Fréttablaðið - 09.09.2020, Blaðsíða 14
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Björn Víglundsson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656,
Kollagenið frá Feel Iceland er mikið notað á mínu heimili og í raun af allri stórfjöl-
skyldunni sem er yfir sig hrifin af
árangrinum,“ segir Karitas María
Lárusdóttir, viðskiptafræðingur,
einkaþjálfari og kennari hjá World
Class.
Karitas byrjaði að bæta Feel
Iceland kollageni við morgun-
matinn fyrir um hálfu ári.
„Ég hafði þá heyrt um marg-
víslegan ávinning kollagens fyrir
heilsuna og vissi sem var að eftir 25
ára aldurinn fara birgðir kollagens
í líkamanum þverrandi. Ég fór því
að setja kollagen út í hafragrautinn
eða þeytinginn á morgnana, fyrst
vegna þess að það hefur yngjandi
áhrif á húðina en hitt kom svo
ánægjulega á óvart hvað liðheilsan
batnaði f ljótt sem og meltingin,“
segir Karitas sem átti áður við
stirðleika að stríða fyrst eftir að
hún vaknaði á morgnana.
„Ég fann nánast strax hversu
miklu fljótari ég var að jafna mig í
liðunum á morgnana. Ég vaknaði
ekki lengur stíf í fingrum og fótum
því sá stirðleiki beinlínis hvarf
eftir að ég fór að taka inn kollagen-
ið frá Feel Iceland,“ segir Karitas
um áþreifanlegan árangurinn.
„Ávinningurinn er eiginlega
undraverður því ég var oft lengi í
gang á morgnana en nú er engin
fyrirstaða lengur, liðirnir eru
mjúkir og sveigjanlegir. Ég er líka
mun fljótari að ná endurheimt
eftir æfingar. Ég kenni spinning
og var oft súr í lærunum eftir stífa
hjólatíma en nú finn ég ekki lengur
fyrir slíkri þreytu og get tekið
hörkuæfingu strax daginn eftir
eins og ekkert sé.“
Gaman að sjá árangur
Karitas hefur starfað við þjálfun
hjá World Class síðan 2009.
„Heilsa og hollt mataræði hefur
alltaf verið áhugamál hjá mér.
Þegar ég var lítil æfði ég fótbolta,
handbolta, ballett og dans og var
hvað lengst í handbolta þar sem
ég spilaði bæði með Gróttu og
Stjörnunni fram undir tvítugt.
Þá var ég orðin of mikil pæja fyrir
handboltann og fór í ræktina,“
Karitas María
vaknaði iðulega
stirð í fingrum
og fótum en
eftir að hún
fór að taka inn
Feel Iceland
kollagen hvarf
stirðleikinn
nánast eins og
dögg fyrir sólu.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
Karitas útbjó þessa girnilegu orkuskál sem hún bætti kollageni saman við.
Karitas tekur
líka inn Age
Rewind frá Feel
Iceland sem er
eintök húð-
meðferð með
kollageni.
Orkuskál í byrjun dags
Hálfur frosinn banani
100 g jarðarber
100 g bláber
1 msk. vanilluskyr
1 dl Oatly-haframjólk
2 skeiðar Feel Iceland kollagen
Hrærið saman svo úr verði þykkur
grautur. Toppið með bláberjum,
döðlukurli, banana, múslí og
kókosmjöli.
segir Karitas og skellir upp úr.
„Þegar ég fór að æfa í World Class
fékk ég mikinn áhuga á spinning
og eitt leiddi af öðru þar til áhuga-
málið var orðið að vinnu. Ég sinni
viðskiptafræðinni því lítið í dag
en aðstoða stundum Iceland Tax
Free, fyrirtæki sem við hjónin
eigum ásamt vinafólki okkar, sem
endurgreiðir ferðamönnum virðis-
aukaskattinn. Í því er auðvitað
ládeyða núna en það á allt eftir að
lifna við aftur,“ segir Karitas sem
einnig var f lugfreyja hjá Icelandair
þar til kórónaveiran setti ferðalög
heimsins í salt.
