Morgunblaðið - 25.04.2020, Qupperneq 37
MENNING 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2020
Útrás öfgarokksins
hafa komist í álnir hjá stórum og
millistórum merkjum (að ekki sé
talað um hvernig svartþunga-
rokkssenan hérlendis er þræl-
tengd í tilkomumikuð net dreif-
ingar um Evrópu og Ameríku en
úttekt á því er önnur grein þó ég
nefni eitt slíkt dæmi hér í rest-
ina).
Une Misère, önnur íslensk
öfgarokkssveit, sem leggur upp
með bylmingsþungan og ástríðu-
fullan síðkjarna (post-hardcore),
gerði samning við Nuclear Blast í
ársbyrjun 2019 og fyrir okkur
sem fylgjumst temmilega með
þessum geira fór það ekki á milli
mála. Það munar nefnilega um
það að hafa stórfyrirtæki á bak
við sig – tja, ef það er með þig
ofarlega í áherslubunkanum.
Hörmungarsögur af því hvernig
bönd týnast í svona vélavirkjum
eru líka allt of tíðar.
En fleiri fréttir, og það til-
tölulega nýjar af nálinni: Svart-
þungarokkararnir í Helfró gerðu
samning við áðurnefnt Season of
Mist fyrir stuttu. Og fyrsta platan,
samnefnd sveitinni, kom reyndar
út í gær. Það sem ég hef heyrt
hingað til (þetta er skrifað er á
þriðjudegi) er einfaldlega frábært
(gaman líka að vita til þess að all-
ur heimurinn mun heyra orðin
„vonlaust helvíti“ ásamt fleiri
kjarnyrtum íslenskum orðum á
næstu vikum).
Önnur sveit sem ég held
nokkuð upp á er Nexion, en hún
spilar kolbrjálað keyrslurokk,
sveitt og hrátt. Sá hana á Húrra
einu sinni og hreifst af. Hún var
að gera samning við Avantgarde
music, eftir að Stephen Lockhart
mælti með henni. Lockhart er Íri
sem er búsettur hér og rekur Em-
issary-hljóðverið, stýrir Ascen-
cion-hátíðinni og hefur tekið upp
fjölda íslenskra svartþunga-
rokkssveita (hann rekur og eigin
sveit, Rebirth of Nefast). Að lok-
um vil ég tiltaka Nyrst í þessum
æsispennandi fréttapakka, sveit
sem er á mála hjá Dark Essence
Records í Bergen. Plata hennar,
Orsök, kom út í gær, líkt og plata
Helfróar. Nóg að gerast! Pistl-
inum er ekki ætlað að vera tæm-
andi, og ef einhver lumar á frétta-
skoti hvað svona starfsemi varðar,
sendið mér tölvupóst endilega.
» Það munar nefni-lega um það að hafa
stórfyrirtæki á bak við
sig – tja, ef það er með
þig ofarlega í áherslu-
bunkanum.
Nokkrar íslenskar
öfgarokkssveitir hafa
verið að landa útgáfu-
og dreifingarsamn-
ingum við stöndug er-
lend fyrirtæki að und-
anförnu. Hvað veldur?
Ljósmynd/Void Revelations
Sveitt Nexion spilar kolbrjálað keyrslurokk, sveitt og hrátt.
Fögnuður Meðlimir Cult
of Lilith ákváðu að fagna
þessum tímamótum með
nokkrum íburði.
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Þær gleðilegu fréttir bárust íenda síðasta mánaðar að ís-lenska þungarokks/
öfgarokkssveitin Cult of Lilith
hefði gert samning við Metal
Blade Records. Um stórfrétt er að
ræða, enda Metal Blade með
þekktari fyrirtækjum í þessum
geira. Stofnað 1982 í Bandaríkj-
unum og á mála hjá því hafa verið
stórsveitir á borð við Slayer,
Cannibal Corpse, King Diamond,
Amon Amarth, Behemoth, Sacred
Reich og Killswitch Engage svo
fátt eitt sé talið. Cult of Lilith,
sem var stofnuð 2015, spilar eins-
lags tækniskotið dauðarokk, mikil
keyrsla og skiptingar og var það
upptökumaðurinn Dave Otero
(Cattle Decapitation t.d.) sem kom
Ryan Williams, listamannatengli
Metal Blade í Bandaríkjunum og
„hæfileikaþefara“, á bragðið.
