Morgunblaðið - 25.04.2020, Qupperneq 28
28 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2020
✝ Nanna KolbrúnBjarnadóttir
húsmóðir fæddist á
Árbakka, Eskifirði,
2.9. 1938. Hún lést
á umdæmis-
sjúkrahúsi Austur-
lands í Neskaup-
stað 11.4. 2020.
Foreldrar hannar
voru Bjarni Krist-
jánsson, sjómaður
á Eskifirði, f. 13.2.
1911, d. 23.1. 1998 og eiginkona
hans Laufey Sigurðardóttir
húsmóðir, f. 23.9. 1914, d. 3.8.
2001.
Nanna Kolbrún var yngst í
röð fimm systkina: Elstur var
Sigurður, f. 5.8. 1932, d. 14.2.
2005, Svana, f. 8.6. 1934, d. 24.6.
1982, Kristján Ragnar, f. 21.8.
1935 og Nikólína, f. 10.9.1937,
d. 27.12. 1986.
Þann 11. maí 1957 giftist
Nanna Kolbrún eftirlifandi
eiginmanni sínum, Kristni Guð-
mundssyni, f. 21.9. 1933, húsa-
og húsgagnasmíðameistara.
Foreldrar hans voru Guð-
mundur Karl Stef-
ánsson vélstjóri, f.
2.4. 1894, d. 15.6.
1976, og eiginkona
hans Jóhanna
Kristín Magnús-
dóttir húsmóðir, f.
15.3. 1904, d. 8.2.
1996. Börn Kristins
og Nönnu Kol-
brúnar eru Stefán,
kvæntur Helgu
Katrínu Leifsdótt-
ur. Dætur þeirra eru tvær. Guð-
mundur Bjarni, kvæntur Hrafn-
hildi Gróu Atladóttur, börn
þeirra eru fjögur. Jóhann
Magnús Kristinsson, kvæntur
Margréti Karlsdóttur, þau eiga
einn son. Ingibjörg Laufey,
börn hennar eru tvö og sam-
býlismaður er Sigurður Tómas
Sigfússon.
Jarðsungið verður frá Eski-
fjarðarkirkju í kyrrþey í ljósi
þjóðfélagsaðstæðna.
Útförinni verður streymt.
Þeir sem hyggjast fylgja
streyminu, vinsamlegast hafið
samband við aðstandendur.
Komið er að kveðjustund og
fram í hugann streyma minn-
ingarnar. Tengdamóðir mín
Nanna Kolbrún Bjarnadóttir
er látin. Andlátið bar brátt að.
Hún leggst inn á sjúkrahús og
fáum dögum síðar er hún látin.
Nanna var listfeng kona.
Það kom m.a. fram í handa-
vinnu, matargerð og bakstri.
Allt lék það í höndum hennar.
Ég man svo vel eftir því
þegar ég kom í fyrsta sinn á
heimili Nönnu og Kidda. Mér
var boðið í sunnudagskaffi.
Útidyrnar opnuðust og við
mér blasti lágvaxin, hnellin
kona, kvik í hreyfingum. Hún
var klædd gallabuxum og bol
og brosti breitt. Hún bauð mig
strax velkomna og ég fann að
mér leið vel. Ég var teymd að
kaffiborði. Ég settist niður,
dáleidd yfir öllu sem ég sá.
Ég, aðkomumanneskjan, hafði
varla séð annað eins fínerí
nema í fermingarveislum eða
stórafmælum. Á borðinu var
kaffibrauð af öllum gerðum og
allt sem ég smakkaði var gott.
Þannig var maturinn henn-
ar líka, góður. Þegar gesti bar
að garði fór Nanna í búrið og
galdraði fram kræsingarnar.
Yfirleitt mátti telja 8-10 sortir
á kaffiborðinu.
Brynjar sonur okkar hafði
dálæti á kanilsnúðunum henn-
ar ömmu. Hann var ekki gam-
all þegar hann stakk upp á því
við ömmu að hún opnaði bak-
arí. Þetta gladdi ömmu sem
tók bakarísumræðunni sem
miklu hrósi.
