Morgunblaðið - 25.04.2020, Qupperneq 16
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Eigendur félagsins Á5 ehf. leita nú að
nýjum leigutaka undir hótelrekstur í
Ármúla 5 en City Park Hótel var með
rekstur í húsnæðinu sem er um 1.630
fermetrar.
Samkvæmt fasteignaskrá hljóðar
fasteignamat eignarhlutans upp á 449
milljónir. Með hliðsjón af stærð hótels-
ins er markaðsverð líklega töluvert
hærra í góðu árferði í ferðaþjónustu.
Sex fjárfestar eiga félagið Á5 ehf.
Samkvæmt upplýsingum frá for-
svarsmönnum félagsins keypti það
húsnæðið árið 2015. Hugmyndin hefði
verið að breyta húsnæðinu í hótel og
leigja út reksturinn.
Húsnæðið var tekið í gegn og svo
var opnað hótel um mitt ár 2016.
Var frá upphafi í húsinu
City Park Hótel var frá upphafi með
rekstur í húsnæðinu, eða þar til leigu-
samningi var rift í desember 2019
vegna vanefnda leigutaka.
Forsvarsmenn Á5 ehf. segja rekstur
hótelsins hafa gengið vel fram að því.
Nýtingarhlutfall hafi verið hátt og gott
verð fengist fyrir gistinguna.
Þannig hafi nýtingin verið nærri
100% frá fyrsta degi. Ástæðan var mik-
il spenna á markaðnum. Hótelið var
nærri fullt af yfirbókunum frá nær-
liggjandi hótelum sem báðu City Park
Á City Park Hótel voru 57 herbergi.
Fyrrverandi leigutaki innréttaði á
leigutímanum um 27 herbergi til vest-
urs með endurbyggingu húsnæðis í
Hallarmúla en þar var áður m.a.
skemmtistaðurinn Hollywood.
Forsvarsmenn Á5 ehf. segja að-
spurðir að rekstraraðili hótelsins hafi
farið út í þá framkvæmd á eigin
ábyrgð. Hún sé ótengd eigendum fé-
lagsins Á5 ehf.
Hættir með Marriott-verkefni
Fram hefur komið í Morgunblaðinu
að rekstraraðili City Park Hótels
áformaði jafnframt rekstur Marriott
Courtyard-hótels við Aðaltorg,
skammt frá Keflavíkurflugvelli. Morg-
unblaðið fékk staðfest að hann hefði
ekki lengur aðkomu að því verkefni.
Auglýsa hótelið til leigu
Morgunblaðið/Baldur
City Park Hótel Eigendur húsnæðisins hafa sagt upp leigusamningi.
City Park Hótel hefur hætt starfsemi í Ármúla Þegar hótelið var opnað var
umframeftirspurn Fékk bókanir frá nálægum hótelum sem voru yfirbókuð
Múlarnir breytast
» Þegar City Park Hótel var
opnað var umframeftirspurn
hjá hótelum í kring.
» Þar eru m.a. Nordica-hótelið
og Reykjavík Lights Hótelið,
sem er á vegum KEA.
» Áformað var að opna hótel í
Hallarmúla 2 og á Suðurlands-
braut 18, allt að 370 herbergi,
en hætt var við verkefnin.
Hótel um að taka við bókunum sem
þau réðu ekki við. Þannig hafi verið
fljúgandi gangur allt frá upphafi.
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2020
Reykjavíkurvegur 62 | Sími 527 0640 | 220 Hafnarfjörður | www.wh.is
Lesið vandlega upplýsingarnar
á umbúðumog fylgiseðli fyrir
notkun lyfsins. Leitið til læknis
eða lyfjafræðings sé þörf á
frekari upplýsingumum
áhættu og aukaverkanir.
Sjá nánari upplýsingar um
lyfið áwww.serlyfjaskra.is
Ofnæmið burt!
Zensitin
10mg töflur -10, 30 og 100 stk
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
að velta fyrir
mér hvort ferða-
þjónustan væri
ofurseld þeim
sem hafa lánað
til hennar, eða
leigja henni fast-
eignir, og geti án
tillits til alls
gengið að eign-
um og ábyrgðum
sem eru settar
fyrir leigu. Niðurstaða álitsgerðar
Viðars Más Matthíassonar (sjá blað-
síðu 6 í Morgunblaðinu í dag) er
auðvitað sú að það sé ekki hægt.
Það geti enda fjórar reglur fjár-
munaréttar leitt til þess að menn
komist undan því að greiða í dag, þó
svo þeir þurfi að greiða síðar. Þess
vegna er svo mikilvægt að ríkis-
valdið komi að þessu máli og velti
því fyrir sér hvort ferðaþjónustan
geti borgað af lánum sem hefur ver-
ið frestað, þegar ferðamenn fara að
streyma á ný til landsins. Nú eða að
ríkisvaldið geri eins og í hruninu og
setji þess vegna lög um mögulega
vexti og verðbætur til þess að hér
fari ekki allt á hliðina aftur eftir
tvö, þrjú ár. Þegar neyðarlögin
voru sett, og mörg önnur lög í kjöl-
far hrunsins, var gengið á eignarétt
hinna og þessa en talið óhjá-
kvæmilegt að setja þau til þess að
bjarga þjóðarhagsmunum. Nú þeg-
ar stærsta atvinnugreinin á Íslandi
er í greiðsluerfiðleikum, vegna þess
að hún hefur ekki tekjur, hlýtur
ríkisvaldið að hafa einhverjar
skyldur gagnvart henni og öllum
þeim sem hafa afkomu af þessum
rekstri,“ segir Sigurður.
