Fréttablaðið - 09.09.2020, Síða 11
Sími: 540 2000 // Skeifunni 10, Reykjavík // Hafnarstræti 91–93, Akureyri // Hafnarstræti 2, ÍsafirðiAÐ LÁGMARKI
STÓLL ER SVO
MIKLU MEIRA
EN BARA STÓLL
Aðvörun: Í þessari grein er orðið
„eftirlit“ svo margtuggið að það
mætti halda að enginn hafi annast
eftirlit með með skrifunum. Það er
í stuttu máli kórrétt og sennilega
ámælisvert.
Ef maður gúgglar orðin „eftirlit brást“ fást fjölmargar leitar-niðurstöður. Ef tekin eru
handahófskennd dæmi virðast
menn til dæmis telja að eftirlit hafi
brugðist á sviði starfsemi vistheim-
ila, opinberra innkaupa, umhverf-
ismála, heilbrigðismála, fjármála-
stofnana, reksturs sendiráða,
dýravelferðar og matvæla, fiskeldis,
landamæragæslu og mannvirkja-
gerðar. Ef lesið er milli línanna
vaknar oft grundvallarspurningin
hvort það sé virkilega svo að enginn
hafi eftirlit með eftirlitinu? Margar
ástæður geta reynst vera fyrir því
að eftirlit bregst. Til að mynda
taldi ein af rannsóknarnefndum
Alþingis að slíka ástæðu mætti
rekja til útbreidds skeytingarleysis
í umgengni við eftirlit, skilnings-
leysi á því hvað gerir eftirlit virkt
og trúverðugt og áhrifa pólitískra
ráðninga. Önnur rannsóknarnefnd
taldi ekkert mikilvægara en að eftir-
litsaðilar væru óháðir og eftirlits-
heimildir þeirra væru ótvíræðar.
Hvað gerist þegar
eftirlit bregst?
Þegar eftirlit hefur brugðist getur
komið til þess að Ríkisendurskoð-
un eða umboðsmaður Alþingis
dragi af því ályktanir. Endapunkt-
urinn er oft sá að stjórnskipunar-
og eftirlitsnefnd Alþingis ályktar
um brestina. Fjölmiðlar taka við
og við skrælingjarnir eigum ekki
orð yfir því allsherjareftirlitsleysi
sem ríkir. Sumir ganga svo langt
að kalla eftir afsögn einhvers eða
jafnvel refsingu. Það eru oft enda-
lok málsins.
Af hverju gerum við
þetta ekki betur?
En er ekki til skilvirkari leið til
eftirlits með eftirliti en eftiráeftir-
lit sem skilar eftirlitsniðurstöðu
sem efnislega felur í sér að einhver
annar hafi brugðist við eftirlit?
Svarið við spurningunni er jákvætt,
bæði skilvirkara og vandaðra eftir-
lit með eftirliti er ekki bara til, held-
ur er það í notkun á Íslandi. „HA!“
mundi einhver eflaust segja, „getur
það verið?“
Um síðustu áramót voru 269.825
fólksbílar skráðir á Íslandi og eig-
endur þeirra fara með bílinn í
reglulega skoðun á skoðunarstöð.
Skoðunarstöðvum hefur verið falið
að hafa eftirlit með því að ökutæki
séu í ásættanlegu ásigkomulagi
enda getur notkun þeirra verið
frekar hættuleg. Til að skoðunar-
stöð sé heimilt að stunda bifreiða-
Ekkert eftirlit með eftirlitinu?
Benedikt S.
Benediktsson
lögfræðingur
SVÞ – Samtaka
verslunar og
þjónustu
skoðun þarf hún hafa hafa fengið
svokallaða faggildingu. Í grófum
dráttum er faggilding ekkert annað
en vottorð um að starfsemi skoð-
unarstöðvarinnar sé í lagi, starfs-
mennirnir viti hvað þeir eru að
gera og „eitthvað annað“ sé ekki að
hafa áhrif á niðurstöðu skoðunar.
Til að skoðunarstöð fái faggildingu
og viðhaldi henni þarf hún að upp-
fylla ýmis skilyrði. Skilyrðin eru
í grundvallaratriðum ákveðin á
alþjóðlegum vettvangi og stefna
þau að því að auka traust neytenda
á vörum og þjónustu. Þegar ég fer
með bílinn í skoðun get ég treyst
því að einhver hefur eftirlit með
skoðunarstöðinni. Því þarf ég ekki
að hafa áhyggjur af því að kaupa
köttinn í sekknum og halda út á
þjóðveginn á stórhættulegu tæki
eða labba ella heim eftir að skrán-
ingarnúmerið hefur að ósekju verið
fjarlægt af bílnum.
Og hvað svo?
En þá kynni einhver að spyrja:
„Fyrst fargsnyrpling er til (Innskot:
Það getur verið erfitt að muna orðið
faggilding) af hverju hafa ekki allir
eftirlitsaðilar faggildingu?“ Á því
eru margar skýringar og meðal
þeirra eru lítil meðvitund um tilvist
faggildingar, takmarkaður skiln-
ingur á faggildingu, meðal annars
af hálfu stjórnvalda og neytenda,
og sérstakur áhugi þeirra sem hafa
eftirlit á því að sæta ekki of miklu
eftirliti sjálfir og þá helst aðeins
eftirliti frá þeim sem þeir þekkja.
En er ekki til skilvirkari leið
til eftirlits með eftirliti en
eftiráeftirlit sem skilar eftir-
litsniðurstöðu sem efnislega
felur í sér að einhver annar
hafi brugðist við eftirlit?
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 11M I Ð V I K U D A G U R 9 . S E P T E M B E R 2 0 2 0