Fréttablaðið - 09.09.2020, Blaðsíða 8
DANMÖRK Danska þingið tekur nú
til umræðu frumvarp um að banna
umskurð drengja. Innanríkisráð-
herrann Simon Emil Ammitzboll-
Bille lagði frumvarpið fram í ágúst
og hefur það vakið mikla andstöðu
hjá gyðingum. Samkvæmt frum-
varpinu verður umskurður bann-
aður til átján ára aldurs, nema
læknisfræðileg ástæða liggi að baki.
„Að mínu mati ætti það ekki að
vera löglegt að skera litla drengi
vegna gamallar trúarlegrar hefðar,“
skrifaði ráðherrann á samfélags-
miðla. „Það er mín einlæga skoðun
að fólk eigi að hafa sjálfsákvörð-
unarrétt yfir líkama sínum og að
ungir menn eigi að fá að ráða hvort
þeir séu umskornir eða ekki.“
Ammitzboll-Bille situr í ríkis-
stjórn fyrir f lokkinn Fram, sem er
frjálslyndur miðjuf lokkur. Aðrir
minni f lokkar, bæði í stjórn og
stjórnarandstöðu, hafa þegar lýst
yfir stuðningi við bann á umskurði.
Þar á meðal Sósíalistaf lokkurinn
og Danski þjóðarflokkurinn. Sósí-
aldemókratar, sem leiða vinstri
stjórnina, hafa hins vegar ekki gefið
upp afstöðu sína, né hægriflokkur-
inn Venstre, sem er sá langstærsti
í stjórnarandstöðunni. Samanlagt
hafa þessir tveir f lokkar þó meiri-
hluta þingmanna.
Henri Goldstein, leiðtogi Gyð-
ingasamfélagsins í Danmörku,
mótmælir frumvarpinu harðlega og
segir það mestu hættu sem að gyð-
ingum hefur steðjað í landinu frá
stríðslokum. Segir hann það meðal
annars verra en hryðjuverkaárásina
á Sýnagóguna miklu í Kaupmanna-
höfn árið 2015.
„Samfélag gyðinga mun hægt en
örugglega leysast upp því að við
munum ekki geta iðkað okkar trú,“
sagði Goldstein í útvarpsviðtali.
„Umskurður er ekki aðeins stund-
aður af mjög trúuðum gyðingum,
heldur nánast öllum gyðingum.“
Árlega eru á bilinu eitt til tvö
þúsund drengir umskornir í Dan-
mörku, f lestir gyðingar og mús-
limar.
Skoðanakannanir gerðar á
árunum 2014 til 2018 sýna allar
að yfirgnæfandi meirihluti Dana
styður bann við umskurði. Hefur
stuðningurinn mælst frá 74 upp í 86
prósent. Læknasamtök Danmerkur
mælast til þess að umskurður sé
ekki gerður á börnum en styðja
þó ekki bann. Heldur ekki Siðaráð
danska þingsins.
Hér á Íslandi hefur umskurður
einnig verið til umræðu. Silja Dögg
Gunnarsdóttir, þingmaður Fram-
sóknarf lokksins, hefur lagt fram
frumvarp þess efnis en það ekki
verið afgreitt úr nefnd. Rabbínar á
Norðurlöndum og víðar mótmæltu
frumvarpinu harkalega og sögðu
það gefa hættulegt fordæmi fyrir
heiminn. Íslenska þjóðkirkjan
lagðist einnig gegn frumvarpinu en
heilbrigðisstarfsfólk, Siðmennt og
fleiri studdu það.
kristinnhaukur@frettabladid.is
Önnur tilraun til að banna
umskurð drengja í Danmörku
Innanríkisráðherra Danmerkur hefur lagt fram frumvarp um að banna umskurð drengja í öðrum til-
gangi en læknisfræðilegum. Gyðingar í landinu mótmæla frumvarpinu harkalega og segja það stefna
trúnni í landinu í mikla hættu. Eitt til tvö þúsund drengir eru umskornir á hverju ári í Danmörku.