Fyrir utan hefðbundna
vikudvöl á sumrin á Eskifirði
höfðum við samband um
Skype oft í viku. Nanna talaði
um hve frábært henni fyndist
að geta haft þannig samband
því þá gat hún séð okkur. Síð-
ari ár höfum við líka notað
snapp. Þannig gat hún fylgt
sínu fólki og séð heiminn í
leiðinni. Þegar við höfum verið
í sumarbústaðnum eða á ferða-
lögum hefur alltaf verið of-
arlega á dagskrá að senda
snapp. Við vissum að það
gladdi.
Í mörg sumur komu þau
hjónin keyrandi suður til
barna sinna sem þar búa. Eitt
sumarið höfðu tveir ungir son-
arsynir fengið að dvelja hjá
afa og ömmu um tíma og
komu með þeim keyrandi suð-
ur til foreldranna. Annar var
Brynjar sonur okkar hjóna. Á
leiðinni var stoppað í öllum
sjoppum til að leita að Olla-
bókinni, sem síðan fannst í
þeirri síðustu. Þá var okkur
sögð sagan af því þegar amma
hafði keypt einnota myndavél-
ar, sína handa hvorum strák og
sonur okkar ætlaði að taka
mynd af fjalli þegar stoppað
var.
Honum þótti amma eitthvað
fyrirferðarmikil og sagði við
hana: „Amma, þú stendur fyrir
fjallinu.“
Þau hjón komu tvisvar í
heimsókn til Danmerkur, þar
sem við bjuggum um nokkurra
ára skeið vegna framhaldsnáms
Jóhanns. Í bæði skiptin voru
það vel heppnaðar ferðir og frá
þeim tíma eigum við margar
góðar minningar.
Eftir því sem árin liðu og við
Nanna kynntumst betur, áttaði
ég mig á því að þar fór kona
sem ekki lá á skoðunum sínum
og talaði hreina íslensku ef svo
bar undir. Við gátum ekki alltaf
verið sammála en aldrei bar
skugga á okkar samskipti.
Nanna bar hag barna sinna
og fjölskyldna þeirra fyrir
brjósti og hún vildi alltaf vita
hvernig lífið og tilveran gengi.
Þannig minnumst við fjölskyld-
an hennar. Ég veit að hún fylg-
ist með okkur áfram.
Blessuð sé minning látinnar
tengdamóður.
Hvíl í friði.
Meira: mbl.is/andlat
Margrét Karlsdóttir
Þessi kona hefur kvatt,
Nanna Bjarnadóttir.
Nanna var ljóð, Nanna var
yndislegur nágranni, Nanna
var sterk, Nanna var margra
manna maki, Nanna var töfra-
kona, Nanna fór upp í fjall eftir
vinnu, Nanna kom til baka með
fleiri lítra af bláberjum, Nanna
bakaði heimsins besta brauð,
Nanna bakaði heimsins bestu
lagtertur, Nanna var gestrisin,
Nanna lagði ætíð á borð eins og
forsetinn væri væntanlegur ef
maður kíkti inn, Nanna bauð
upp á besta djúpsteikta kjúk-
linginn, Nanna hló hátt, Nanna
átti stóran faðm og hlýtt faðm-
lag, Nanna átti fjöldann allan
af hughreystandi orðum,
Nanna varð aldrei orðlaus,
Nanna var skapmikil, Nanna
var stormsveipur, Nanna var
sannur vinur vina sinna, Nanna
var stórbrotin, Nanna á stórt
hólf í hjarta mér, Nanna elsk-
aði Kidda,
Nanna elskaði börnin sín af
heilu hjarta.
Innilegar samúðarkveðjur til
Kidda, Stefáns, Guðmundar
Bjarna, Jóhanns, Ingu Lullu,
tengdabarna og barnabarna.
