Fréttablaðið - 09.09.2020, Blaðsíða 27
Óskir kaupanda/leigjanda um aðstöðuna og eða staðsetningu eru eftir-
farandi en allar innsendar hugmyndir verða skoðaðar og þeim svarað.
■ 100-300 fermetra húsnæði með góðum gluggum og innkeyrsluhurð
■ Bílaplan (bílastæði) fyrir allt að 50 bíla eða fleiri
■ Miðsvæðis í Reykjavík með góðri aðkomu
■ Helst nálægt fjölfarinni stofnbraut
■ Áreiðanlegur og snyrtilegur kaupandi/leigjandi
UPPLÝSINGAR ÓSKAST SENDAR Í NETFANGIÐ - gglausn@gmail.com
BÍLASALA
ÓSKAST
EÐA HÚSNÆÐI
FYRIR BÍLASÖLU
Hagfellt veður far í Frakklandi í sumar er talið munu skila myndarlegri aukn-ingu í vínfram-leiðslu þar í landi í
ár, að því er fram kom í tilkynningu
frá landbúnaðarráðuneyti Frakk-
lands á þriðjudag. Heildarfram-
leiðsla mun aukast um sex prósent
frá síðasta ári, en frostskemmdir að
vori í fyrra höfðu nokkuð neikvæð
áhrif á vínframleiðslu í Frakklandi
þá. Áætluð framleiðsla í ár er þó
nokkurn veginn á pari við fimm
ára meðaltal áranna 2015 til 2019.
Áætluð framleiðsla franskra vín-
bænda er 4.500 milljónir lítra í ár,
sem samsvarar um sex milljörðum
vínflaskna.
Tímasetning vínuppskeru ársins
í ár er þó óvenjuleg í allflestum vín-
héruðum. Þannig hófst berja tínsla
í Búrgúndar-héraði þann 12. ágúst
síðastliðinn. Tínslan hefur aldr-
ei hafist jafn snemma, en til eru
skráðar heimildir um fyrsta dag
berjatínslu í héraðinu allt aftur til
14. aldar. Ástæðan er sögð mildur
vetur og óvenjuhlýtt vor, sem orsak-
aði að þrúgur náðu réttu þroskastigi
töluvert fyrr en ella. „Söfnun þrúga
hófst í ágúst í nánast öllum hér-
uðum, töluvert fyrr en á árinu 2019.
Skýringin á þessu er að síðastliðið
vor var hið næsthlýjasta síðastliðin
120 ár, auk þess sem vetur var mild-
ur,“ segir í umfjöllun landbúnaðar-
ráðuneytisins.
Í Champagne-héraði er svipaða
sögu að segja, þar sem uppskera
hófst um miðjan ágúst og hefur
aldrei hafist svo snemma. Þrúgu-
uppskera er talin munu aukast um
sjö prósent milli ára. Hins vegar
verður dregið úr framleiðslu á upp-
runavottuðu víni sem með réttu
má kalla kampavín, enda telja vín-
bændur í Champagne að eftirköst
COVID-19 muni draga úr eftirspurn
á dýrara víni. Eiginleg kampavíns-
framleiðsla er þannig talin munu
dragast saman um ríflega fimmtung
og nema um 172 milljónum lítra.
Það magn samsvarar engu að síður
tæplega 230 milljónum flaskna af
kampavíni, svo að unnendur hinna
freyðandi, ljósgylltu veiga þurfa lík-
legast ekki að örvænta.
Í Loire-dalnum, þar sem vin-
sælar tegundir á borð við Sancerre
og Pouilly-Fumé eiga uppruna sinn,
er einnig von á sterkri uppskeru.
Hressileg vætutíð í ágúst er talin
munu orsaka að vínuppskeran auk-
ist um 44 prósent frá síðasta ári upp
í 315 milljónir lítra. Vinna við upp-
skeru hófst undir lok ágúst – um það
bil mánuði fyrr en sumarið 2019.
Hlýrra veður getur bæði haft
jákvæð og neikvæð áhrif á vín-
framleiðslu. Þannig hefur hærra
hitastig gjarnan þau áhrif á þrúgur
að sýrustig þeirra lækkar og magn
sykra hækkar. Við gerjun hefur
þessi breyting á þrúgunum svo
þau áhrif að áfengismagn verður
hærra samfara auknu sykurmagni.
Í Rhone-dalnum eru þannig dæmi
þess að vín hafi náð allt að 16 pró-
senta styrkleika, sem flestir myndu
telja verulega í hærri kantinum fyrir
léttvín.
Kampavínsframleiðendur hafa
lagað sig að breyttum veðurað-
stæðum með því að færa sig norðar.
Franska kampavínshúsið Taittin-
ger, sem stofnað var árið 1734, festi
kaup á landareign í Kent-héraði á
suðurhluta Englands á síðasta ári,
en aðstæður þar eru nú taldar full-
komnar til freyðivínsframleiðslu.
Áætlað er að fyrsta Taittinger-
flaskan framleidd á Englandi rúlli
út af færibandinu haustið 2023.
thg@frettabladid.is
Von á góðri vínuppskeru í Frakklandi
Vínframleiðsla í frönskum vínhéruðum er talin munu aukast um sex prósent milli ára og hljóða upp á sex milljarða vínflaskna.
Veðurfar í Frakklandi hefur orsakað að berjatínsla hefst allt að mánuði fyrr en vanalega. Þrátt fyrir betri uppskeru í Champagne-
héraði verður dregið úr framleiðslu upprunavottaðs kampavíns, sökum hins fyrirsjáanlega efnahagssamdráttar á heimsvísu.
Kampavín er af mörgum talið ómissandi við ýmis tilefni, svo sem um ára-
mót, við hjónavígslur eða við innlausn hagnaðar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Þannig hófst berjatínsla
í Búrgúndar-héraði þann
12. ágúst síðastliðinn.
Tínslan hefur aldrei hafist
jafn snemma, en til eru
skráðar heimildir um fyrsta
dag berjatínslu í héraðinu
allt aftur til 14. aldar.
11M I Ð V I K U D A G U R 9 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 MARKAÐURINN