Morgunblaðið - 25.04.2020, Side 28

Morgunblaðið - 25.04.2020, Side 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2020 ✝ Nanna KolbrúnBjarnadóttir húsmóðir fæddist á Árbakka, Eskifirði, 2.9. 1938. Hún lést á umdæmis- sjúkrahúsi Austur- lands í Neskaup- stað 11.4. 2020. Foreldrar hannar voru Bjarni Krist- jánsson, sjómaður á Eskifirði, f. 13.2. 1911, d. 23.1. 1998 og eiginkona hans Laufey Sigurðardóttir húsmóðir, f. 23.9. 1914, d. 3.8. 2001. Nanna Kolbrún var yngst í röð fimm systkina: Elstur var Sigurður, f. 5.8. 1932, d. 14.2. 2005, Svana, f. 8.6. 1934, d. 24.6. 1982, Kristján Ragnar, f. 21.8. 1935 og Nikólína, f. 10.9.1937, d. 27.12. 1986. Þann 11. maí 1957 giftist Nanna Kolbrún eftirlifandi eiginmanni sínum, Kristni Guð- mundssyni, f. 21.9. 1933, húsa- og húsgagnasmíðameistara. Foreldrar hans voru Guð- mundur Karl Stef- ánsson vélstjóri, f. 2.4. 1894, d. 15.6. 1976, og eiginkona hans Jóhanna Kristín Magnús- dóttir húsmóðir, f. 15.3. 1904, d. 8.2. 1996. Börn Kristins og Nönnu Kol- brúnar eru Stefán, kvæntur Helgu Katrínu Leifsdótt- ur. Dætur þeirra eru tvær. Guð- mundur Bjarni, kvæntur Hrafn- hildi Gróu Atladóttur, börn þeirra eru fjögur. Jóhann Magnús Kristinsson, kvæntur Margréti Karlsdóttur, þau eiga einn son. Ingibjörg Laufey, börn hennar eru tvö og sam- býlismaður er Sigurður Tómas Sigfússon. Jarðsungið verður frá Eski- fjarðarkirkju í kyrrþey í ljósi þjóðfélagsaðstæðna. Útförinni verður streymt. Þeir sem hyggjast fylgja streyminu, vinsamlegast hafið samband við aðstandendur. Komið er að kveðjustund og fram í hugann streyma minn- ingarnar. Tengdamóðir mín Nanna Kolbrún Bjarnadóttir er látin. Andlátið bar brátt að. Hún leggst inn á sjúkrahús og fáum dögum síðar er hún látin. Nanna var listfeng kona. Það kom m.a. fram í handa- vinnu, matargerð og bakstri. Allt lék það í höndum hennar. Ég man svo vel eftir því þegar ég kom í fyrsta sinn á heimili Nönnu og Kidda. Mér var boðið í sunnudagskaffi. Útidyrnar opnuðust og við mér blasti lágvaxin, hnellin kona, kvik í hreyfingum. Hún var klædd gallabuxum og bol og brosti breitt. Hún bauð mig strax velkomna og ég fann að mér leið vel. Ég var teymd að kaffiborði. Ég settist niður, dáleidd yfir öllu sem ég sá. Ég, aðkomumanneskjan, hafði varla séð annað eins fínerí nema í fermingarveislum eða stórafmælum. Á borðinu var kaffibrauð af öllum gerðum og allt sem ég smakkaði var gott. Þannig var maturinn henn- ar líka, góður. Þegar gesti bar að garði fór Nanna í búrið og galdraði fram kræsingarnar. Yfirleitt mátti telja 8-10 sortir á kaffiborðinu. Brynjar sonur okkar hafði dálæti á kanilsnúðunum henn- ar ömmu. Hann var ekki gam- all þegar hann stakk upp á því við ömmu að hún opnaði bak- arí. Þetta gladdi ömmu sem tók bakarísumræðunni sem miklu hrósi. Fyrir utan hefðbundna vikudvöl á sumrin á Eskifirði höfðum við samband um Skype oft í viku. Nanna talaði um hve frábært henni fyndist að geta haft þannig samband því þá gat hún séð okkur. Síð- ari ár höfum við líka notað snapp. Þannig gat hún fylgt sínu fólki og séð heiminn í leiðinni. Þegar við höfum verið í sumarbústaðnum eða á ferða- lögum hefur alltaf verið of- arlega á dagskrá að senda snapp. Við vissum að það gladdi. Í mörg sumur komu þau hjónin keyrandi suður til barna sinna sem þar búa. Eitt sumarið höfðu tveir ungir son- arsynir fengið að dvelja hjá afa og ömmu um tíma og komu með þeim keyrandi suð- ur til foreldranna. Annar var Brynjar sonur okkar hjóna. Á leiðinni var stoppað í öllum sjoppum til að leita að Olla- bókinni, sem síðan fannst í þeirri síðustu. Þá var okkur sögð sagan af því þegar amma hafði keypt einnota myndavél- ar, sína handa hvorum strák og sonur okkar ætlaði að taka mynd af fjalli þegar stoppað var. Honum þótti amma eitthvað fyrirferðarmikil og sagði við hana: „Amma, þú stendur fyrir fjallinu.“ Þau hjón komu tvisvar í heimsókn til Danmerkur, þar sem við bjuggum um nokkurra ára skeið vegna framhaldsnáms Jóhanns. Í bæði skiptin voru það vel heppnaðar ferðir og frá þeim tíma eigum við margar góðar minningar. Eftir því sem árin liðu og við Nanna kynntumst betur, áttaði ég mig á því að þar fór kona sem ekki lá á skoðunum sínum og talaði hreina íslensku ef svo bar undir. Við gátum ekki alltaf verið sammála en aldrei bar skugga á okkar samskipti. Nanna bar hag barna sinna og fjölskyldna þeirra fyrir brjósti og hún vildi alltaf vita hvernig lífið og tilveran gengi. Þannig minnumst við fjölskyld- an hennar. Ég veit að hún fylg- ist með okkur áfram. Blessuð sé minning látinnar tengdamóður. Hvíl í friði. Meira: mbl.is/andlat Margrét Karlsdóttir Þessi kona hefur kvatt, Nanna Bjarnadóttir. Nanna var ljóð, Nanna var yndislegur nágranni, Nanna var sterk, Nanna var margra manna maki, Nanna var töfra- kona, Nanna fór upp í fjall eftir vinnu, Nanna kom til baka með fleiri lítra af bláberjum, Nanna bakaði heimsins besta brauð, Nanna bakaði heimsins bestu lagtertur, Nanna var gestrisin, Nanna lagði ætíð á borð eins og forsetinn væri væntanlegur ef maður kíkti inn, Nanna bauð upp á besta djúpsteikta kjúk- linginn, Nanna hló hátt, Nanna átti stóran faðm og hlýtt faðm- lag, Nanna átti fjöldann allan af hughreystandi orðum, Nanna varð aldrei orðlaus, Nanna var skapmikil, Nanna var stormsveipur, Nanna var sannur vinur vina sinna, Nanna var stórbrotin, Nanna á stórt hólf í hjarta mér, Nanna elsk- aði Kidda, Nanna elskaði börnin sín af heilu hjarta. Innilegar samúðarkveðjur til Kidda, Stefáns, Guðmundar Bjarna, Jóhanns, Ingu Lullu, tengdabarna og barnabarna. Ég sakna Nönnu. Unnur Sólrún Bragadóttir. Nanna Kolbrún Bjarnadóttir ✝ Hergeir Krist-geirsson fædd- ist á bænum Vestri- Hellum í Gaulverja- bæjarhreppi 16. ágúst 1934. Hann lést á heimili sínu að Grænumörk 5 á Sel- fossi 12. apríl 2020. Foreldrar hans voru þau Kristgeir Jónsson, f. 1871, d. 1938, og Herborg Bjarney Jónsdóttir, f. 1898, d. 1936. Eftirlifandi systkini hans eru Hörður, f. 1930, Ögmundur, f. 1931, Anna, f. 1932, og Hjalti, f. 1933. Látin eru Kristrún, Jón, Grímur, Sveinbjörn, Hákon, Elín, Hallgrímur og Geirlaug. Hergeir fór um tveggja ára aldur í fóstur hjá þeim Þorkeli Guðmundssyni, f. 1883, d. 1975, og Guðrúnu Guð- mundsdóttur, f. 1888, d. 1970, sem bjuggu í Gerðum í Gaul- verjabæjarhreppi og ólst þar upp til fullorðinsára. Uppeldissystk- ini hans voru Markús, Þorgerður og Þórir sem öll eru látin. Hergeir gekk í barnaskóla í Gaulverjabæ og vann við sveita- störf heima í Gerðum. Á síldarár- unum fór hann á vertíð m.a. til Vestmannaeyja. Hann nam raf- 15. apríl 1962 giftist Hergeir Fanneyju Jónsdóttur frá Norður- hjáleigu í Álftaveri, f. 6. mars 1933, d. 3. desember 2016. Hófu þau búskap á Selfossi, byggðu sér hús að Birkivöllum 24 og bjuggu þar frá árinu 1964. Börn þeirra Fanneyjar eru: 1) Ragn- heiður, f. 1962, gift Snorra Jóels- syni. Dætur hennar: a) Svanhild- ur Lilja Svansdóttir, f. 1988, í sambúð með Kolbeini Ara Haukssyni, börn hennar eru Snæþór Daði og Agla Fanney Hauksbörn. b) Fanney Svans- dóttir, f. 1990, dóttir hennar er Rán Arnarsdóttir. 