Skoðanakannanir sýna að mikill meirihluti Dana styður bann við umskurði drengja. MYND/GETTY
Það er mín einlæga
skoðun að fólk eigi
að hafa sjálfsákvörðunarrétt
yfir líkama sínum og að
ungir menn eigi að fá að
ráða hvort þeir séu um-
skornir eða
ekki.
Simon Emil
Ammitzboll-Bille
innanríkisráðherra
Bílarnir sem bjarga eiga heimilinu
Faðir heldur á syni sínum til að skoða brunabíla sem komnir eru til að bjarga heimili þeirra í sunnanverðri Kaliforníu í Bandaríkjunum. Skógareld-
ar í þessu fjölmennasta ríki Bandaríkjanna hafa eyðilagt rúmlega 8.000 ferkílómetra lands. Hitinn er mikill og segja borgaryfirvöld í Los Angeles
að hitinn þar í borg hafi komist í 49,4 gráður á sunnudaginn. Rúmlega fjórtán þúsund slökkviliðsmenn berjast við eldana um allt ríkið. MYND/EPA
INDL AND Indverska f íkniefna-
lögreglan hefur handtekið Bolly-
wood-leikkonuna Rhea Chakra-
borty í tengslum við andlát kærasta
hennar, Sushant Singh Rajput.
Rajput fannst látinn í íbúð sinni
um miðjan júnímánuð og í yfirlýs-
ingu frá lögreglu kom fram að hann
hefði stytt sér aldur. Fjölskylda
hans sendi hins vegar ábendingu
til lögreglu þar sem Chakraborty
var sökuð um að hafa hvatt hann
til sjálfsvígs.
Ásamt Chakraborty hafa bróðir
hennar og leigusali Rajput einnig
verið handteknir. Ekki er gefið upp
hverjar ákærur á hendur þeim séu.
– atv
Grunuð um að
vera viðriðin
andlát kærasta
Rhea Chakraborty hefur neitað sök.
BRETLAND Brandon Lewis, Norður-
Írlandsmálaráðherra bresku ríkis-
stjórnarinnar, viðurkenndi í gær að
fyrirhugaðar breytingar á Brexit-
samningnum brytu gegn alþjóða-
lögum.
Frumvarp ríkisstjórnarinnar
um breytingar á útgöngusamningi
Bretlands úr Evrópusambandinu
verður lagt fyrir þingið í dag. Lýsti
Lewis því yfir í neðri málstofu
breska þingsins að frumvarpið bryti
alþjóðalög lítillega en að Bretar
myndu virða anda samningsins.
Miklar deilur hafa sprottið upp
vegna frumvarpsins og spurði The-
resa May, fyrrverandi forsætisráð-
herra, hvernig aðrar þjóðir gætu í
framtíðinni treyst Bretum í samn-
ingaviðræðum. – atv
Frumvarp Breta
brýtur gegn
alþjóðalögum
HVÍTA- RÚSSLAND Hvítrússneska
stjórnmálakonan Maria Kolesni-
kova er sögð vera í haldi á landa-
mærum að Úkraínu. Þetta er haft
eftir ríkisfjölmiðlum í Hvíta-Rúss-
landi.
Kolesnikova var við mótmæli
um helgina þegar grímuklæddir
menn námu hana á brott. Hún var
þá að mótmæla spillingu forsetans
Alexanders Lúkasjenkó sem hefur
verið sakaður um stórfellt kosn-
ingasvindl í kjölfar nýafstaðinna
kosninga.
Að sögn sjónarvotta var Kolesni-
kova þvinguð inn í sendiferðabíl
og ekið með hana að landamærum
Hvíta-Rússlands og Úkraínu. Sam-
k væmt f rétt astof u BBC kom
Kolesni kova í veg fyrir að hún yrði
neydd til að fara yfir landamærin
með því að rífa vegabréf sitt og
fleygja því út um bílgluggann. – atv
Reif vegabréfið
við landamærin
Kolesnikova er andvíg Lúkasjenkó.
9 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð