Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2020, Blaðsíða 14
14 EYJAN 25. SEPTEMBER 2020 DV
DV hafði samband við ráða-
menn þjóðarinnar og spurði hvað
stjórnmálafólki landsins fyndist
um fyrsta þátt Ráðherrans sem
frumsýndur var á RÚV á sunnu-
dagskvöld og hvort þátturinn
hefði gefið raunsanna mynd af
íslenskum stjórnmálum.
HVAÐ FANNST
RÁÐHERRUM UM
RÁÐHERRANN?
Ólafur Darri í
hlutverki sínu
sem formaður
Sjálfstæðis-
flokksins.
MYND/
LILJA JÓNS
ÞORBJÖRG SIGRÍÐUR GUNNLAUGSDÓTTIR,
ÞINGMAÐUR VIÐREISNAR
„Ég var hrifin og hlakka til að sjá næsta þátt. Það er sterkur upptaktur um framhald þarna.
Auðvitað pínu sár að þarna vantaði Viðreisn en sennilegast hefur það verið vegna þess að ég
var ekki komin á þing þegar serían var skrifuð. Sé þá skýringu svona helsta. En án alls gríns þá
fannst mér þátturinn skemmtilegur og ekki aðalatriðið hversu raunsönn mynd er dregin upp.
Fannst það ekki endilega vera en um sumt þó. Kosningasjónvarpið ruglaði mig aðeins, sex
flokkar voru settir upp í grafík um úrslit en bara fimm formenn í setti. Stór plús fannst mér að
sjá heiðursmennina Boga Ágústsson og Ólaf Þ. Harðarson rýna úrslit. Eins og að koma heim
að sjá þá. Leikurinn fannst mér frábær og Ólafur Darri algjörlega brilliant.“
ÞORGERÐUR KATRÍN
GUNNARSDÓTTIR,
FORMAÐUR VIÐREISNAR
„Mér fannst þetta frábær þáttur.
Fyrir utan hvað hann var vel
gerður og handritið gott þá gleður
það mig alltaf að sjá góðan leik. Ég
fylltist auðmýkt og stolti. Ólafur
Darri, Aníta Briem, Þuríður Blær
og Þorvaldur Davíð stóðu sig virki-
lega vel. Ég hafði líka gaman af því
að í þættinum voru karakterar sem
maður hefur hitt fyrir en er feginn
að rekast ekki mikið á í dag. Þetta
var áhugaverður þáttur, flott ís-
lenskt sjónvarp og öllum þeim sem
að honum komu til sóma.“
HELGA VALA HELGADÓTTIR,
ÞINGMAÐUR SAMFYLKINGARINNAR
„Mér fannst þetta mjög skemmtilegt, leikur allra til fyr-
irmyndar og Darri auðvitað mjög sannfærandi pólitíkus.
Hlakka til að sjá næsta þátt. En það var þó eitt alveg
sjúklega ósannfærandi sem handritshöfundar hefðu
mátt vita... Samfylkingin myndi aldrei fara í kosninga-
bandalag með Sjálfstæðisflokki.“
LILJA ALFREÐSDÓTTIR,
MENNTA- OG MENNINGARMÁLARÁÐHERRA
„Ráðherrann var skemmtilegur og mér fannst Ólafur
Darri svo einlægur og sannfærandi – að hann gæti
klárlega farið inn á svið stjórnmálanna! Hugmyndin
að 90% kjörsókninni er snjöll og fannst orðræðan í
kringum hana góð og trúverðug – stjórnmál snúast um
þátttöku og að hreyfa við fólki! Það tókst vel! Verður
gaman að fylgjast með næsta þætti.“
BRYNJAR
NÍELSSON,
ÞINGMAÐUR
SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
„Ég sá megnið af þættinum og
fannst hann bara venjulegur ís-
lenskur þáttur þar sem ég heyri
bara annað hvert orð. Þátturinn er
ekki raunsönn lýsing á íslenskum
stjórnmálum, sem er svo sem allt
í lagi. Væri hann raunsönn lýsing
myndi það drepa áhorfendur úr
leiðindum.“
GUNNAR BRAGI
SVEINSSON,
VARAFORMAÐUR
MIÐFLOKKSINS
„Ég sá lítið raunsætt við þetta
nema að leikmyndin var góð.