2) Þórir, f. 1964, giftur Kirsten Gaard. Börn þeirra: Maria, f. 1993, Sunniva, f. 1996 og Mathias, f. 2000. 3) Grímur, f. 1969, giftur Björk Steindórsdóttur. Börn þeirra eru: a) Hildur, f. 1987, í sambúð með Elíasi Erni Einarssyni, son- ur þeirra Hergeir Þór, f. 24. maí 2019, d. 24. maí 2019, synir Hild- ar eru Jakob Máni og Aron Logi Hafþórssynir, b) Eva, f. 1995, í sambúð með Árna Geir Hilm- arssyni, sonur þeirra er Bjarki Freyr, c) Hergeir, f. 1997 og d) Ragnheiður, f. 2005. 4) Guðrún Herborg, f. 1973, gift Júlíusi Magnúsi Pálssyni. Saman eiga þau Fannar Þór, f. 2008, Guðrún Herborg á Janus Daða Smára- son, f. 1995. Júlíus á synina Gunnar Pál, f. 1995 og Einar Karl, f. 1996. Útför Hergeirs fór fram í kyrrþey. virkjun í Iðnskól- anum á Selfossi, var í starfsnámi hjá Kaupfélagi Árnes- inga og fékk meist- arabréf í rafvirkjun 1964. Árið 1960 hóf hann störf í lögregl- unni í Reykjavík og í lögreglunni í Árnes- sýslu árið 1962 þar sem hann starfaði óslitið til ársins 2001 er hann lét af störfum sökum aldurs. Vet- urinn 1973 fór hann í Lögreglu- skóla ríkisins. Árið 1976 var hann skipaður rannsóknarlögreglu- maður í lögreglunni í Árnessýslu. Hann starfaði eftir það í rannsóknardeild embættisins, var skipaður lögreglufulltrúi 1983 og fór með stjórn rann- sóknardeildarinnar allt til þess að hann lét af störfum árið 2001. Þó að Hergeir hafi lengst af haft lögreglustarfið að aðalstarfi tók hann auk þess um árabil að sér raflagnateikningar í íbúðarhús á Selfossi og víðar. Þá lærði hann einnig til ökukennara og fékkst við ökukennslu samhliða lög- reglustarfinu um nokkurra ára skeið. Elsku afi, tilhugsunin um að þú sért farinn frá okkur er erfið. Einhvern veginn héldum við að þú værir eilífur. Ekkert gæti stöðvað þig. Þú reyndir alltaf að hafa nóg fyrir stafni, fórst í göngutúra, í heita pottinn, mættir á hand- boltaleiki, heimsóttir fólkið þitt og fórst í bíltúra og ferðalög. Hafðir svo gaman af félagsskap annarra og varst alltaf svo góður við menn og dýr. Þú varst svo fróðleiksfús og sagðir skemmtilega frá, bæði í orði og texta. Það var hægt að spyrja þig að öllu milli himins og jarðar. Þú hafðir svörin og ef þú varst ekki viss þá fannstu út úr því. Minningarnar eru óteljandi og höfum við rifjað þær margar upp undanfarna daga og þær ylja okkur. Allar heimsóknirnar á Birkivellina til ykkar ömmu Fanneyjar þar sem þið tókuð hlý- lega á móti okkur, iðulega með heitri blómkálssúpu, spjalli í eld- húskróknum og stoppi í gróður- húsinu. Þú varst stoltur af afkomenda- hópnum þínum og það fór ekki framhjá neinum. Þú fylgdist með okkur öllum sama hvar við vorum stödd í heiminum, sýndir því sem við tókum okkur fyrir hendur áhuga og varst hvetjandi. Það er tómlegt án þín en við vitum að þú fylgist með okkur og við munum ætíð hugsa hlýlega til þín. Nú eru þið amma sameinuð á ný og við erum viss um það hafi verið fagnaðarfundir. Takk fyrir allt, afi. Við elskum þig. Þín barnabörn, Hildur, Svanhildur Lilja, Fanney, Maria, Janus Daði, Eva, Sunniva, Her- geir, Mathias, Ragnheið- ur og Fannar Þór. Væntumþykja byggir brýr og bætir menn í flestu, hennar vitund skín svo skýr og skapar tengsl og festu. Á stefnumót við dýrðardraum hún dregur mikinn skara er yfir lífsins ljúfa straum hún lætur okkur fara. Ég fer um þessa bestu brú á björtum lífsins degi og þar í gleði gengur þú á gæfu þinnar vegi. (Kristján Hreinsson) Systkinin á móti og fjölskyldur þeirra þakka Hergeiri samfylgd- ina