Ég sakna Nönnu.
Unnur Sólrún Bragadóttir.
Nanna Kolbrún
Bjarnadóttir
✝ Hergeir Krist-geirsson fædd-
ist á bænum Vestri-
Hellum í Gaulverja-
bæjarhreppi 16.
ágúst 1934. Hann
lést á heimili sínu að
Grænumörk 5 á Sel-
fossi 12. apríl 2020.
Foreldrar hans
voru þau Kristgeir
Jónsson, f. 1871, d.
1938, og Herborg
Bjarney Jónsdóttir, f. 1898, d.
1936. Eftirlifandi systkini hans
eru Hörður, f. 1930, Ögmundur,
f. 1931, Anna, f. 1932, og Hjalti, f.
1933. Látin eru Kristrún, Jón,
Grímur, Sveinbjörn, Hákon, Elín,
Hallgrímur og Geirlaug. Hergeir
fór um tveggja ára aldur í fóstur
hjá þeim Þorkeli Guðmundssyni,
f. 1883, d. 1975, og Guðrúnu Guð-
mundsdóttur, f. 1888, d. 1970,
sem bjuggu í Gerðum í Gaul-
verjabæjarhreppi og ólst þar upp
til fullorðinsára. Uppeldissystk-
ini hans voru Markús, Þorgerður
og Þórir sem öll eru látin.
Hergeir gekk í barnaskóla í
Gaulverjabæ og vann við sveita-
störf heima í Gerðum. Á síldarár-
unum fór hann á vertíð m.a. til
Vestmannaeyja. Hann nam raf-
15. apríl 1962 giftist Hergeir
Fanneyju Jónsdóttur frá Norður-
hjáleigu í Álftaveri, f. 6. mars
1933, d. 3. desember 2016. Hófu
þau búskap á Selfossi, byggðu
sér hús að Birkivöllum 24 og
bjuggu þar frá árinu 1964. Börn
þeirra Fanneyjar eru: 1) Ragn-
heiður, f. 1962, gift Snorra Jóels-
syni. Dætur hennar: a) Svanhild-
ur Lilja Svansdóttir, f. 1988, í
sambúð með Kolbeini Ara
Haukssyni, börn hennar eru
Snæþór Daði og Agla Fanney
Hauksbörn. b) Fanney Svans-
dóttir, f. 1990, dóttir hennar er
Rán Arnarsdóttir. 2) Þórir, f.
1964, giftur Kirsten Gaard. Börn
þeirra: Maria, f. 1993, Sunniva, f.
1996 og Mathias, f. 2000. 3)
Grímur, f. 1969, giftur Björk
Steindórsdóttur. Börn þeirra
eru: a) Hildur, f. 1987, í sambúð
með Elíasi Erni Einarssyni, son-
ur þeirra Hergeir Þór, f. 24. maí
2019, d. 24. maí 2019, synir Hild-
ar eru Jakob Máni og Aron Logi
Hafþórssynir, b) Eva, f. 1995, í
sambúð með Árna Geir Hilm-
arssyni, sonur þeirra er Bjarki
Freyr, c) Hergeir, f. 1997 og d)
Ragnheiður, f. 2005. 4) Guðrún
Herborg, f. 1973, gift Júlíusi
Magnúsi Pálssyni. Saman eiga
þau Fannar Þór, f. 2008, Guðrún
Herborg á Janus Daða Smára-
son, f. 1995. Júlíus á synina
Gunnar Pál, f. 1995 og Einar
Karl, f. 1996.
Útför Hergeirs fór fram í
kyrrþey.
virkjun í Iðnskól-
anum á Selfossi, var
í starfsnámi hjá
Kaupfélagi Árnes-
inga og fékk meist-
arabréf í rafvirkjun
1964.
