Morgunblaðið - 25.04.2020, Page 33
Ánægð með fyrsta
skref í atvinnumennsku
FRAKKLAND
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
„Þetta var mjög áhugavert,
skemmtilegt og mikil reynsla,“ sagði
Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir,
landsliðskona í handknattleik, við
Morgunblaðið um sitt fyrsta tímabil
í atvinnumennsku erlendis. Hrafn-
hildur gekk í raðir Bourg-de-Péage í
efstu deild Frakklands fyrir leiktíð-
ina, eftir að hafa leikið allan ferilinn
heima á Selfossi.
Hanna viðurkennir að það hafi
verið viðbrigði að yfirgefa Selfoss og
halda á vit ævintýranna í nýju landi
og í sterkri deild en hún staðfesti við
Morgunblaðið að hún myndi ekki
leika áfram með Bourg-de-Péage.
„Þetta var líka virkilega erfitt.
Það voru margar áskoranir og þetta
var mjög lærdómsríkt ár. Þetta var í
fyrsta skipti sem ég skipti um lið
yfirhöfuð og það var nýjung fyrir
mig að fara frá heimabæ mínum,
Selfossi, alla leið til Frakklands. Það
var stór breyting og svo var tungu-
málið frekar erfitt. Til að byrja með
skildi ég ekki neitt í frönsku og það
töluðu ekki allir ensku þar sem ég
var. Æfingamenningin var öðruvísi
en ég var vön, svo þetta voru við-
brigði,“ sagði Hanna, sem skilur
frönskuna betur núna.
Brosti bara og notaði táknmál
„Franskan er töluvert betri en
ekkert til að monta sig af,“ sagði
hún og hló. „Ég var farin að skilja
handboltamálið á æfingum og í
leikjum. Málið dagsdaglega var ég
ekki með og ég gat rosalega lítið
tjáð mig á frönsku. Ég brosti bara
svolítið og notaði táknmál með
höndunum eins og ég gat. Svo kom
Google Translate sér vel. Ég notaði
það á hverjum degi.“
Bourg-de-Péage er lítill bær í
Suðaustur-Frakklandi, um 100 kíló-
metra suður af Lyon og ekki fjarri
landamærum Sviss og Ítalíu. Áhug-
inn fyrir handbolta er mikill í
bænum.
Svipað og á Selfossi
„Þetta var fín umgjörð og þetta er
einn besti klúbburinn hvað varðar
aðsókn á leiki. Það var alltaf fullt
hús og það eru stúkur báðum megin
við völlinn. Áhuginn í bænum var
mjög mikill, en þetta er pínulítill
bær þar sem búa um 10.000 manns,
svipað og á Selfossi. Þetta var þriðja
tímabilið í röð í efstu deild, en ann-
ars hefur liðið aldrei verið þar.
Þetta er nýtt félag í uppbyggingu og
að komast á þennan stall í fyrsta
skipti,“ sagði Selfyssingurinn.
Liðið var í níunda sæti af tólf þeg-
ar deildinni var aflýst. Ekkert lið
var krýndur meistari og ekkert lið
féll. Tvö lið fara upp og verða því
fjórtán lið í deildinni á næstu leiktíð.
Undir venjulegum kringumstæðum
fara átta efstu liðin í úrslitakeppni
um franska meistaratitilinn á meðan
fjögur neðstu fara í umspil um að
halda sæti sínu í efstu deild.
Hrafnhildur Hanna og liðsfélagar
hennar voru þremur stigum frá sæti
í úrslitakeppninni og hefði því mikið
átt að vera undir í síðustu umferð-
unum. Þess í stað hefur hún leikið
sinn síðasta leik með liðinu.
Skrítið að vera búin
að spila síðasta leikinn
„Við vorum á mörkunum að fara í
úrslitakeppnina og svo í fall-
umspilið. Það var leiðinlegt að klára
ekki tímabilið, sérstaklega því ég er
búin að ákveða að ég verði ekki
þarna áfram. Það var skrítið að vera
allt í einu búin að spila síðasta leik-
inn með stelpunum. Þetta var besti
árangurinn hjá þessu félagi í deild-
inni frá upphafi, þannig að það var
ánægja með tímabilið,“ sagði Hrafn-
hildur Hanna, en hún er óviss með
næstu skref á ferlinum.
„Ég er ekki búin að ákveða hvað
ég geri núna. Ég veit ekki hvort ég
verð áfram úti og hvert ég fer þá,
eða hvort ég verð heima og klára
skólann.“
Ástandið í heiminum hjálpar ekki
til við að finna nýtt félag, en mörg
þeirra munu glíma við fjárhags-
vandamál á næstunni.
