Fréttablaðið - 09.09.2020, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 09.09.2020, Blaðsíða 12
GOLF Karla- og kvennalið Íslands í golfi hefja í dag leik á Evrópu- móti áhugakylfinga þar sem karla- landsliðið keppir í Hollandi en kvennalandsliðið í Svíþjóð. Vegna kórónaveirufaraldursins eru færri keppnislið en vanalega og færri kylfingar í hverju liði. Að þessu sinni keppa fjórtán lið í karlaflokki og tólf í kvennaflokki í stað tuttugu liða eins og vanalega. Í kvennaflokki eru þær Heiðrún Anna Hlynsdóttir úr Golf klúbbi Selfoss, Saga Traustadóttir úr GR og Andrea Bergsdóttir og Hulda Clara Gestsdóttir sem leika fyrir hönd GKG. Greg Brodie, afreksstjóri GSÍ, mun verða með kvennalandsliðinu í Uppsölum í Svíþjóð þar sem heima- konur hafa titil að verja. Í karlaf lokki eru Kristófer Karl Karlsson úr GM, Aron Snær Júlíus- son úr GK og Hákon Örn Magnús- son og Dagbjartur Sigurbrandsson úr GR. Þeim til aðstoðar  verður Ólafur Björn Loftsson, aðstoðar- afreksstjóri GSÍ og er keppt á Hil- versumsche-vellinum rétt fyrir utan Amsterdam. – kpt. Hefja leik á EM áhugakylfinga FÓTBOLTI Andrea Agnelli, forseti Juventus og samtaka félagsliða í Evrópu, greindi frá því í gær að samtökin gerðu ráð fyrir að félög sem kepptu í Evrópukeppninni á síðasta ári þyrftu að endurgreiða 575 milljón evra skaðabætur til sjónvarpsrétthafa vegna COVID- 19 faraldursins. Samtök félagsliða í Evrópu funduðu í gær þar sem Agnelli ræddi áhrif faraldursins á rekstur knattspyrnuliða í Evrópu. Um miðjan mars var ákveðið að stöðva keppni í f lestum deildum. Stöðvunin stóð yfir í nokkra mán- uði áður en komist var að sam- komulagi um að hefja keppni á ný fyrir luktum dyrum. Fyrir vikið komu litlar tekjur á leikdegi inn til liðanna á sama tíma og styrktarað- ilar reyndu að draga í land. Um leið var ákveðið að flýta þyrfti leikjum í Evrópukeppnum og ákveðið að fara beint í útsláttarkeppni í stað tveggja leikja, heima og að heiman eins og tíðkast hefur undanfarna áratugi. Fyrir vikið hafa sjónvarpsrétt- hafar stærstu deilda heims krafist skaðabóta. Agnelli sagði samtökin vera að leggja lokahönd á samning við UEFA um skaðabætur upp á 575 milljónir evra. „Félagslið í Evrópu eru að horfa upp á það að innkoma liðanna mun minnka um fjóra milljarða evra á næstu tveimur árum.“ – kpt Þurfa að greiða 575 milljónir KÖRFUBOLTI Það hefur ýmislegt gengið á í herbúðum körfubolta- deildar KR síðan kórónaveiran skall með þunga á heiminn í mars síðastliðnum. Fljótlega eftir að ákveðið var að hætta keppni í körfuboltanum hér heima vegna faraldursins, var tilkynnt að þjálf- arar meistaraf lokka félagsins, Benedikt Rúnar Guðmundsson og Ingi Þór Steinþórsson, myndu hætta störfum hjá félaginu. Ekki var mikið fjaðrafok í kringum brottför Benedikts, en lesa mátti úr viðbrögðum Inga Þórs við upp- sögninni að hann væri allt annað en sáttur við viðskilnaðinn. Vitað var að reynslumestu leik- menn karlaliðsins lægju undir feldi og Darri Freyr Atlason, sem ráðinn var þjálfari KR karlamegin, sagði í samtölum við fjölmiðla eftir að hann tók við stjórnartaumunum hjá liðinu að hann myndi gefa eldri leikmönnum liðsins andrými til að