Hvöt - 01.02.1951, Side 25
h y ö t
23
menn %
Pilsner .................... 96 12,4
Pilsner og tréspíritus ... 98 12,6
Pilsner og brennivín .... 485 62,5
Brennivín .................. 42 5,4
Tréspíritus.................. 9 1,2
Vín eða vín og brennivín 5 0,6
Tölur vantar um ............ 41 5,3
hneigingar manna til þess að vera
eins og hinir. Smám saman skapar
þessi venja svo þorstann í sterkari
drykki.
Auk þess er það rangt að líta á
ölið sem skaðlausan drykk. Slíkt mætti
sennilega segja um það öl, sem hér
var notað á hernámsárunum og var
1% að styrkleika, en það á ekki við
um hinar venjulegu öltegundir, og
sízt í Noregi, sem notar sterkari öl-
tegundir en nágrannalöndin, eins og
sjá má á eftirfarandi samanburði:
1. fl. 2. fl. 3. fl.
Danmörk 2,80 4,05 6,25
Finnland 2,80 4,00 5,60
Svíþjóð 2,25 4,00 ekki til
Noregur 2,50 4,75 7,00
Tafla þessi sýnir áfengisstyrkleika öl-
tegundanna í þessum fjórum löndum.
Sézt þar, að ölið er sterkara, sérstak-
lega sterkari tegundimar, í Noregi en
í hinum löndunum. Svo segir enn-
fremur í hinni miklu og markverðu
ritgerð, sem hér er vitnað í:
„Þrátt fyrir það, að áfengismagnið
er lægst í fyrstu og annari öltegund
Svíanna, hafa viðurkenndar rannsóknir
sannað, að þar hafa átt sér stað mjög
alvarlegar afleiðingar af öldrykkju“.
Rannsóknir þessar, segir greinarhöf-
undur, hafa verið framkvæmdar af
sérfróðum mönnum á vegum hins op-
inbera og aðallega á þremur drykkju-
mannahælum, þar sem vora helzt mikl-
ir drykkjumenn — langt leiddir áfeng-
issjúklingar. Rannsakaðir voru 776
menn, og sýnir eftirfarandi tafla á
hvaða drykkjarföngum þeir urðu áfeng-
issjúklingar:
Skýringar greinarhöfundar eru svo
þessar:
„Tölumar sýna, að áttundi hver
sjúklingur á þessum hælum langt
leiddra áfengissjúklinga, er aðeins 61-
drykkjumaöur, sem þarf að síðustu að
annast sem áfengissjúkling á drykkju-
mannahæli. Af þessum 776 mönnum,
er 1943 höfðu lent á þessum hælum,
voru næstum því eitt himdrað sér-
kennilegir áfengissjúklingar, eingöngu
öldrykkjumenn, og það í landi sem
sterkar öltegundir eru bannaðar og
ekki framleiddar, og svo hefur verið
um 25 ára skeið. Ennfremur er áfeng-
ismagnið í pilsnerölinu töluvert minna
en í þeirri tegund hjá okkur (Norð-
mönnum).
Þessar niðurstöður rannsókna í Sví-
þjóð sýna óumdeilanlega, að ölið er
áfengur drykkur, sem verður að skoð-
ast sem hver önnur áfengistegund, þótt
öl og brennivín saman svífi fljótar á
menn en ölið eingöngu.
Opinberar skýrslur um áfengisneyzl-
una hér í landi (Noregi), 10 síðustu
árin fyrri styrjöldina, sýna, að ekki
minna en 36%, meira en þriðji hlut-
inn er öldrykkja. Og þetta er á venju-
legum tímum“.
Fleira verður nú ekki talið fram
úr þessari ýtarlegu ritgerð þjóðkunns
manns í Noregi. En hér er áreiðan-