Hvöt - 01.02.1951, Qupperneq 11
H V Ö T
9
En til þess að liin unga kynslóS
geti orðið starfi sínu vaxin, orðið
glæsilepur arftaki eldri kynslóðarinn-
ar og þjóð sinni til sæmdar og vegs-
auka, verður hún að nota tímann vel
til að búa sig undir þetta starf. Mögu-
leikar nútímaæsku til þroska og mennt-
unar eru miklir. Enginn æskumaður,
sem leitar sannrar menntunar og
hroska getur verið þekktur fyrir að
láta áfengi spilla heilsu sinni og starfs-
kröftum. Þess vegna hlýtur öll skóla-
æska að sameinast um að reka þennan
óvin af höndum sér. Yerkefni fram-
tíðarinnar eru mikil og mörg. Þjóðin
er á framfaraskeiði og þess er full
þörf. að allir vinni heilir og óskiptir
að störfum sínum. Það munu verða
gerðar meiri kröfur til æskufólksins
nú en nokkru sinni fyrr, það verður
í verkum sínum krafið endurgjalds á
því, sem fyrir það hefur verið gert.
Og það er ekki nema eðlilegt og sjálf-
sagt. En íslenzk æska má einnig gera
sínar kröfur. Hún hlýtur að krefjast
þess að áfengi sé fjarlægt frá bæjar-
dymm hennar, því að meðan sá brann-
ur stendur opinn hljóta fleiri og fleiri
að falla í hann, en málsháttur segir
að það sé of seint að byrgja brunn-
inn, þegar barnið er dottið ofan í.
En það er ekki nóg að útiloka áfengið.
Það verður einnig að bryeta þeim
hugsunarhætti, sem hér hefur fest ræt-
ur um of, að það sé eittlivað fínt eða
mikilmannlegt að neyta áfengis. Það
er enginn fínni eða meiri maður fyrir
það. Sá, sem það gerir er lagður út
á þá liálu braut, sem liggur niður á
við til niðurlægingar og vesalmennsku,
og liann veit ekkert um það í upphafi,
hvort hann hefur nóg siðferðisþrek
eða viljastyrk til að snúa við eftir
að hann er kominn af stað.
Margir eru í efa um það, hvort
þeir eigi að vera bindindismenn eða
ekki og halda jafnvel að það sé alveg
gagnslaust að berjast fyrir bindindis-
málum. Um hvað era þessir menn að
efast? Sjá þeir ekki nærri því daglega
ófögur dæmi um þá eymd og ómenn-
ingu, sem vínneyzlu fylgir? Vilja þeir
gerast samsekir með því að láta það
afskiptalaust? Vilja þeir ekki hjálpa
meðbræðram sínum til að losna und-
an oki vínguðsins? Halda þeir að
áfengi fari sjálfkrafa út úr landinu
eða að dýrkehdur þess reki það frá
sér eða öðrum? Nei, sannarlega ekki.
Það þarf samtök, fjölmenn og öflug til
þess að sigra þennan óvætt. Það má
enginn liggja þar á liði sínu.
Allir verða að láta sér skiljast, að
vínntokun sæmir ekki menningarþjóð
eins og Isjendingum og íslenzk æska
verður að finna það, að það er henni
alveg til vansæmdar að leggja út á
braut áfengisneyzlunnar.
Vinnum að því að útiloka áfengi og
skapa heilbrigt almenningsálit í áfeng-
ismálum.
Hið árlega handknattleiksmót S. B. S. hefst
1. inarz í íþróttahúsinu við Hálogaland. Keppt
verður í kvennaflokki og í I., II. og III.
flokki karla. Ollum skólum innan S. B. S. er
heirnil þátttaka.
Ríkisútvarpið hefur nýlega tekið „Skóla-
þátt“, sem fastan lið inn í dagskrána. I þess-
um þætti eru rædd margvísleg mál, sem varða
bæði skólana og heimilin. Þátturinn er á
föstudögum kl. 22,20, og er Helgi Þorláks-
son kennari forstöðumaður hans.
c