“
sagði Karl Steinar, sem sagðist að-
spurður ekki hafa forsendur til að
meta hvort þróunin tengdist kórónu-
veirufaraldrinum að einhverju leyti.
Einn í gæsluvarðhaldi
Tvær alvarlegar líkamsárásir til rannsóknar á höfuðborg-
arsvæðinu Full ástæða til að hafa áhyggjur af þróun brota