Nú blasi við auðn í ferðaþjónust-
unni. Hótelhaldarar segi honum að
ekki sé reiknað með umtalsverðum
fjölda gesta fyrr en vorið 2021. Nú
sé búið að afskrifa þetta ár.
Sigurður G. Guðjónsson hæsta-
réttarlögmaður segir kröfuhafa
hótels hafa neitað að taka tillit til
erfiðra aðstæðna í ferðaþjónustu.
Algjört tekjuhrun sé í greininni út
af kórónuveirufaraldrinum.
„Ég sendi fyrir hönd eins hótel-
haldara tilkynningu til leigusala
um að ekki yrði greidd leiga vegna
óviðráðanlegra atvika – covid 19 –
sem fæli í sér efnda hindrun. Þessu
var ekki sérlega vel tekið og fékk
ég það svar til baka bréflega frá
lögmanni hans að þá yrði gengið að
tryggingum fyrir leigunni.
Þegar sú afstaða lá fyrir fór ég
Vilja ganga að tryggingum hótels
Hæstaréttarlögmaður segir kröfuhafa ekki vilja taka tillit til faraldursins
Sigurður G.
Guðjónsson
Gengi hlutabréfa Icelandair Group
lækkaði skarpt við opnun markaða
í gær. Nam lækkunin í upphafi
dags tæpum 15%. Voru miklar
sveiflur á því meðan Kauphöll var
opin og á tímabili nam lækkunin
17%. Þegar lokað var fyrir við-
skipti nam lækkunin frá fyrri degi
13,8% en viðskipti námu 163,3
milljónum króna. Stendur gengi fé-
lagsis í 2,5 og hefur ekki verið
lægra síðan árið 2009. Er markaðs-
virði félagsins 13,6 milljarðar króna
og hefur það lækkað um 66,9% frá
áramótum.
Þessa dagana vinna stjórnendur
félagsins að því að endurskipu-
leggja rekstur þess í kjölfar þess
að nær allar flugsamgöngur til
landsins og frá lömuðust í mars-
mánuði sökum útbreiðslu kórónu-
veirunnar. Vinna Íslandsbanki,
Landsbankinn og Kvika banki
ásamt erlendum ráðgjöfum að því
að koma rekstri félagsins fyrir
vind. Heimildir Morgunblaðsins
herma að stjórnvöld fylgist grannt
með stöðu mála. Hins vegar standi
ekki til að ríkissjóður komi að fé-
laginu fyrr en og ef félagið hefur
náð nýjum samningum við stéttar-
félög starfsfólks, leigusala og hlut-
hafa sem að stærstum hluta eru ís-
lenskir lífeyrissjóðir.
Stór flutningasamningur
Í gærmorgun var greint frá því
að Icelandair hefði náð samningi
við flutningamiðlunarfyrirtækið DB
Schenker um að minnsta kosti 45
fraktflugsferðir milli Shanghæ í
Kína og München í Þýskalandi með
lækninga- og hjúkrunarvörur fyrir
heilbrigðisyfirvöld í Evrópu. Þá fel-
ur samningurinn einnig í sér nokkr-
ar ferðir milli fyrrnefndrar borgar í
Kína og Chicago í Bandaríkjunum
með millilendingu hér á landi. Um
er að ræða daglegt flug til Kína en
fyrsta vélin heldur af landi brott
héðan í dag. Þremur Boeing 767-
vélum Icelandair verður breytt
tímabundið vegna verkefnisins.
Heimildir Morgunblaðsins herma
að til skoðunar sé að útvíkka samn-
inginn við DB Schenker verulega.
ses@mbl.is
Gengi Icelandair Group ekki
verið lægra frá árinu 2009
Félagið undirritar samning um flutninga milli Kína og Evrópu
Sagt var frá því í Morgun-
blaðinu í september 2018 að
áformað væri að opna 162 her-
bergja hótel í Hallarmúla 2. Þar
var verslunin Tölvutek en bygg-
ingin er nú auglýst til leigu.
Nýja hótelið hefði verið við
hliðina á Hilton Reykjavík Nor-
dica hótelinu og á ská á móti
City Park Hótelinu í Ármúla.
Fram kom í frétt Morgun-
blaðsins að fjárfestarnir hefðu
samið við Keahótelin um leigu á
húsnæðinu undir hótel. Skv.
upplýsingum frá Keahótelum
var hætt við verkefnið.
HALLARMÚLI 2
Morgunblaðið/Baldur
Til leigu Hallarmúli 2 í Reykjavík.
Átti að hafa
162 herbergi
Allt um sjávarútveg
25. apríl 2020
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 145.47
Sterlingspund 179.56
Kanadadalur 102.83
Dönsk króna 21.194
Norsk króna 13.657
Sænsk króna 14.427
Svissn. franki 150.19
Japanskt jen 1.3512
SDR 198.27
Evra 158.07
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 187.4186
Hrávöruverð
Gull 1727.55 ($/únsa)
Ál 1461.5 ($/tonn) LME
Hráolía 20.89 ($/fatið) Brent