í gegnum árin og senda öllum aðstandendum innilegar samúð- arkveðjur. Katrín Stefanía, Elín Hekla, Klemenz Geir, Erlingur Reyr og Guð- rún Hrafnhildur. Við óvænt fráfall Hergeirs vin- ar míns 12. apríl sl. koma margar minningar í hugann. Við höfðum talað saman í síma deginum áður og ráðgert ýmislegt. Við höfum rækt vinskap frá því að við mun- um fyrst eftir okkur. Hergeir er næstyngstur af stórum systkina- hópi, það elsta fætt 1892. Hergeir var á 5. ári þegar báðir foreldrar hans voru dánir. Yngstu systk- inunum var komið í fóstur á góð- um heimilum. Hergeir ólst upp í Gerðum í Gaulverjabæjarhreppi. Við fylgdumst að í barnaskólanum í Gaulverjabæ ásamt Hjalta og Önnu Gunnu systkinum hans. Þeir bræður Hergeir og Hjalti voru miklir vinir mínir alla tíð. Við Hergeir æfðum á unglings- árum frjálsar íþróttir og keppt- um fyrir ungmennafélagið okkar Samhygð. Leið okkar beggja lá síðan um svipað leyti á Selfoss í bygging- ariðnnám. Við unnum hvor hjá öðrum; hann lagði rafmagn í mitt íbúðarhús en ég múraði hans hús. Þá hafði hann eignast góða konu, hana Fanneyju. Þau hjón höfðu mikið barna- lán en Fanney lést fyrir nokkr- um árum. Nú allra síðast var Hergeir einn í íbúð aldraðra í Grænumörk 5 en við hjónin í næsta húsi. Við hittumst nær daglega. Fátt eitt verður sagt í afskömmtuðu plássi í minningar- grein. Í desember sl. lofaði ég Her- geiri vini mínum að heyra dálítið kvæði sem ég hafði gert og nefndi æviþulu. Þegar hann hafði hlýtt á kvæðið sagði hann: „Ég kannast við margt í þessu.“ Ég vil því enda þessi orð á þul- unni, þar sem hún gildir í mörgu fyrir okkur báða. Fagur er Flóinn minn. Margs er þar að minnast frá morgni lífsins. Hofsóley á lækjarbakka ranfang í varpa. Lömbin að leika sér. Silungurinn vakir í flóðinu áveitan á enginu. Engjarós og fjalldalafífill. Barnaleikir okkar systkina. Foreldrar okkar ferðbúast að kjósa um lýðveldisstofnun. Fáninn dreginn að húni á bæjarburst á lýðveldisdaginn. Barnaskólinn á Bæjarhlaði. Hjalti, Hergeir og aðrir krakkar. Hljómur kirkjuklukkna við messu. Álftarhreiðrið í hólmanum. Tjaldurinn, lóan og spóinn. Kríuvarpið á Dælunum. Íþróttir á Loftsstaðaflötum. Ungmennafélagsfundir. Áfram út í lífið, sem ekki verður hér rakið. Gæfan varð með gjöful, með góða konu og niðja. Líður senn að lokum. Sest ég í Sumarlandið. Þar hitti ég nafna aftur og aðra góða vini. Saman munum við sitja og sjá yfir lönd og álfur. Nánustu aðstandendum flytj- um við hjónin innilegustu sam- úðarkveðjur. Sigurjón Erlingsson frá Galtastöðum. Hergeir Kristgeirsson Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram- kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Guðmundur Baldvinsson, umsjón útfara Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Minningarvefur á mbl.is Minningar og andlát Vefur þar sem er sameinað efni sem snýr að andlátum og útförum. Þar eru birtar andláts-, útfarar- og þakkartilkynningar sem eru að- gengilegar öllum en auk þess geta áskrifendur lesið minningargreinar á vefnum.         þjónustuaðila sem aðstoða þegar andlát ber       ætlaðar aðstandendum við fráfall ástvina. www.mbl.is/andlát Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírnar- nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Myndir | Hafi mynd birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Hafi æviágrip þegar verið sent er ráðlegt að senda myndina á netfangið minning@mbl.is og láta umsjónarmenn minningargreina vita. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.