Hvöt - 01.02.1951, Page 12
10
H V Ö T
Þorsteinn Einarsson íþróttafullt
Di ijritts- 0'
Áhugasamir nemendur um íþróttir
í skólum Reykjavíkur og nágrenni
Reykjavíkur hafa staðið að stofnun
íþróttabandalags skólanemenda. Það,
sem bindur þessi samtök, eru íþróttir
og skólar. Hver, sem vill vera þátt-
takandi, verður að vera nemandi í
skóla á umræddu svæði og félagi
íþróttafélags eða íþróttadeildar skóla
síns.
Fyrir voru samtök um íþróttir inn-
an skóla á vegum Sambands bindind-
isfélaga í skólum. — Framkvæmdir
þessara samtaka voru í höndum
íþróttanefndar S. B. S. Iþróttanefndin
gekkst fyrir íþróttakeppni milli
íþróttadeilda bindindisfélaga í skólum.
Þessi samtök vora því fyrst og fremst
bundin saman af bindindi og skól-
um, en einn þáttur, og, hann stór, til
eflingar starfi nemenda um bindindi
voru og era íþróttir.
1 mótum S. B. S. gátu aðeins tekið
þátt þeir skólar, sem böfðu bindindis-
félög, og þeir einir keppt í liði skól-
ans, sem voru bindindismenn.
Um þessi atriði var erfitt að standa
vörð. Skólar, sem ekki höfðu bind-
indisfélög vildu fá að keppa. Þeir
stóðu ýmist fyrir utan eða hætta var
á, að stofnuð yrði málamyndar bind-
indisfélög. Og svo hitt atriðið, að skób,
sem bafði bindindisfélag, en því mið-
ur ekki allir nemendur skólans virkir
félagar þess, vildi tefla fram sínu bezta
liði, svo að íþróttalega yrði hlutur
skólans sem beztur, máske sigur, og
því slæddust óvirkir bindindismenn inn
í liðið og þar með inn í íþróttakeppni
S. B. S.
Hér voru óhreinar línur, og vegna
þeirra komu fyrir atvik, sem voru
ósamboðin næmri réttlætiskennd æsk-
unnar og sem voru skaðleg málefna-
legri virðingu bindindissamtakanna.
Segja má að stjórn S. B. S. og for-
ráðamenn skólaæskunnar — skólastjór-
ar og íþróttakennarar — hafi ekki lát-
ið sér nægjanlega þetta mál skipta, og
því hlaut að reka að því, að samtök
mynduðust innan skólanna um íþrótt-
irnar einar. Er skólaæskan þá andvíg
bindindi? Er hér um uppreisn gegn
bindindi að ræða? er spurt. Ég hef
svarað þessum spumingum neitandi,
vegna þeirra kynna, sem ég hef átt af
stofnendum íþróttabandalagsins.
Yar ekki hægt að gera alla skól-
ana virka í bindindisstarfinu, svo að
ekki þyrfti til þessarar stofnunar að
koma? Ég held ekki. Samband bind-
indisfélaga í skólum hefur starfað í
nær tvo tugi ára og liefur verið skip-
að ötulum æskumönnum og — kon-