Árið 1960 hóf
hann störf í lögregl-
unni í Reykjavík og í
lögreglunni í Árnes-
sýslu árið 1962 þar
sem hann starfaði
óslitið til ársins 2001 er hann lét
af störfum sökum aldurs. Vet-
urinn 1973 fór hann í Lögreglu-
skóla ríkisins. Árið 1976 var hann
skipaður rannsóknarlögreglu-
maður í lögreglunni í Árnessýslu.
Hann starfaði eftir það í
rannsóknardeild embættisins,
var skipaður lögreglufulltrúi
1983 og fór með stjórn rann-
sóknardeildarinnar allt til þess
að hann lét af störfum árið 2001.
Þó að Hergeir hafi lengst af haft
lögreglustarfið að aðalstarfi tók
hann auk þess um árabil að sér
raflagnateikningar í íbúðarhús á
Selfossi og víðar. Þá lærði hann
einnig til ökukennara og fékkst
við ökukennslu samhliða lög-
reglustarfinu um nokkurra ára
skeið.
Elsku afi, tilhugsunin um að
þú sért farinn frá okkur er erfið.
Einhvern veginn héldum við að
þú værir eilífur. Ekkert gæti
stöðvað þig.
Þú reyndir alltaf að hafa nóg
fyrir stafni, fórst í göngutúra, í
heita pottinn, mættir á hand-
boltaleiki, heimsóttir fólkið þitt
og fórst í bíltúra og ferðalög.
Hafðir svo gaman af félagsskap
annarra og varst alltaf svo góður
við menn og dýr.
Þú varst svo fróðleiksfús og
sagðir skemmtilega frá, bæði í
orði og texta. Það var hægt að
spyrja þig að öllu milli himins og
jarðar. Þú hafðir svörin og ef þú
varst ekki viss þá fannstu út úr
því.
Minningarnar eru óteljandi og
höfum við rifjað þær margar upp
undanfarna daga og þær ylja
okkur. Allar heimsóknirnar á
Birkivellina til ykkar ömmu
Fanneyjar þar sem þið tókuð hlý-
lega á móti okkur, iðulega með
heitri blómkálssúpu, spjalli í eld-
húskróknum og stoppi í gróður-
húsinu.
Þú varst stoltur af afkomenda-
hópnum þínum og það fór ekki
framhjá neinum. Þú fylgdist með
okkur öllum sama hvar við vorum
stödd í heiminum, sýndir því sem
við tókum okkur fyrir hendur
áhuga og varst hvetjandi.
Það er tómlegt án þín en við
vitum að þú fylgist með okkur og
við munum ætíð hugsa hlýlega til
þín.
Nú eru þið amma sameinuð á
ný og við erum viss um það hafi
verið fagnaðarfundir.
Takk fyrir allt, afi.
Við elskum þig.
Þín barnabörn,
Hildur, Svanhildur Lilja,
Fanney, Maria, Janus
Daði, Eva, Sunniva, Her-
geir, Mathias, Ragnheið-
ur og Fannar Þór.
Væntumþykja byggir brýr
og bætir menn í flestu,
hennar vitund skín svo skýr
og skapar tengsl og festu.
Á stefnumót við dýrðardraum
hún dregur mikinn skara
er yfir lífsins ljúfa straum
hún lætur okkur fara.
Ég fer um þessa bestu brú
á björtum lífsins degi
og þar í gleði gengur þú
á gæfu þinnar vegi.
(Kristján Hreinsson)
Systkinin á móti og fjölskyldur
þeirra þakka Hergeiri samfylgd-
ina í gegnum árin og senda öllum
aðstandendum innilegar samúð-
arkveðjur.
Katrín Stefanía, Elín
Hekla, Klemenz Geir,
Erlingur Reyr og Guð-
rún Hrafnhildur.
Við óvænt fráfall Hergeirs vin-
ar míns 12. apríl sl. koma margar
minningar í hugann. Við höfðum
talað saman í síma deginum áður
og ráðgert ýmislegt. Við höfum
rækt vinskap frá því að við mun-
um fyrst eftir okkur. Hergeir er
næstyngstur af stórum systkina-
hópi, það elsta fætt 1892. Hergeir
var á 5. ári þegar báðir foreldrar
hans voru dánir. Yngstu systk-
inunum var komið í fóstur á góð-
um heimilum.
