Fréttablaðið - 09.09.2020, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 09.09.2020, Blaðsíða 11
Sími: 540 2000 // Skeifunni 10, Reykjavík // Hafnarstræti 91–93, Akureyri // Hafnarstræti 2, ÍsafirðiAÐ LÁGMARKI STÓLL ER SVO MIKLU MEIRA EN BARA STÓLL Aðvörun: Í þessari grein er orðið „eftirlit“ svo margtuggið að það mætti halda að enginn hafi annast eftirlit með með skrifunum. Það er í stuttu máli kórrétt og sennilega ámælisvert. Ef maður gúgglar orðin „eftirlit brást“ fást fjölmargar leitar-niðurstöður. Ef tekin eru handahófskennd dæmi virðast menn til dæmis telja að eftirlit hafi brugðist á sviði starfsemi vistheim- ila, opinberra innkaupa, umhverf- ismála, heilbrigðismála, fjármála- stofnana, reksturs sendiráða, dýravelferðar og matvæla, fiskeldis, landamæragæslu og mannvirkja- gerðar. Ef lesið er milli línanna vaknar oft grundvallarspurningin hvort það sé virkilega svo að enginn hafi eftirlit með eftirlitinu? Margar ástæður geta reynst vera fyrir því að eftirlit bregst. Til að mynda taldi ein af rannsóknarnefndum Alþingis að slíka ástæðu mætti rekja til útbreidds skeytingarleysis í umgengni við eftirlit, skilnings- leysi á því hvað gerir eftirlit virkt og trúverðugt og áhrifa pólitískra ráðninga. Önnur rannsóknarnefnd taldi ekkert mikilvægara en að eftir- litsaðilar væru óháðir og eftirlits- heimildir þeirra væru ótvíræðar. Hvað gerist þegar eftirlit bregst? Þegar eftirlit hefur brugðist getur komið til þess að Ríkisendurskoð- un eða umboðsmaður Alþingis dragi af því ályktanir. Endapunkt- urinn er oft sá að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis ályktar um brestina. Fjölmiðlar taka við og við skrælingjarnir eigum ekki orð yfir því allsherjareftirlitsleysi sem ríkir. Sumir ganga svo langt að kalla eftir afsögn einhvers eða jafnvel refsingu. Það eru oft enda- lok málsins. Af hverju gerum við þetta ekki betur? En er ekki til skilvirkari leið til eftirlits með eftirliti en eftiráeftir- lit sem skilar eftirlitsniðurstöðu sem efnislega felur í sér að einhver annar hafi brugðist við eftirlit? Svarið við spurningunni er jákvætt, bæði skilvirkara og vandaðra eftir- lit með eftirliti er ekki bara til, held- ur er það í notkun á Íslandi. „HA!“ mundi einhver eflaust segja, „getur það verið?“ Um síðustu áramót voru 269.825 fólksbílar skráðir á Íslandi og eig- endur þeirra fara með bílinn í reglulega skoðun á skoðunarstöð. Skoðunarstöðvum hefur verið falið að hafa eftirlit með því að ökutæki séu í ásættanlegu ásigkomulagi enda getur notkun þeirra verið frekar hættuleg. Til að skoðunar- stöð sé heimilt að stunda bifreiða- Ekkert eftirlit með eftirlitinu? Benedikt S. Benediktsson lögfræðingur SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu skoðun þarf hún hafa hafa fengið svokallaða faggildingu. Í grófum dráttum er faggilding ekkert annað en vottorð um að starfsemi skoð- unarstöðvarinnar sé í lagi, starfs- mennirnir viti hvað þeir eru að gera og „eitthvað annað“ sé ekki að hafa áhrif á niðurstöðu skoðunar. Til að skoðunarstöð fái faggildingu og viðhaldi henni þarf hún að upp- fylla ýmis skilyrði. Skilyrðin eru í grundvallaratriðum ákveðin á alþjóðlegum vettvangi og stefna þau að því að auka traust neytenda á vörum og þjónustu. Þegar ég fer með bílinn í skoðun get ég treyst því að einhver hefur eftirlit með skoðunarstöðinni. Því þarf ég ekki að hafa áhyggjur af því að kaupa köttinn í sekknum og halda út á þjóðveginn á stórhættulegu tæki eða labba ella heim eftir að skrán- ingarnúmerið hefur að ósekju verið fjarlægt af bílnum. Og hvað svo? En þá kynni einhver að spyrja: „Fyrst fargsnyrpling er til (Innskot: Það getur verið erfitt að muna orðið faggilding) af hverju hafa ekki allir eftirlitsaðilar faggildingu?“ Á því eru margar skýringar og meðal þeirra eru lítil meðvitund um tilvist faggildingar, takmarkaður skiln- ingur á faggildingu, meðal annars af hálfu stjórnvalda og neytenda, og sérstakur áhugi þeirra sem hafa eftirlit á því að sæta ekki of miklu eftirliti sjálfir og þá helst aðeins eftirliti frá þeim sem þeir þekkja. En er ekki til skilvirkari leið til eftirlits með eftirliti en eftiráeftirlit sem skilar eftir- litsniðurstöðu sem efnislega felur í sér að einhver annar hafi brugðist við eftirlit? S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 11M I Ð V I K U D A G U R 9 . S E P T E M B E R 2 0 2 0

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.