Þreifingar á ýmsum stöðum
„Það gerist allavega ekkert hratt
núna. Það eru þreifingar á ýmsum
stöðum en maður finnur það að
ástandið í heiminum hefur áhrif og
þetta er rólegra og margir halda að
sér höndum.“
Hrafnhildur Hanna skoraði 84
mörk í 19 leikjum á tímabilinu og
var markahæsti nýliðinn í deildinni
og markahæsti leikmaður Bourg-de-
Péage. Var hún ánægð með eigin
frammistöðu, þótt hún geti gert enn
betur. „Í rauninni get ég verið sátt,
þótt það hafi verið margt sem ég
hefði viljað gera betur, en á sama
tíma gerði ég margt vel. Ég var
markahæst í mínu liði og var tíunda
markahæst í deildinni. Ég hefði
samt viljað spila meira. Þetta er allt-
af svona, maður vill alltaf gera
miklu betur. Ég er samt ánægð með
þetta fyrsta skref í atvinnu-
mennsku,“ sagði hún og bætti við að
leikirnir í Frakklandi væru töluvert
erfiðari en heima á Íslandi. „Alveg
töluvert. Það er fullt af heimsklassa-
leikmönnum í deildinni og sterk lið.
Það er öðruvísi að spila þessa leiki,
en mér finnst það geggjað og mikil
áskorun. Maður þarf að aðlagast því
og taka skref fram á við.“
Hanna hefur lengi verið á meðal
bestu leikmanna íslensku deildar-
innar og varð m.a. markahæsti leik-
maður Olísdeildarinnar árin 2015 og
2017. Er hún 24 ára gömul og hafði
hug á að fara í atvinnumennsku
fyrr, en krossbandsslit í hné árið
2017 komu í veg fyrir það. „Ég var
með nokkra möguleika á að komast
út þá en ákvað að vera frekar heima
þegar þessi meiðsli komu upp,“ rifj-
ar hún upp. „Það fer heilt ár í að
jafna sig á svona meiðslum, svo ég
ákvað að einbeita mér að háskóla-
náminu sem ég hef verið í meðfram
boltanum.“
Meiðslin voru erfið andlega
Hrafnhildur Hanna lék eitt tíma-
bil heima með Selfossi eftir að hún
jafnaði sig á meiðslunum og hélt svo
út. „Ég fann enn þá fyrir meiðsl-
unum þetta tímabil sem ég var
heima. Það voru meiðsli sem voru
tengd krossbandsmeiðslunum. Þessi
meiðslapakki fylgir íþróttunum
stundum, því miður. Ég var hins
vegar ákveðin í að prófa atvinnu-
mennskuna, það hefur alltaf verið
draumurinn og það hætti aldrei.
Auðvitað voru þessi meiðsli oft á tíð-
um erfið andlega. Það var erfitt að
vera út úr handboltanum í svona
langan tíma og endurhæfingin geng-
ur ekki alltaf glimrandi vel. Maður
þarf að styrkja sig andlega til að
komast í gegnum það og komast
áfram í þessu öllu saman,“ sagði
Hrafnhildur Hanna.
Hrafnhildur Hanna er hætt hjá Bourg-de-Péage þrátt fyrir gott tímabil í Frakklandi
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Landsliðið Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir hefur skorað 66 mörk í 34 landsleikjum Íslands og á hér í höggi við
Paulinu Coatanea, leikmann Brest Bretagne, í leik Íslands og Frakklands í undankeppni EM síðasta haust.
ÍÞRÓTTIR 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2020
Sjálfsagt voru blendin við-
brögð í handboltahreyfingunni á
Íslandi við tíðindum gærdagsins.
Enda voru þau þess eðlis. Karla-
landsliðið er komið á HM en
kvennalandsliðið, sem er í upp-
byggingarferli undir stjórn nýs
þjálfara, missir hins vegar af
fjórum mótsleikjum.
Tvö lið sem eru Íslendingalið
eins og er komast í úrslitahelgi
Meistaradeildarinnar en tvö
önnur misstu af möguleikanum
á því að komast þangað.
Valsmenn missa af því að
leika í átta liða úrslitum Áskor-
endabikars Evrópu. Leikmenn-
irnir eru sjálfsagt vonsviknir en
á hinn bóginn hefði væntanlega
verið dýrt fyrir Valsmenn að
halda meistaraflokknum gang-
andi þar til í lok júní fyrir fáa
leiki og engar tekjur.
Þessi niðurstaða er skiljanleg.
Óvissuþættirnir varðandi það
hvernig veiran mun leika þjóðir
heimsins eru margir. Hvenær fer
fólk að ferðast á milli landa?
Hversu misjafnlega verða þjóð-
irnar staddar í baráttunni? Þar
af leiðandi var tímabært að taka
þessa ákvörðun og láta sumarið
eiga sig varðandi boltaleiki. Fólk
hefur mikilvægari hluti að glíma
við eins og við vitum.
Eins og mörgum öðrum finnst
mér furðuleg tilhugsun að
Meistaradeildinni ljúki þegar
næsta tímabil er hálfnað. Einn
besti leikmaður heims, Sander
Sagosen, verður til að mynda
búinn að hafa félagaskipti. Hann
verður orðinn leikmaður Kiel og
farinn frá Paris St. Germain.
Bæði þessi lið eru á meðal
þeirra fjögurra sem fá að
óbreyttu að berjast um Evr-
ópumeistaratitilinn. Annar sem
hjálpað hefur París að komast í
undanúrslitin, Guðjón Valur Sig-
urðsson, er einnig á förum að
manni heyrist.
BAKVÖRÐUR
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Kvennalandslið Íslands í handknatt-
leik spilar ekki meira í undankeppni
Evrópumótsins en EHF, Evrópska
handknattleikssambandið, ákvað í
gær að aflýsa því sem eftir var af
henni. Ísland var búið með tvo leiki í
keppninni, tapaði fyrir Króatíu á úti-
velli og Frakklandi á heimavelli í
haust, en átti að mæta Tyrkjum tví-
vegis og síðan Króatíu og Frakk-
landi á ný í vor og sumar. EHF til-
kynnti að niðurstaðan á EM 2018
myndi ráða því hvaða þjóðir leika á
EM 2020 sem fer fram í desember í
Noregi og Danmörku.
Undankeppni
EM felld niður
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
EM Leikurinn við Frakka í haust
reyndist ekki skipta máli.
Keppni í hollenskum fótbolta er
lokið á tímabilinu og verður ekkert
lið krýnt meistari og ekkert lið
fellur. Þá fer ekkert lið upp úr B-
deildinni. Ajax og AZ Alkmaar voru
jöfn í tveimur efstu sætum A-
deildarinnar með 56 stig, en Albert
Guðmundsson leikur með AZ
Alkmaar. Þá leikur Elías Már Óm-
arsson með Excelsior í B-deildinni,
en liðið var í sjöunda sæti.
Anna Björk Kristjánsdóttir er
svo leikmaður PSV, sem var með
sjö stiga forskot á Ajax á toppnum í
efstu deild í kvennaflokki.
Fótboltanum
aflýst í Hollandi
Ljósmynd/AZ Alkmaar
Holland Albert Guðmundsson leik-
ur með AZ Alkmaar í Hollandi.
Knattspyrnu-
samband Íslands
á von á nálægt
100 milljón króna
greiðslu frá Al-
þjóða knatt-
spyrnusamband-
inu, FIFA. FIFA
tilkynnti í gær að
allar greiðslur til
211 aðildarþjóða
sinna fyrir árin
2019 og 2020 yrðu afhentar þeim á
næstu dögum sem fyrsta skrefið í
aðstoð til knattspyrnusamfélagsins í
heiminum vegna áfalla af völdum
kórónuveirunnar. Samtals verður
120 milljónum punda, eða 21,8 millj-
örðum króna, dreift á þjóðirnar 211
og tekið er fram í yfirlýsingu FIFA
að lágmarksgreiðsla þar sé 400 þús-
und pund, eða um 72 milljónir króna.
Það má því áætla að hlutur KSÍ sé
einhvers staðar nálægt 100 milljón-
unum. „Farsóttin hefur í för með sér
fordæmalausar áskoranir fyrir allt
knattspyrnusamfélagið og það er
skylda FIFA sem heimssambands
að vera til staðar og styðja þá sem
standa frammi fyrir stórum vanda-
málum,“ sagði Gianni Infantino, for-
seti FIFA. Hann sagði að þetta væri
fyrsta skrefið í stórtækri áætlun
sem verið væri að skipuleggja til að
bregðast við ástandinu í heims-
fótboltanum.
KSÍ fær um
100 milljónir
frá FIFA
Gianni
Infantino