Annað nokkuð langt frá raunveru-
leikanum eins og ég þekki stjórn-
málin. Ágætis skemmtun samt.“
RÓSA BJÖRT
BRYNJÓLFSDÓTTIR,
ÞINGMAÐUR UTAN FLOKKA
„Ég horfði og fannst þátturinn
bæði óþægilega raunsær en líka
óraunverulegur. Ólafur Darri sýndi
mjög góðan leik og á örugglega
eftir að sýna enn magnaðri leik í
næstu þáttum.“
GUÐLAUGUR ÞÓR GUÐMUNDSSON
UTANRÍKISRÁÐHERRA
„Ég hafði gaman af Ráðherranum og fyrsti þáttur lofar
góðu um framhaldið. Það er hætt að koma manni á
óvart hvað við eigum mikið af hæfileikafólki á þessu
sviði en alltaf jafn gaman að sjá. Svo var ég auðvitað
mjög sáttur við kosningaúrslitin, fannst þau sann-
gjörn. Ég neyðist hins vegar til að valda lesendum
vonbrigðum með því að ég man ekki eftir svo líflegri
kosningavöku hjá okkur Sjálfstæðismönnum. “
ALBERTÍNA FRIÐBJÖRG ELÍASDÓTTIR,
ÞINGMAÐUR SAMFYLKINGAR
„Þessi fyrsti þáttur lofar góðu fyrir framhaldið, hélt
athyglinni allan tímann og verður áhugavert að sjá
hvernig sögulínan þróast.“
BJÖRN LEVÍ GUNNARSSON,
ÞINGMAÐUR PÍRATA
„Ég horfði á og þetta var glettilega nákvæmt. Það var
ýmislegt sem maður kannaðist við. Sorglegt að allir
flokkar gætu ekki verið með.“
SVANDÍS
SVAVARSDÓTTIR,
HEILBRIGÐISRÁÐHERRA
„Þetta var mjög gaman.“
SIGMUNDUR DAVÍÐ
GUNNLAUGSSON,
ÞINGMAÐUR MIÐFLOKKSINS
„Er á ferðalagi og ekki búinn að
sjá þáttinn.“
KATRÍN JAKOBSDÓTTIR,
FORSÆTISRÁÐHERRA
„Náði ekki að sjá hann. Mun samt
horfa við fyrsta tækifæri.“
ANDRÉS INGI JÓNSSON,
ÞINGMAÐUR UTAN FLOKKA
„Virkaði vel á mig, eiginlega óþægilega sannfærandi
handrit því mér leið eins og ég væri mættur í vinnuna
á sunnudagskvöldi.
BJARNI BENEDIKTSSON,
FJÁRMÁLARÁÐHERRA
„Það sem mér fannst standa upp úr eftir þennan fyrsta
þátt eru gæðin á þessari íslensku framleiðslu. Frábærir
leikarar, myndataka og allt yfirbragð fyrsta flokks.
Með þessu vil ég alls ekki gera lítið úr efninu sjálfu,
sem er ákveðinn spegill á samfélagið, dregur fram
að geðrænir sjúkdómar gera ekki mannamun, og svo
hefur pólitíska fléttan verið vel hugsuð.” Bjarni slær á
létta strengi og segist ekki þekkja baktjaldamakk eins
og kemur bersýnilega fram í fyrsta þættinum. „Auð-
vitað hef ég aldrei orðið var við neitt svona baktjalda-
makk í mínum flokki en hef heimildir fyrir því að svona
samtöl eigi sér stað hjá hinum flokkunum.”
ÞÓRDÍS KOLBRÚN R. GYLFADÓTTIR ,
FERÐA MÁLA-, IÐN AÐ AR- OG
NÝSKÖP UN ARRÁÐHERRA
Mér fannst þátturinn góður. Flott leikstjórn og allt
utanumhald (upptökur o.fl.). Góðir leikarar og sterkur
þráður. Augljóst að íslensk framleiðsla á þessu sviði
eykst að gæðum ár frá ári sem er lofsvert.