Morgunblaðið - 25.04.2020, Side 36
36 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2020
AF KVIKMYNDUM
Brynja Hjálmsdóttir
hjalmsdottir@gmail.com
Söngvamyndir hafa alltaf veriðumdeildar, fólk ýmist elskareða hatar söngleiki. Þó hafa
allir, jafnt almenningur sem gagn-
rýnendur, keppst við að ausa yfir
myndina Cats óhróðri. Nokkrir
málsmetandi einstaklingar fjölluðu
t.a.m. um hana í Lestarklefanum á
Rás 1 fyrir skömmu og þar féllu um-
mæli á borð við: „Þetta er bara sið-
rof“, „Mér fannst þetta ógeðsleg
mynd“ og „Ég vildi eiginlega bara
leggjast undir sæng og gleyma þess-
um klukkustundum sem var stolið af
mér og ég fæ aldrei aftur“.
Af hverju kettir?
Kvikmynda- og poppkúltúr-
fræðingurinn Lindsey Ellis fór í
saumana á Cats á Youtube-rás sinni
nýverið í klukkutímalöngu mynd-
bandi sem heitir einfaldlega „Why is
Cats?“ Í því segir hún m.a. frá því
hvernig upprunalegi söngleikurinn
varð til. Höfundur hans, Andrew
Lloyd Webber, fékk þá flugu í höf-
uðið að gaman væri að semja verk
sem byggðist á glettnu ljóðasafni um
ketti eftir T.S. Eliot, sem hann las
sundur og saman í barnæsku. Þar
sem stykkið byggist á ljóðasafni án
línulegrar framvindu hefur söng-
leikurinn ekki venjulegan söguþráð.
Það er engin aðalpersóna og sagan
er í raun samsafn allskonar atriða
frekar en línuleg atburðarás. Vegna
þessa þurfti Webber, sem hafði feiki-
lega sterkt orðspor eftir að hafa
samið fjöldann allan af gríðarlega
vinsælum söngleikjum, samt að berj-
ast með kjafti og klóm fyrir þessu
undarlega verkefni. Ekkert leikhús
vildi sýna það, honum gekk illa að fá
fjármagn og endaði á að þurfa að
kosta verkefnið sjálfur. Þetta var
sem sagt mikið ástríðuverkefni sem
borgaði sig þó á endanum, fólk
hreifst af búningunum, dönsunum
og sjónarspilinu og sýningin sló í
gegn.
Vandamál kvikmyndarinnar
Cats eru mörg; leikaravalið, leik-
stjórnin, brellurnar, handritið, allt
er þetta skelfilegt. Lindsey Ellis tel-
ur að stærsta vandamál myndar-
innar felist þó í undarlegri meðferð
á efniviðnum og í raun algjörum
misskilningi á ætlunarverki stykk-
isins. Hér er kosið að skapa söngleik
með Hollywood-legri framvindu og
miklu skemmtanagildi en jafnframt
er kosið að gera myndina í raunsæis-
legum stíl. Hún telur að raunsæis-
leiðin sé farin af því að
aðstandendur myndarinnar von-
uðust til þess að hún gerði það gott á
Óskarverðlaununum, þar sem
raunsæislegum myndum hefur
vegnað betur í gegnum tíðina. Með
því að reyna að samræma tvö ósam-
ræmanleg markmið – að gera
söngvaskemmtun um ketti sem er
samt raunsæisleg – skjóta aðstand-
endur Cats sig í báða fætur og
myndin verður hvorugt. Niður-
staðan er eitt allsherjarlestarslys.
Allt í plati
Söngleikurinn er upprunninn í
leikhúsi og þar er hans raunveru-
lega heimili. Hann tengist auðvitað
óperuforminu en munurinn er sá að
í óperum er sungið nánast allan tím-
ann en í söngleikjum er leikinn texti
brotinn upp með söngatriðum. Eftir
að talmyndir komu til sögunnar
urðu söngvamyndir ein vinsælasta
kvikmyndagrein í heiminum, jafnt í
klassísku Hollywood sem og í öðrum
löndum.
Kvikmyndin er í eðli sínu
raunsæislegra form en leikhúsið.
Þótt miðillinn sé ekki spegill raun-
veruleikans þá lítur kvikmyndin
meira út eins og gluggi inn í veru-
leikann en leikhús. Leikhúsið er
„óraunverulegra“ rými, leik-
húsgestur þarf að setja sig í
ákveðnar stellingar til að geta tekið
á móti trúverðugleika miðilsins, og
samþykkja að taka þátt í sögunni
þótt hann viti að leikmyndin og leik-
ararnir séu bara plat. Söngleikir
spegla ekki veruleikann nema síður
sé, það brestur enginn í söng og
dans í raunveruleikanum, en áhorf-
endur eru ekki í miklum vandræðum
með að samþykkja þessa u-beygju
frá hversdagsleikanum þegar þeir
eru í leikhúsi því þeir eru nú þegar
búnir að gangast lögmálum leik-
hússins á band. Vegna þessa minntu
fyrstu kvikmyndasöngleikirnir frek-
ar á leikhús en venjulega kvikmynd,
söng- og dansatriði voru oft tekin
upp á settum sem minntu á leiksvið
og myndavélin sat kyrr, líkt og kyrr-
stæður áhorfandi í sal.
Söngvamyndin hefur vaxið og
þroskast síðan þá en meginreglan er
sú að söngvamyndir sem taka sig
ekki of alvarlega og leyfa sér að
virða lögmál veruleikans að vettugi
eru einfaldlega betri bíómyndir. Í
þessu samhengi er áhugavert að
bera saman tvær nýlegar myndir,
La La Land (2016) og Mamma Mia
(2008).
