Morgunblaðið - 25.04.2020, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 25.04.2020, Qupperneq 36
36 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2020 AF KVIKMYNDUM Brynja Hjálmsdóttir hjalmsdottir@gmail.com Söngvamyndir hafa alltaf veriðumdeildar, fólk ýmist elskareða hatar söngleiki. Þó hafa allir, jafnt almenningur sem gagn- rýnendur, keppst við að ausa yfir myndina Cats óhróðri. Nokkrir málsmetandi einstaklingar fjölluðu t.a.m. um hana í Lestarklefanum á Rás 1 fyrir skömmu og þar féllu um- mæli á borð við: „Þetta er bara sið- rof“, „Mér fannst þetta ógeðsleg mynd“ og „Ég vildi eiginlega bara leggjast undir sæng og gleyma þess- um klukkustundum sem var stolið af mér og ég fæ aldrei aftur“. Af hverju kettir? Kvikmynda- og poppkúltúr- fræðingurinn Lindsey Ellis fór í saumana á Cats á Youtube-rás sinni nýverið í klukkutímalöngu mynd- bandi sem heitir einfaldlega „Why is Cats?“ Í því segir hún m.a. frá því hvernig upprunalegi söngleikurinn varð til. Höfundur hans, Andrew Lloyd Webber, fékk þá flugu í höf- uðið að gaman væri að semja verk sem byggðist á glettnu ljóðasafni um ketti eftir T.S. Eliot, sem hann las sundur og saman í barnæsku. Þar sem stykkið byggist á ljóðasafni án línulegrar framvindu hefur söng- leikurinn ekki venjulegan söguþráð. Það er engin aðalpersóna og sagan er í raun samsafn allskonar atriða frekar en línuleg atburðarás. Vegna þessa þurfti Webber, sem hafði feiki- lega sterkt orðspor eftir að hafa samið fjöldann allan af gríðarlega vinsælum söngleikjum, samt að berj- ast með kjafti og klóm fyrir þessu undarlega verkefni. Ekkert leikhús vildi sýna það, honum gekk illa að fá fjármagn og endaði á að þurfa að kosta verkefnið sjálfur. Þetta var sem sagt mikið ástríðuverkefni sem borgaði sig þó á endanum, fólk hreifst af búningunum, dönsunum og sjónarspilinu og sýningin sló í gegn. Vandamál kvikmyndarinnar Cats eru mörg; leikaravalið, leik- stjórnin, brellurnar, handritið, allt er þetta skelfilegt. Lindsey Ellis tel- ur að stærsta vandamál myndar- innar felist þó í undarlegri meðferð á efniviðnum og í raun algjörum misskilningi á ætlunarverki stykk- isins. Hér er kosið að skapa söngleik með Hollywood-legri framvindu og miklu skemmtanagildi en jafnframt er kosið að gera myndina í raunsæis- legum stíl. Hún telur að raunsæis- leiðin sé farin af því að aðstandendur myndarinnar von- uðust til þess að hún gerði það gott á Óskarverðlaununum, þar sem raunsæislegum myndum hefur vegnað betur í gegnum tíðina. Með því að reyna að samræma tvö ósam- ræmanleg markmið – að gera söngvaskemmtun um ketti sem er samt raunsæisleg – skjóta aðstand- endur Cats sig í báða fætur og myndin verður hvorugt. Niður- staðan er eitt allsherjarlestarslys. Allt í plati Söngleikurinn er upprunninn í leikhúsi og þar er hans raunveru- lega heimili. Hann tengist auðvitað óperuforminu en munurinn er sá að í óperum er sungið nánast allan tím- ann en í söngleikjum er leikinn texti brotinn upp með söngatriðum. Eftir að talmyndir komu til sögunnar urðu söngvamyndir ein vinsælasta kvikmyndagrein í heiminum, jafnt í klassísku Hollywood sem og í öðrum löndum. Kvikmyndin er í eðli sínu raunsæislegra form en leikhúsið. Þótt miðillinn sé ekki spegill raun- veruleikans þá lítur kvikmyndin meira út eins og gluggi inn í veru- leikann en leikhús. Leikhúsið er „óraunverulegra“ rými, leik- húsgestur þarf að setja sig í ákveðnar stellingar til að geta tekið á móti trúverðugleika miðilsins, og samþykkja að taka þátt í sögunni þótt hann viti að leikmyndin og leik- ararnir séu bara plat. Söngleikir spegla ekki veruleikann nema síður sé, það brestur enginn í söng og dans í raunveruleikanum, en áhorf- endur eru ekki í miklum vandræðum með að samþykkja þessa u-beygju frá hversdagsleikanum þegar þeir eru í leikhúsi því þeir eru nú þegar búnir að gangast lögmálum leik- hússins á band. Vegna þessa minntu fyrstu kvikmyndasöngleikirnir frek- ar á leikhús en venjulega kvikmynd, söng- og dansatriði voru oft tekin upp á settum sem minntu á leiksvið og myndavélin sat kyrr, líkt og kyrr- stæður áhorfandi í sal. Söngvamyndin hefur vaxið og þroskast síðan þá en meginreglan er sú að söngvamyndir sem taka sig ekki of alvarlega og leyfa sér að virða lögmál veruleikans að vettugi eru einfaldlega betri bíómyndir. Í þessu samhengi er áhugavert að bera saman tvær nýlegar myndir, La La Land (2016) og Mamma Mia (2008). La La Land er eins konar óður til klassískra Hollywood-söngleikja eins og Singin’ in the Rain, þó með nútímalegum brag. Þau atriði sem minna mest á hefðbundna stílinn eru langbestu atriðin en þegar myndin fer að daðra við raunsæið verður hún hallærisleg. Myndin fékk al- mennt góða dóma en hún var alls ekki óumdeild. Hún hreppti líka nokkur Óskarsverðlaun, þó ekki aðalverðlaunin, þótt nafn mynd- arinnar hafi verið lesið upp fyrir misskilning eins og frægt er orðið. Mamma Mia er dans- og söngva- sprengja þar sem allt raunsæi er sent lönd og leið. Myndin fékk engin Óskarsverðlaun, sennilega þótti hún of flippuð til að falla að Óskars- staðlinum, en hún fékk reyndar Golden Globe-verðlaun í flokki gam- an- og söngvamynda. Hún fékk á heildina litið mjög slappa dóma en varð engu að síður gríðarlega vinsæl og halaði t.d. inn töluvert meiri tekjur en La La Land. Þetta má vera til marks um að Mamma Mia falli betur að kröfum áhorfenda þegar kemur að söngleikjum. Teiknaði söngleikurinn Disney-samsteypan byrjaði snemma að tileinka sér söngleikja- formið í teiknimyndum sínum með góðum árangri, þar sem teikni- myndaheimurinn er líka fantasíu- heimur. Eftir því sem leið á 20. öld- ina fóru vinsældir leiknu söngva- myndarinnar dvínandi en teiknaðir söngleikir létu engan bilbug á sér finna. Raunar er tíundi áratugurinn oft kallaður „gullöld Disney“, sem sendi þá frá sér sígildar myndir á borð við Konung ljónanna, Aladdín, Pocahontas og Hringjarann í Notre Dame. Nú hefur Disney tekið þá hættulegu stefnu að gera leiknar út- gáfur af þessum gullaldarmyndum og þar með bæta óþarfa raunsæi inn í formúlu sem virkar. Auðvitað er haldið í einhverja töfra, myndirnar eru ennþá að miklu leyti teiknaðar í tölvum. Hin ofurraunverulega tölvu- teiknaða mynd býður samt ekki upp á sömu endalausu möguleika og hefðbundið teiknimyndaform. Þar að auki er mun meiri hætta á að falla niður í ókennileikadalinn (e. un- canny valley) en í þann dal falla fyr- irbæri sem eru skuggalega lík mönnum en eru samt einhvern veg- inn ekki alveg mennsk. Þann dal féllu mannkettirnir í Cats til dæmis allharkalega ofan í. Að sjálfsögðu eru þessar mynd- ir vinsælar, þær reiða sig á að aðdá- endur upprunalegu myndanna kaupi sér miða til að fóðra nostalg- íuna. Það er svakalegt hvað þessar myndir skapa mikil auðæfi, nýja Aladdín-myndin græddi til dæmis meira en milljarð bandaríkjadala í miðasölu á heimsvísu og hinn nýi Konungur ljónanna 1,7 milljarða. Þetta eru ótrúlegar tölur! Þótt ég hafi engin gögn því til stuðnings langar mig samt að full- yrða að þrátt fyrir vinsældir þessara endurvinnslumynda séu flestir sam- mála um að upprunulegu myndirnar séu miklu betri. Horft til framtíðar Áðurnefnd Lindsey Ellis bendir á einn ljósan punkt í öllu Cats- kjaftæðinu, sem er að kannski muni afhroðið sem myndin galt verða til þess að binda enda á þessa tegund kvikmynda. Hún segir að við getum leyft okkur að vona að Hollywood láti sér þetta að kenningu verða og hætti í eitt skipti fyrir öll að blanda saman þessum ósamræmanlegu fagurfræðilegu stefnum, að raunsæ- ishneigðir kvikmyndagerðarmenn láti söngleikinn í friði og leyfi hon- um að leika lausum hala í griðlandi ævintýraheimsins. Miðað við töl- urnar er reyndar er ólíklegt að Disn- ey hætti endurvinnsluframleiðslu sinni í bráð, ekki á meðan þær spúa milljörðum í vasa fyrirtækisins. Látið ævintýrin í friði Hötuð Fáar söngvamyndir hafa uppskorið annað eins hatur og Cats sem kom út í fyrra. Hér má sjá enska leikarann Idris Elba í kattarlíki. Bomba Mamma Mia er dans- og söngvasprengja og laus við allt raunsæi. Líkt og Cats er hún kvikmynduð útgáfa af gríðarvinsælum söngleik sem skrifaður var út frá sígrænum smellum sænsku poppsveitarinnar ABBA. » Söngvamyndinhefur vaxið og þroskast síðan þá en meginreglan er sú að söngvamyndir sem taka sig ekki of alvarlega og leyfa sér að virða lögmál veruleikans að vettugi eru einfaldlega betri bíómyndir. Söngvamyndir eru umræðuefni nýjasta þáttar kvikmyndahlað- varpsins BÍÓ á mbl.is. Heilsaðu upp á Maríu á blarapril.is Hún er einhverf og hefur frá ýmsu að segja Það er bara best að kynnast mér til að skilja mig betur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.