Fréttablaðið - 09.09.2020, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 09.09.2020, Blaðsíða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —1 9 5 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R M I Ð V I K U D A G U R 9 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 uppskera! Ný íslensk ... hjá ok ku r í d a g H já b ó nd a í gær ... VIÐSKIPTI Ef tíðni f lugsamgangna minnkar mikið í framtíðinni mun það hafa neikvæð áhrif á verðmæti ýmissa eigna sem eru í eigu líf­ eyrissjóða. Þetta segir Marinó Örn Tryggvason, forstjóri Kviku banka. „Ég er ekki viss um að það minnki áhættu eignasafna að taka ekki þátt í útboði Icelandair ef það leiðir til að það heppnist ekki,“ segir Mar­ inó. Mikilvægt sé að sjóðirnir meti vænta ávöxtun og áhættu sem felst í að taka þátt eða ekki þátt í útboði. Stjórnir f lestra stærstu sjóðanna hafa sótt fjárfestafundi Icelandair. Það þykir óvanalegt og til marks um að þetta er ekki eins og hver önnur fjárfesting. Einn stjórnarmaður segir að honum sé „til efs að lífeyris­ sjóðakerfið hafi staðið frammi fyrir jafn erfiðri ákvörðun“ um langt skeið. – þfh, hae / sjá Markaðinn Lífeyrissjóðir meti öll áhrifin VIÐSKIPTI Samkomulag Seðlabanka Íslands við lífeyrissjóðina, um að þeir myndu gera hlé á gjaldeyris­ kaupum sínum vegna fjárfestinga sjóðanna erlendis, verður ekki framlengt þegar það rennur út í næstu viku. Samkvæmt heimildum Markað­ arins er enginn vilji til þess á meðal lífeyrissjóðanna að þeir haldi áfram að sér höndum í erlendum fjár­ festingum. Er það sameiginlegur skilningur á meðal forsvarsmanna helstu sjóðanna að samkomulagið við Seðlabankann verði því ekki endurnýjað. Tilgangur þess hefur verið að bregðast við miklum samdrætti útflutnings af völdum kóróna veiru­ faraldursins og stuðla að stöðug­ leika á gjaldeyrismarkaði. Þótt lífeyrissjóðirnir hafi að mestu gert hlé á erlendum fjár­ festingum undanfarna sex mánuði hefur gengi krónunnar gefið eftir um liðlega 20 prósent gagnvart evru á árinu. Þá nemur hrein gjaldeyris­ sala Seðlabankans úr gjaldeyris­ forða sínum yfir 200 milljónum evra, jafnvirði 33 milljarða króna, frá upphafi faraldursins og hafa þau inngrip bankans spornað gegn enn meiri gengisveikingu en ella. Lífeyrissjóðirnir hafa á undan­ förnum árum stóraukið við erlend­ ar fjárfestingar sínar eftir að losað var um fjármagnshöftin. Að jafnaði hafa gjaldeyriskaup þeirra numið að meðaltali um 10 milljörðum króna á mánuði. Ef umfang gjaldeyriskaupa líf­ eyrissjóðanna verður með ein­ hverjum sambærilegum hætti þegar samkomulagið við Seðlabankann rennur úr gildi, er ljóst að það gæti að óbreyttu skapað mikinn þrýst­ ing á gengi krónunnar. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri sagði í viðtali við Fréttablaðið undir lok síðasta mánaðar að hann gerði ráð fyrir því að sjóðirnir myndu áfram sýna samfélagslega ábyrgð í gjaldeyriskaupum svo lengi sem farsóttin varir. „Ég held að fæstir vilji að sjóðurinn sem þeir greiða í standi í gjaldeyriskaupum sem veikja gengið og skapa óstöðugleika og verðbólgu.“ – hae / sjá Markaðinn Hefja aftur kaup á gjaldeyri Lífeyrissjóðirnir munu ekki framlengja samkomulag sitt við Seðlabankann um að halda að sér höndum í erlendum fjárfestingum. Hefur varað í sex mánuði en rennur út í næstu viku. Gæti sett þrýsting á gengið. 20% lækkun hefur orðið á gengi krónunnar gegn evru það sem af er þessu ári. Strákarnir okkar lutu í gras 1-5 gegn Belgíu í Þjóðadeild UEFA í gærkvöldi þar sem stjörnum prýtt lið Belgíu gekk á lagið í seinni hálf leik eftir fínar rispur íslenska liðsins framan af leikn- um. Michy Batshuayi sem fagnar hér einkar snyrtilegu öðru marki sínu og fjórða marki Belga reyndist Íslendingum erfiður og skoraði tvö mörk gegn Íslandi, annan leikinn í röð. MYND/AFP

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.