Morgunblaðið - 25.04.2020, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 25.04.2020, Qupperneq 35
Bæjarlistamaður Ásdís Arnardóttir sellóleikari. Ásdís Arnardóttir sellóleikari er bæjarlistamaður Akureyrar árið 2020 en það var tilkynnt á Vor- komu Akureyrarstofu, þar sem veittar voru ýmsar viðurkenningar. Ásdís stundaði tónlistarnám við Tónlistarskólana í Reykjavík og á Seltjarnarnesi, og svo Barcelona og Boston. Undanfarin fjórtán ár hef- ur hún búið og starfað á Norður- landi. Hún kennir, stjórnar strengjasveitum og hefur umsjón með kammertónlist í tónlistar- skólum. Hún hefur verið leiðandi sellóleikari í Sinfóníuhljómsveit Norðurlands þennan tíma. Auk þess hefur hún tekið þátt í fjöl- mörgum viðburðum. Á starfslauna- tímabilinu hyggst Ásdís meðal ann- ars minnast þess að 250 ár eru liðin frá fæðingu tónskáldsins Ludwigs van Beethoven og spila fyrir yngri jafnt sem eldri íbúa bæjarins. Heiðursviðurkenningu hlaut Gestur Einar Jónasson fyrir störf sín að menningarmálum. Hann var í hópi fyrstu leikara sem voru ráðnir á fastan samning hjá Leikfélagi Akureyrar árið 1973. Gestur hefur einnig leikið í kvikmyndum og var safnstjóri Flugsafns Íslands frá árinu 2008 til síðustu áramóta og vann þar að uppbyggingu safnsins sem varðveitir mikilvæga atvinnu- og menningarsögu. Þá hlaut Snorri Guðvarðsson málarameistari viðurkenningu Húsverndarsjóðs Akureyrar fyrir ævistarf sitt á sviði húsverndar á Ís- landi. Sérsvið Snorra er innanhúss- málun á friðlýstum og friðuðum kirkjum og húsum. Ásdís Arnardóttir bæjarlistamaður Akureyrar og Gestur Einar heiðraður MENNING 35 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2020 Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir, dag- skrárgerðarmaður á Rás 2, var beðin að mæla með listaverkum, afþrey- ingu og dægradvöl nú á tímum samkomubanns. „Samkomubann, lítil viðvera í vinnu og meiri við tölvuna heima. Allt hefur þetta kallað á að nýta tímann, leika sér og njóta. Var því einstaklega ánægð þegar ég datt niður á frábæra þætti á Netflix. Unorthodox eru fjórir þýsk-amerískir þættir um 19 ára stúlku í New York. Hún er gift sam- kvæmt hefðum bókstafstrúaðra gyð- inga í Williamsburg, litlu hverfi innan Brooklyn í borginni. Þættirnir eru að mestu á jiddísku. Afar áhugavert er að gægjast inn í þetta fastmótaða samfélag í þessari nútímaborg og sjá hana brjótast út úr því. Ástarsaga sem gefur svo miklu meira en tímann sem tekur að horfa á hana. Svo fá þættirnir dúndureinkunn eða 8,2 á IMDb-kvikmyndavefnum. Morgnarnir eru eðalstundin, hvort sem ég er í útsendingu í Morgunþætti Rásar 1 og 2 eða heima. Vakna fyrir allar aldir. Heima leyfi ég mér að fylgjast með hugleiðslum Guðna Gunnarssonar hjá Rope Yoga- setrinu. Hann streymir beint klukkan sjö á morgnana á Facebook og hægt að finna upptökurnar á eftir. Listin er allsráðandi í orðaforða hans. Hann hefur krufið merkinguna og snúið svo við skiljum betur gryfjurnar og gildismatið sem við höfum innmúrað í málið. Bókin hans Máttur hjartans liggur í gluggakistunni við rúmið mitt, tek eina og eina síðu nú þegar ég kemst ekki í jógatímana, sem eru restart-takkinn á kollinum mínum. Þegar algjört eirðarleysi grípur mig á þessum kórónutíma, nú eða öðrum, finnst mér frábært að fletta í gegnum vefverslanir og sjá hvað er í boði. Listverkauppboð Gallerís Fold- ar eru einstök skemmtun. Hef mjög gaman af því að henda inn einu og einu tilboði í verk sem ég hef aldrei séð. Maður veit aldrei. Nú hangir ofna listaverkið „Landslag“ eftir Brittu Erixon uppi í stofunni minni. Hélt þetta væri málverk. Toppflott. Mælt með í samkomubanni Úr Orthodox Þættirnir segja af 19 ára stúlku sem er gefin manni samkvæmt hefðum bókstafstrúaðra gyðinga í Williamsburg í Brooklyn í́ New York. Áhugaverðir þættir á jiddísku Á söguslóðum Gunnhildur tekur sjálfu á salerni staðarins sem J.K. Rowling notaði þegar hún skrifaði eina Harry Potter-bókanna í Edin- borg eða svo var Gunnhildi sagt. Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Krísan sem hófst innan Sænsku aka- demíunnar í árslok 2017 hefur nú leitt til alvarlegrar krísu innan Dönsku akademíunnar með þeim afleiðingum að fjórir meðlimir hafa sagt sig frá störfum í henni. Fjallað var fyrst um málið í danska dagblaðinu Inform- ation, en aðrir danskir miðlar sýna málinu mikinn áhuga. Danska akademían var stofnuð 1960 með það að markmiði að efla danska tungu og bókmenntir. Í því skyni veitir stofnunin meðal annars fjölda verðlauna árlega á sviði bók- mennta sem þykja sum hver þau virt- ustu þar í landi. Einn stofnenda var Karen Blixen og að hennar ósk fara fundir ávallt fram í húsakynnum hennar í Rungstedlund einu sinni í mánuði, þar sem í dag er rekið safn um skáldkonuna sem lést 1962. Með- limir geta mest orðið 20 talsins og eru, líkt og hjá systurstofnuninni í Svíþjóð, valdir fyrir lífstíð. Stidsen varði vin sinn Engdahl Þegar krísa Sænsku akademíunnar stóð sem hæst árið 2018 hóf Marianne Stidsen, lektor við Kaupmanna- hafnarháskóla sem verið hefur með- limur frá 2014, að skrifa greinar og veita viðtöl til varnar vini sínum Horace Engdahl, sem setið hefur í Sænsku akademíunni frá 1997, og barðist ötullega fyrir hagsmunum hjónanna Jean-Claude Arnault og Katarinu Frostenson, sem sat í Sænsku akademíunni 1992-2019. Eins og kunnugt er snerist krísan innan Sænsku akademíunnar um það hvern- ig taka skyldi á þeim ásökunum að Arnault hefði áratugum saman brotið kynferðislega á konum (en hann var 2018 dæmdur í fangelsi fyrir tvær nauðganir), lekið nöfnum komandi Nóbelsverðlaunahafa og átt óeðlileg fjárhagsleg tengsl við Sænsku aka- demíuna í gegnum eiginkonu sína. Stidsen óskaði eftir því að vinur henn- ar fengi að kynna sjónarmið sín í mál- inu á fundi hjá Dönsku akademíunni, en því var hafnað. Í innleggjum sínum kynnti Stidsen sig ávallt sem meðlim í Dönsku akademíunni og þótti ýmsum innan stofnunarinnar að hún væri með því að misnota Dönsku akademíuna til að auka þunga orða sinna. Stidsen hefur ráðist harkalega á femínista og uppnefnt þá „femínasista“. Í aðsendri grein sem birtist í Berlingske 21. október sl. líkti hún #MeToo-- hreyfingunni við „hryðjuverka- samtök“ og hvatti til þess að #MeToo- aktivistar yrðu sóttir til saka fyrir „hryðjuverk“ sín. Konur þurfa bara að segja nei Kornið sem virðist hafa fyllt mæl- inn er aðsend grein Stidsen sem birt- ist í Politiken 28. febrúar sl. þar sem hún réðst harkalega á fyrirliggjandi tillögu dönsku ríkisstjórnarinnar um að breyta hegningarlögum á þá leið að nauðgun sé skilgreind út frá skorti á samþykki. Þar gaf hún lítið fyrir þær skýringar að konur gætu frosið af hræðslu og sagði það einfaldlega á þeirra ábyrgð að segja „nei takk“ ef þær vildu ekki taka þátt í kynmökum. Tók hún fram að það væri engin ástæða til að breyta lögum heldur uppeldisaðferðum ef konur gætu ekki sagt nei. Í sömu grein varaði hún einn- ig við því sem hún nefndi „masisma“ sem væri nýtt form af „mæðraveldis- sósíalisma“. Rúmri viku síðar, þ.e. 8. mars, sendu átta meðlimir Dönsku akademíunnar Stidsen sameiginlegan tölvupóst þar sem þau skoruðu á hana að draga sig út úr störfum stofnunar- innar, sem hún neitaði. Póstsamskipt- unum var í framhaldinu lekið til Weekendavisen sem birti bréfin við lítinn fögnuð Sørens Ulriks Thomsen, ritara Dönsku akademíunnar, enda er það brottrekstrarsök að rjúfa þann trúnað sem ríkir um störf stofnunar- innar. Í seinustu viku tilkynntu síðan fjórir meðlimir Dönsku akademíunnar að þeir væru hættir störfum, en það mun ekki hafa gerst áður í sögu stofn- unarinnar. Eitrað andrúmsloft Ein þeirra sem völdu að hætta er Suzanne Brøgger sem verið hefur meðlimur Dönsku akademíunnar síð- an 1997. Í skriflegu svari til Inform- ation segist hún ósátt við hvernig Danska akademían hafi verið misnot- uð í pólitískum og hugmyndafræðileg- um tilgangi sem eitrað hafi andrúms- loftið og spillt vinnufundum. Tekur hún fram að ótækt sé að þau sem ekki sætti sig við kynferðisofbeldi séu upp- nefnd „masismar“ með vísan í nas- isma. Segir hún Dönsku akademíuna hafa liðið fyrir fráleitar yfirlýsingar Stidsen og hún sjái sig því tilneydda til að hætta störfum í mótmælaskyni. Weekendavisen hefur eftir Thom- sen að hann undrist það að áttmenn- ingarnir hafi ekki svarað ummælum Stidsen á opinberum vettvangi áður en þau reyndu að bola henni frá störf- um. Brøgger hafnar þessu í Politiken og segir engan geta gert kröfu um að honum sé svarað opinberlega. „Við erum skilgreind út frá þeim málefnum sem við tökum þátt í ritdeilu um. Af þeim sökum hef ég ávallt haldið mig frá slíkum deilum,“ segir Brøgger. Danska akademían lent í djúpri krísu Suzanne Brøgger  Fjórir meðlimir hættir vegna óánægju með þann fimmta Søren Ulrik Thomsen Marianne Stidsen Horace Engdahl Kaja organic, Kalmansvellir 3, kajaorganic.com, kajaorganic@gmail.com Byggmjólk Eina íslenska jurtamjólkin Sölustaðir: Hagkaup, Fjarðarkaup, Melabúðin, Vegan búðin Fiskkompaní, Frú Lauga, Brauðhúsið og Matarbúr Kaju á Akranesi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.