Hergeir ólst upp í Gerðum í
Gaulverjabæjarhreppi. Við
fylgdumst að í barnaskólanum í
Gaulverjabæ ásamt Hjalta og
Önnu Gunnu systkinum hans.
Þeir bræður Hergeir og Hjalti
voru miklir vinir mínir alla tíð.
Við Hergeir æfðum á unglings-
árum frjálsar íþróttir og keppt-
um fyrir ungmennafélagið okkar
Samhygð.
Leið okkar beggja lá síðan um
svipað leyti á Selfoss í bygging-
ariðnnám. Við unnum hvor hjá
öðrum; hann lagði rafmagn í mitt
íbúðarhús en ég múraði hans
hús. Þá hafði hann eignast góða
konu, hana Fanneyju.
Þau hjón höfðu mikið barna-
lán en Fanney lést fyrir nokkr-
um árum. Nú allra síðast var
Hergeir einn í íbúð aldraðra í
Grænumörk 5 en við hjónin í
næsta húsi. Við hittumst nær
daglega. Fátt eitt verður sagt í
afskömmtuðu plássi í minningar-
grein.
Í desember sl. lofaði ég Her-
geiri vini mínum að heyra dálítið
kvæði sem ég hafði gert og
nefndi æviþulu. Þegar hann
hafði hlýtt á kvæðið sagði hann:
„Ég kannast við margt í þessu.“
Ég vil því enda þessi orð á þul-
unni, þar sem hún gildir í mörgu
fyrir okkur báða.
Fagur er Flóinn minn.
Margs er þar að minnast
frá morgni lífsins.
Hofsóley á lækjarbakka
ranfang í varpa.
Lömbin að leika sér.
Silungurinn vakir í flóðinu
áveitan á enginu.
Engjarós og fjalldalafífill.
Barnaleikir okkar systkina.
Foreldrar okkar ferðbúast
að kjósa um lýðveldisstofnun.
Fáninn dreginn að húni á bæjarburst
á lýðveldisdaginn.
Barnaskólinn á Bæjarhlaði.
Hjalti, Hergeir og aðrir krakkar.
Hljómur kirkjuklukkna við messu.
Álftarhreiðrið í hólmanum.
Tjaldurinn, lóan og spóinn.
Kríuvarpið á Dælunum.
Íþróttir á Loftsstaðaflötum.
Ungmennafélagsfundir.
Áfram út í lífið,
sem ekki verður hér rakið.
Gæfan varð með gjöful,
með góða konu og niðja.
Líður senn að lokum.
Sest ég í Sumarlandið.
Þar hitti ég nafna aftur
og aðra góða vini.
Saman munum við sitja
og sjá yfir lönd og álfur.
Nánustu aðstandendum flytj-
um við hjónin innilegustu sam-
úðarkveðjur.
Sigurjón Erlingsson
frá Galtastöðum.
Hergeir
Kristgeirsson
Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram-
kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Guðmundur Baldvinsson,
umsjón útfara
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Minningarvefur á mbl.is
Minningar
og andlát
Vefur þar sem er sameinað efni sem snýr að
andlátum og útförum. Þar eru birtar andláts-,
útfarar- og þakkartilkynningar sem eru að-
gengilegar öllum en auk þess geta áskrifendur
lesið minningargreinar á vefnum.
þjónustuaðila sem aðstoða þegar andlát ber
ætlaðar aðstandendum við fráfall ástvina.
www.mbl.is/andlát
Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírnar-
nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Myndir | Hafi mynd birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með
minningargrein nema beðið sé um annað. Hafi æviágrip þegar verið
sent er ráðlegt að senda myndina á netfangið minning@mbl.is og láta
umsjónarmenn minningargreina vita.
Minningargreinar