„Sem þjálfara finnst mér lang-
skemmtilegast þegar ég sé árangur
hjá kúnnunum mínum að bættri
heilsu og líkamsformi. Ég hlakka
því mikið til að byrja með heita
tíma og hjólatíma í nýju World
Class-stöðinni sem opnar senn í
Vatnsmýrinni. Þar verð ég með
opna hóptíma til áramóta, sem
og í World Class í Smáralind, en
á nýárinu fer ég að taka að mér
einkaþjálfun að nýju,“ upplýsir
Karitas sem brátt sér fyrir endann
á fæðingarorlofi með tíu mánaða
dóttur sinni, en fyrir á hún son og
stjúptvíbura.
Síðan í sumarbyrjun hefur Kar-
itas haldið úti mömmuþjálfun
undir berum himni.
„Mér datt í hug að bjóða konum
sem væru á svipuðum stað og
ég, nýbúnar að eignast börn, í
hópþjálfun utan húss. Þetta er
styrktar- og þolþjálfun í bland, ég
leiðbeini mömmunum og passa
krílin á meðan þær gera æfingarn-
ar; er bæði barnapía og þjálfari,“
segir Karitas sem njóta mun
hverrar stundar með mömmunum
fram í miðjan september en tekur
svo stöðuna með framhaldið.
„Hver veit nema ég fari af stað
með fleiri mömmutíma. Þetta er
vel þegin líkamsrækt, ekki síst út
af COVID-19 því ekki allir vilja
fara með hvítvoðungana sína í
líkamsræktarstöð og úti er auð-
veldara að halda fjarlægð. Oft er
þetta líka besta pásan sem mæð-
urnar fá, þegar börnin fá sér blund
í kerrunni og þær fá að æfa í ró og
spekt.“
Stórfjölskyldan á kollageni
Ásamt því að setja Feel Iceland
kollagen út í hafragrautinn og
morgunþeytinga hrærir Karitas
því líka út í morgunkaffið. Það
gerir maðurinn hennar líka, Gylfi
Einarsson, fyrrum atvinnumaður
í fótbolta.
„Það var víst ég sem kom Gylfa á
bragðið með Feel Iceland kolla-
genið og hann fann strax mikinn
mun á liðheilsu sinni og endur-
heimt. Mamma er líka farin að
taka inn Feel Iceland og pabbi
sem er alltaf í golfi og stirður í
skrokknum. Það er eðlilegt að gefa
kollageninu tvær til þrjár vikur til
að virka, en sjálf fann ég strax mun
á liðum og endurheimt þegar ég fór
að taka inn kollagenduftið,“ upp-
lýsir Karitas.
Hún tekur líka inn Age Rewind
frá Feel Iceland.
„Það er gott fyrir húð, hár og
neglur og ég bætti því við eftir
að hormónaflæði við brjóstagjöf
hafði slæm áhrif á húðina. Age
Rewind er með viðbættri hyalur-
on-sýru sem gegnir lykilhlutverki í
að gefa húðinni raka og C-vítamíni
sem styður við kollagenfram-
leiðslu líkamans. Mér finnst það
gera húðinni gott og hún ljómar nú
meira en áður,“ segir Karitas sem
er með þykkt og fallegt hár svo af
ber.
„Hárið er svo sannarlega heil-
brigt og gljáandi af kollageninu og
það vex hratt eins og alltaf. Það er
hins vegar mamma sem kvartar
undan því að aukinn hárvöxtur
vegna kollagensins sé henni dýr
því nú þurfi hún alltaf að vera í
litun,“ segir Karitas og hlær.
Fylgstu með æfingum og upp
skriftum Karitasar Maríu á Insta
gram: @karitas.
Ávinningurinn er
eiginlega undra-
verður því ég var oft
lengi í gang á morgnana
en nú er engin fyrirstaða
lengur, liðirnir eru
mjúkir og sveigjanlegir.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 9 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 M I ÐV I KU DAG U R