Hvöt - 01.02.1951, Blaðsíða 15

Hvöt - 01.02.1951, Blaðsíða 15
H V Ö T 13 þeirri fræðigrein í fomöld, en það vom Hellenar, hinir fornu Grikkir. Trúarbrögð Hellena litu á stjörn- umar sem guðlegar verur, og til eru margar goðsagnir um fyrirbæri bim- insins. Sveinninn Helios var tákn sólar- innar. Goðafræðin segir, að á hverj- um degi aki liann í gullnum vagni afmarkaða braut um himinhvolfið og beiti fjórum hvítum gæðingum fyrir vagninn. Systur hans vora Selena, hin blíðlynda, fagurlokkaða mánagyðja, og Eos, gyðja morgunroðans. Elskhugi Eosar var risinn Orion. Hann átti grimman veiðihund, sem Sirios nefnd- ist, og elti hann hinar lafhræddu Sjö- stjörnur um himinhvolfið. Synir henn- ar voru vindarnir. Pólstjaman kall- aðist Kynsúa og var fóstra Seifs, hins mikla goðjöfurs. Margar aðrar fasta- stjörnur koma við sögu hinnar grísku goðafræði. En heimspekingarnir sætta sig ekki við þessar skýringar. Þeir höfnuðu hin- um goðfræðilegu kenningum og tóku að hugsa sjálfir um eðli stjarnanna. Settu þeir fram mjög merkilegar kenn- ingar, en tókst ekki að sanna þær. Og því féllu þær í gleymsku, þegar hin hellenistíska menning leið undir lok. En nærri því 2000 árum seinna voru þær dregnar fram í dagsins birtu og margar hverjar sannaðar. Þessar kenningar em svo miklar að vöxtum og sundurleitar, að ógerningur er að lýsa þeim í stuttu máli. Ég mun því láta mér nægja að minnast lítils liátt- ar á tvo helztu stjörnufræðingana. Annar þeirra var Pyþagóras. Hann var uppi á 6. öld f. Kr., og er fræg- astur fyrir uppgötvanir sínar í stærð- fræði, en auk þess fann hann tónstig- ann, og grundvallaði þannig söngfræð- ina. Pypagóros var sannfærður um, að tónarnir væru mikils ráðandi í al- heiminum. Hann hélt því fyrstur fram, að stjömurnar væru hnettir og jörð- in reikistjarna, og talar um samheim hnattanna, sem sé jafn og stöðugur, dag og nótt. En við heyrum hann ekki því að liann er óbreytanlegur, en eyru okkar skynja aðeins það breytilega. Arictarcos frá Amos var uppi 250 árum síðar. Harni hélt því fram, að sólin væri þungamiðja alheimsins en jörðin reikistjarna. Með þeirri kenningu komst hann nær sannleikanum en nokkur annar * hugsuður fornaldarinnar. , m. Á miðöldunum var hinni vísindalegu stjörnufræði lítill gaumur gefinn, enda var hún á lágu stigi. Hinn kaþólski miðaldaheimur gerði engar nýjar upp- götvanir í þessari fræðigrein. Kenn- ingar kirkjunnar um alheiminn áttu ekkert skylt við vísindi. En engu að síður höfðu þær áhrif á sögu stjörnu- fræðinnar. Kirkjan var voldugasta stofnun miðaldanna, og kenningar hennar um alheiminn vora trúaratriði, sem ekki mátti hrófla við. Þótti guð- last að draga í efa það, sem hin svo- nefnda skólaspeki kenndi um þetta mál. Hugmyndum miðaldakirkjunnar um alheiminn er bezt lýst í ritum Tómasar frá Aquino, sem kaþólska kirkjan metur mest allra heimspek- inga. Þykir mér vel hlýða að lýsa þeim nokkuð. — Jörðin er miðdepill heimsins, og

x

Hvöt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hvöt
https://timarit.is/publication/1472

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.