hugsa næstu skref á ferli sínum. Endaði það svo að Laugarnes- gengið tvístraðist þar sem Helgi Már Magnússon ákvað að vera um kyrrt, en Jón Arnór Stefánsson söðlaði um yfir lækinn og gekk til liðs við Val. Jakob Örn Sigurðarson ákvað að vera áfram í Vesturbænum og bróðir hans, Matthías Orri, og Björn Kristjánsson ætla að gera slíkt hið sama. Brynjar Þór Björnsson er tek- inn við sem yfirþjálfari yngri flokka hjá körfuboltadeildinni og ætlar að spila áfram. Þá munu Veigar Áki Hlynsson, Eyjólfur Ásberg Hall- dórsson og Þorvaldur Orri Árnason taka slaginn með uppeldisfélaginu. Sprengju var varpað inn í körfu- boltasamfélagið á Íslandi í upphafi þessarar viku þegar Kristófer Acox tilkynnti að ágreiningur hans við körfuboltadeild KR væri kominn á það stig að hann ætlaði að yfir- gefa sína heimahaga. Mátti lesa úr Instagram-færslu Kristófers að deilan hefði verið bæði langvinn og hörð. Heimildir Fréttablaðsins herma að deilan sé komin til lög- manna sem séu að freista þess að finna farsæla lausn á málinu. KR-ingar sendu frá sér yfirlýsingu á mánudagskvöldið þar sem félagið sagði sig fullvisst um að önnur félög hefðu borið víurnar í samnings- bundinn leikmann sinn. Það væri ámælisvert að mati Vesturbæinga en engar aðgerðir voru boðaðar til þess að leita réttar þeirra í þeim efnum. Kristófer hefur verið sterklega orðaður við Valsmenn, en Hlíðar- endafélagið fann sig knúið til þess að bregðast við fréttaflutningi þar sem fram kom að félagið væri í viðræðum við samningsbundinn leikmann. Hlíðarendafélagið sagði það ekki á rökum reist. Kristófer samdi við KR fyrir ári síðan en sá samningur, sem var til tveggja ára, var ekki sendur inn til körfubolta- sambands Íslands, KKÍ, og fordæmi dómstóls sambandsins  þar  sem málin standa þannig eru á þá leið að leikmaðurinn sé laus allra mála. Stjarnan, Grindavík og Tindastóll hafa einnig verið nefnd til sögunnar sem líklegir næstu áfangastaðir á ferli Kristófers. Breyttar forsendur í væntingum hjá kvennaliðinu á leiktíðinni Kvennamegin hefur landslagið breyst enn meira en hjá karlaliðinu í Vesturbænum og útlit fyrir að liðið sem var í baráttu um deildarmeist- aratitilinn síðasta vor og tapaði í bikarúrslitum fyrir Skallagrími muni vera á hinum enda töflunnar á komandi keppnistímabili. Hildur Björg Kjartansdóttir er farin í Val, Sanja Orozovic í Skalla- grím, Sóllilja Bjarnadóttir í Breiða- blik og Ástrós Lena Ægisdóttir er farin í nám til Danmerkur. Margrét Kara Sturludóttir mun ekki leika með KR-liðinu en mun líklega vinna bak við tjöldin með liðinu og Unnur Tara Jónsdóttir er í tímabundnu leyfi vegna anna í vinnu. Þorbjörg Andrea Friðriksdóttir hefur ákveð- ið að leggja skóna á hilluna. Danielle Rodriguez ákvað að einbeita sér að þjálfaraferli sínum. Danielle er komin inn í þjálfara- teymi karlaliðs Stjörnunnar og í þjálfun yngri f lokka þar, ásamt því að vera aðstoðarþjálfari Benedikts með íslenska kvennalandsliðið. Leikmannahópur liðsins er eins og sakir standa þunnskipaður og óreyndur í meistaraf lokkskörfu- bolta á hæsta getustigi. Spænski þjálfarinn Francisco Garcia tók við kef linu af Benedikt og KR hefur samið við Taryn