Hvöt - 01.02.1951, Page 29
H V Ö T
27
Fréttir af þingi S. B. S.
Laugardaginn 2. des. var 19. þing
Sambands bindindisfélaga í skóluni
haldið í Samvinnuskólanum. Mættir
voru 41 fulltrúi frá 8 skólum.
Fyrrverandi formaður Guðbjartur
Gunnarsson setti þingið með ræðu.
Form. sambandsstj. flutti skvrslu
stjórnarinnar um störf sambandsins
seinasta ár. Sambandið stóð m. a. fyr-
ir ræðuhöldum og skemmtunum 1.
febr., hélt málfundi um bindindismál
og íþróttamál innan skólanna. Gaf
einnig út blaðið Hvöt.
Þingið ræddi um starfsemi sambands-
ins og eflingu þess, m. a. það, að gera
starfsemina víðtækri og meiri út um
land, en til þess þyrfti helzt að hafa
sérstakan erindreka. Var þess vegna
samþykkt að stofna erindrekasjóð, úr
honum skal síðar verja fé til þess
að kosta erindreka til starfa fyrir
sambandið.
Fyrir þinginu lá tilboð frá binu ný-
stofnaða íþróttabandalagi framhalds-
skóla um sameiginlega útgáfu Hvatar,
blaði Samb. bindindisfélaga í skólum.
Samþykkt var að taka því tilboði, og
ríkti mikill áhugi fyrir því á þing-
inu, að samvinna milli þessara sam-
banda verði sem bezt og nánust. Var
stjórninni falið að semja við íþr.banda-
lagið um þau mál.
Stjóm sambandsins er nú skipuð
þessum mönnum:
Formaður:
Óli Kr. Jónsson, Kennaraskólanum.
Varaf ormaður:
Jón Böðvarsson, Menntaskólanum.
Féhirðir:
Guðmundur Georgsson, Menntask..
Ritari:
Elísabet Gunnlaugsdóttir, Kvennask.
Meðstjórnandi:
Valdemar Örnólfsson, Menntask.
Varastjórn:
Sig. Jónsson, Iþrsk., Laugarvatni.
Elín S. Jóhannesdóttir, Kvennask.
Guðjón Jónsson, Kennaraskólanum.
Ólafur Bjarnason, Iðnskólanum.
Að lokum ávarpaði hinn nýkjömi
formaður þingið og sleit því.
7. des. hafði S. B. S. kaffisamsæti
í Listamannaskálanum fyrir fulltrúa
þingsins. Á eftir var svo almennur
dansleikur á vegum S. B. S.
Kennarinn: „Var Jón að kíkja á
hjá yður í skriflega prófinu?“
Nemandinn: „Nei, nei, en ég var
dálítið smeykur um, að nefið á hon-
um yrði fyrir pennanum mínum“.
Kennari: „Ef þér getið ekki setið
kyrr, Guðrún, þá set ég hann Gunnar
og hann Halldór út“.
Kennarinn: „Heldurðu að menn
myndu ekki verða hrifnir af Marteini
Lúther, ef hann væri uppi í dag?“
Nemandinn: „Það er trúlegt, þar
sem hann væri nærri 470 ára“.