Williams heillaðist og gerði óðar
samning við piltana. Von er á
fyrstu plötunni síðar á þessu ári.
Undanfarin ár hafa íslenskar
sveitir af þessum toga verið að
gera viðlíka strandhögg. Svo ég
noti þungarokk sem regnhlífar-
hugtak núna, þá hafa Sólstafir,
Skálmöld og Vintage Caravan
t.a.m. allar gert útgáfusamninga
við merki af stærri gerðinni (Vin-
tage Caravan var á Nuclear Blast
en er nú hjá Napalm Records).
Þannig er hið virta Season of Mist
með nokkrar íslenskar sveitir á
sínum snærum og fleiri hljóm-
sveitir en þær sem ég hef nefnt
Ljósmynd/M. Flovent
Tónlistarmaðurinn Jónsi, Jón Þór
Birgisson, söngvari Sigur Rósar,
hefur sent frá sér fyrsta sólólagið í
áratug. Nefnist það „Exhale“ og
stjórnaði Jónsi upptökum ásamt
A.G. Cook. Samhliða útgáfu lagsins
frumsýndi Jónsi tónlistarmyndband
við lagið sem hann leikstýrði sjálfur
ásamt Giovanni Ribisi.
Fyrsta og eina sólóplata Jónsa,
Go, kom á markað fyrir tíu árum og
hlaut mikla athygli. Hreppti hún
meðal annars annars verðlaunin
Nordic Music Prize.
„Exhale“ hefst mjúklega, með
rödd Jónsa og lágstemmdum píanó-
leik. Hljóðgervlar bætast við píanó-
leikinn og lagið stigmagnast undir
söng Jónsa sem endurtekur „just
let it go now/ it isn’t your fault“
sem má túlka sem einhvers konar
stefnuyfirlýsingu eða leiðarstef fyr-
ir óútreiknanlegt lífið á 21. öldinni
– og jafnframt ástandið í samtím-
anum.
Í tónlistarmyndbandinu birtist
dansari undan svörtum plastdúk.
Eftir því sem lagið stigmagnast og
fleiri hljóðfæri og taktur bætast við
spegla hreyfingar dansarans tón-
listina á meðan efnisbútar úr dúkn-
um þyrlast upp og svífa í loftinu
eins og lauf í vindi.
Jónsi hefur frá upphafi ferils síns
skapað sér nafn með áhrifaríkum
tónsmíðum sem, eins og segir í til-
kynningu, „kafa djúpt ofan í mann-
lega vitund og kanna samband okk-
ar við náttúruna. Með Sigur Rós
tókst honum að umbreyta harð-
neskjulegu landslagi Íslands í tón-
list sem er bæði tær, lífræn og
ósnortin af nútímanum, þó svo að
hún lifi þar góðu lífi.“
Bent er á að hljóðheimur Cooks
geti „verið vélrænn, stundum
harkalegur og afar tilrauna-
kenndur“ en afraksturinn sé fal-
legur og dáleiðandi rödd Jónsa
ferðist á nýjar og ókunnugar slóðir.
Fyrr á þessu ári hélt Jónsi sína
fyrstu einkasýningu í Los Angeles-
útibúi hins virta myndlistargallerís
Tanya Bonakdar Gallery. Í innsetn-
ingum og skúlptúrum vann Jónsi
þar meðal annars með áhrif hljóðs á
fleiri skynfæri en eyrun.
Jónsi sendir frá sér fyrsta nýja
sólólagið í áratug auk myndbands
Andar út Jónsi á ljósmynd sem fylgir ný-
útgefna laginu, „Exhale“, úr hlaði.
DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is
GÆÐI OG ÞÆGINDI
SÍÐAN 1926
DUX 6006 - SVÆÐISMEÐFERÐ
Í örfáum einföldum skrefum geturðu sett upp rúmið þitt til að mæta þörfum þínum.