McCutcheon, frá Bandaríkjunum, og finnsku lands- liðskonuna Anniku Holopainen um að leika með liðinu. Þá verða Perla Jóhannsdóttir og Eygló Krist- ín Óskars dótt ir í lykilhlutverkum hjá liðinu í vetur. Það verður spenn- andi að sjá framvindu mála í Vest- urbænum fram að því að deilda- keppnin hefst í byrjun október. hjorvaro@frettabladid.is Landslagið hefur breyst mikið í Vesturbænum undanfarið Miklar breytingar hafa orðið hjá bæði karla- og kvennaliði KR í körfubolta síðustu mánuðina. Nú síðast tilkynnti Kristófer Acox, lykilleikmaður karlaliðsins, að hann ætlaði að róa á önnur mið. Deila körfu- boltadeildar KR og Kristófers er á borði lögmanna og óvíst er hvar hann mun spila á komandi tímabili. KR varð Íslandsmeistari sjötta skiptið í röð 2018 en fáir úr því liði munu leika með því í vetur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Kristófer Acox hefur verið í samningaviðræðum við körfuboltadeild KR síðustu tvær vikurnar um uppgjör á launagreiðslum og nýjan samning. Þær við- ræður hafa siglt í strand. FÓTBOLTI  Reynslulítið lið Íslands sem átti fínar rispur framan af var kafsiglt í seinni hálf leik í 1-5 tapi gegn Belgíu ytra í gærkvöldi. Belgar gerðu út um leikinn  snemma í seinni hálfleik og átti íslenska liðið í stökustu vandræðum með sóknar- lotur Belga eftir það. Ísland er því án stiga eftir tvo leiki í Þjóðadeildinni, stigi á eftir Danmörku sem er næsti andstæðingur Íslands. Erik Hamrén gerði sjö breytingar á íslenska liðinu frá naumu tapi gegn Englandi um helgina. Líkt og um helgina vantaði fjölmarga lykilleikmenn í íslenska liðið í gær. Hinn átján ára gamli Andri Fannar Baldursson fékk eldskírn sína og Ari Freyr Skúlason bar fyrirliðabandið í Brussel. Þá tók Ögmundur Krist- insson sér stöðu í markinu í fjarveru Hannesar Þórs Halldórssonar. Hólmbert Aron Friðjónsson sem fékk tækifærið í gær, kom Íslandi yfir með langskoti á 10. mínútu leiksins. Skotið tók stefnubreytingu af varnarmanni og var óverjandi fyrir Koen Casteels í marki Belga. Það entist ekki lengi því á 13. mín- útu var Axel Witsel búinn að jafna metin af stuttu færi eftir frákast, þegar Ögmundur varði aukaspyrnu Dries Mertens. Fjórum mínútum síðar var Michy Batshuayi búinn að koma Belgum yfir, aftur af stuttu færi, eftir frákast frá skoti Belga sem Ögmundur varði en íslenska vörnin náði ekki að hreinsa. Staðan var 2-1 í hálfleik fyrir Belga en í upphafi seinni hálfleiks gerði Mertens út um leikinn eftir góða sókn. Við það opnuðst flóðgáttirnar í vörn Íslands og bættu Belgar við tveimur mörkum áður en leikur- inn var flautaður af. Batshuayi var aftur á ferðinni með snyrtilegu hæl- spyrnumarki og stuttu fyrir leikslok innsiglaði ungstirnið Jeremy Doku sigur Belga með fimmta markinu. Byrjun íslensla liðsins í gær og kaf lar í fyrri hálf leik lofuðu góðu en þegar Belgar gengu á lagið voru þeir tveimur númerum of stórir fyrir íslenska liðið. – kpt. Belgar léku reynslulítið lið Íslands grátt í seinni hálfleik Nýliðinn Andri Fannar umkringdur belgískum varnarmönnum. MYND/EPA 9 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R12 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.