La La Land er eins konar óður
til klassískra Hollywood-söngleikja
eins og Singin’ in the Rain, þó með
nútímalegum brag. Þau atriði sem
minna mest á hefðbundna stílinn eru
langbestu atriðin en þegar myndin
fer að daðra við raunsæið verður
hún hallærisleg. Myndin fékk al-
mennt góða dóma en hún var alls
ekki óumdeild. Hún hreppti líka
nokkur Óskarsverðlaun, þó ekki
aðalverðlaunin, þótt nafn mynd-
arinnar hafi verið lesið upp fyrir
misskilning eins og frægt er orðið.
Mamma Mia er dans- og söngva-
sprengja þar sem allt raunsæi er
sent lönd og leið. Myndin fékk engin
Óskarsverðlaun, sennilega þótti hún
of flippuð til að falla að Óskars-
staðlinum, en hún fékk reyndar
Golden Globe-verðlaun í flokki gam-
an- og söngvamynda. Hún fékk á
heildina litið mjög slappa dóma en
varð engu að síður gríðarlega vinsæl
og halaði t.d. inn töluvert meiri
tekjur en La La Land. Þetta má vera
til marks um að Mamma Mia falli
betur að kröfum áhorfenda þegar
kemur að söngleikjum.
Teiknaði söngleikurinn
Disney-samsteypan byrjaði
snemma að tileinka sér söngleikja-
formið í teiknimyndum sínum með
góðum árangri, þar sem teikni-
myndaheimurinn er líka fantasíu-
heimur. Eftir því sem leið á 20. öld-
ina fóru vinsældir leiknu söngva-
myndarinnar dvínandi en teiknaðir
söngleikir létu engan bilbug á sér
finna. Raunar er tíundi áratugurinn
oft kallaður „gullöld Disney“, sem
sendi þá frá sér sígildar myndir á
borð við Konung ljónanna, Aladdín,
Pocahontas og Hringjarann í Notre
Dame.
Nú hefur Disney tekið þá
hættulegu stefnu að gera leiknar út-
gáfur af þessum gullaldarmyndum
og þar með bæta óþarfa raunsæi inn
í formúlu sem virkar. Auðvitað er
haldið í einhverja töfra, myndirnar
eru ennþá að miklu leyti teiknaðar í
tölvum. Hin ofurraunverulega tölvu-
teiknaða mynd býður samt ekki upp
á sömu endalausu möguleika og
hefðbundið teiknimyndaform. Þar
að auki er mun meiri hætta á að falla
niður í ókennileikadalinn (e. un-
canny valley) en í þann dal falla fyr-
irbæri sem eru skuggalega lík
mönnum en eru samt einhvern veg-
inn ekki alveg mennsk. Þann dal
féllu mannkettirnir í Cats til dæmis
allharkalega ofan í.
Að sjálfsögðu eru þessar mynd-
ir vinsælar, þær reiða sig á að aðdá-
endur upprunalegu myndanna
kaupi sér miða til að fóðra nostalg-
íuna. Það er svakalegt hvað þessar
myndir skapa mikil auðæfi, nýja
Aladdín-myndin græddi til dæmis
meira en milljarð bandaríkjadala í
miðasölu á heimsvísu og hinn nýi
Konungur ljónanna 1,7 milljarða.
Þetta eru ótrúlegar tölur!
Þótt ég hafi engin gögn því til
stuðnings langar mig samt að full-
yrða að þrátt fyrir vinsældir þessara
endurvinnslumynda séu flestir sam-
mála um að upprunulegu myndirnar
séu miklu betri.
Horft til framtíðar
Áðurnefnd Lindsey Ellis bendir
á einn ljósan punkt í öllu Cats-
kjaftæðinu, sem er að kannski muni
afhroðið sem myndin galt verða til
þess að binda enda á þessa tegund
kvikmynda. Hún segir að við getum
leyft okkur að vona að Hollywood
láti sér þetta að kenningu verða og
hætti í eitt skipti fyrir öll að blanda
saman þessum ósamræmanlegu
fagurfræðilegu stefnum, að raunsæ-
ishneigðir kvikmyndagerðarmenn
láti söngleikinn í friði og leyfi hon-
um að leika lausum hala í griðlandi
ævintýraheimsins. Miðað við töl-
urnar er reyndar er ólíklegt að Disn-
ey hætti endurvinnsluframleiðslu
sinni í bráð, ekki á meðan þær spúa
milljörðum í vasa fyrirtækisins.
Látið ævintýrin í friði
Hötuð Fáar söngvamyndir hafa uppskorið annað eins hatur og Cats sem
kom út í fyrra. Hér má sjá enska leikarann Idris Elba í kattarlíki.
Bomba Mamma Mia er dans- og söngvasprengja og laus við allt raunsæi. Líkt og Cats er hún kvikmynduð útgáfa
af gríðarvinsælum söngleik sem skrifaður var út frá sígrænum smellum sænsku poppsveitarinnar ABBA.
» Söngvamyndinhefur vaxið og
þroskast síðan þá en
meginreglan er sú að
söngvamyndir sem taka
sig ekki of alvarlega og
leyfa sér að virða lögmál
veruleikans að vettugi
eru einfaldlega betri
bíómyndir.
Söngvamyndir eru umræðuefni
nýjasta þáttar kvikmyndahlað-
varpsins BÍÓ á mbl.is.
Heilsaðu upp á Maríu á blarapril.is
Hún er einhverf og hefur frá ýmsu að segja
Það er bara best að kynnast
mér til að skilja mig betur