Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2020, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2020, Qupperneq 32
Matseðill Berglindar Morgunmatur Búst, morgunkorn. Millimál nr. 1 Hnetur, ávextir. Hádegismatur Alls konar, ýmist spæld egg á ristuðu brauði með avókadó eða ristað brauð með sultu og kakó- malt með. Millimál nr. 2 Hrökkbrauð, skyr, kanelsnúðar, kex. Bara eftir því í hvaða stuði ég er. Kvöldmatur Allt milli himins og jarðar. Stund- um nenni ég ekki að elda og þá er snarl sem er til dæmis súpa, brauð, harðsoðin egg og slíkt. Virka daga eldum við almennan heimilismat, til dæmis hakk og spagettí, fisk, kjötbollur, pítur og slíkt en um helgar reynum við að gera eitthvað fínna eins og steik eða rétti sem tekur lengri tíma að elda. Pestópitsa 700 g hveiti 1 pakki þurrger (11,8 g) 1 tsk. salt 400 ml volgt vatn 4 msk. ólífuolía Setjið öll þurrefnin saman í skál og blandið saman. Hellið volgu vatni ásamt ólífuolíu saman við og hnoðið þar til deig- kúla hefur myndast. Setjið deigið í skál sem búið er að pensla að innan með matar- olíu, plastið og leyfið að hefast í um klukkustund. Skiptið deiginu niður í 5-7 hluta og fletjið út nokkrar pitsur (9-12“) og setjið áleggið á. Álegg 2½ krukka af Sacla-pestó með basilíku (um 450 g) 300 g kastaníusveppir 40 g smjör 1 rauðlaukur Rifinn ostur 2 dósir mozzarellakúlur með basil- íku (2 x 180 g) Sólþurrkaðir tómatar frá Sacla Klettasalat Kasjúhnetur (saxaðar gróft) Fersk basilíka Ólífuolía með basilíku Salt, pipar og hvítlauksduft Skerið sveppina niður og smjör- steikið þá við miðlungs hita þar til þeir mýkjast örlítið, kryddið til með salti, pipar og hvítlauksdufti, leggið til hliðar. Penslið vel af pestó á hvern pitsu- botn og raðið næst smjörsteiktum sveppum og rauðlauk yfir. Rífið næst ost yfir allt saman og bakið við 225°C í um 10 mínútur eða þar til botninn fer að gyllast í könt- unum. Raðið þá mozzarellakúlunum á og bakið áfram í örfáar mínútur. Þegar pitsan kemur úr ofninum má pensla kantana strax með ólífuolíu með basilíku. Að lokum má setja klettasalat, kasjúhnetur, sólþurrkaða tómata og ferska basilíku yfir pitsurnar. Einnig er gott að hella smá ólífuolíu með basilíku yfir alla pitsuna. Berglind Hreiðarsdóttir elskar að halda á vit ævintýranna. MYND/ANTON BRINK 32 MATUR 25. SEPTEMBER 2020 DV Borðar í takt við árstíðirnar Matarbloggarinn Berglind er að gefa út sína þriðju uppskriftabók. Hún ver miklum tíma í eldhúsinu við að þróa uppskriftir en hvað ætli hún borði á venjulegum degi? Guðrún Ósk Guðjónsdóttir gudrunosk@dv.is B erglind Hreiðarsdóttir hefur verið með heima­síðuna gotteri.is síðan árið 2013. Þar deilir hún alls konar uppskriftum, veislu­ hugmyndum, hugmyndum að ævintýrum og umfjöllun um veitingastaði. Auk þess heldur hún reglulega köku­ skreytinganámskeið. Hún var að gefa út sína þriðju uppskriftabók, Saumaklúbb­ inn, og í henni má finna yfir 140 frábærar uppskriftir. Við fengum að forvitnast um venjulegan dag í lífi hennar og hvað hún borðar. „Eins og staðan er núna er ég matar­ og ævintýrablogg­ ari í bland við að vera heima­ vinnandi húsmóðir og ég er að elska það. Ég hef unnið við mannauðsmál og verkefna­ stýringu frá því ég man eftir mér en langaði að breyta til og sjá hvert þetta myndi leiða mig,“ segir Berglind. „Það eru engir dagar eins hjá mér. Stundum er ég að þróa og elda uppskriftir allan dag­ inn, stundum langar mig bara að hendast í fjallgöngu og aðra daga er ég að stússa á fundum úti í bæ eða annað slíkt. Ég vakna þó alltaf með yngstu dóttur minni sem er þriggja ára og markmið okkar er að hún nái í leikskólann fyrir morgunmat svo við höldumst í smá rútínu. Síðan er alveg merkilegt hvað dagarnir líða hratt þegar maður er að brasa svona heima við allan daginn,“ segir Berglind og hlær. Berglind elskar að hreyfa sig utandyra. Hún vann í líkamsræktarstöð í fimmtán ár og fékk í kjölfarið nóg af slíkum æfingum. „Ég fer út að hlaupa og mikið í fjallgöngur og næ að núllstilla mig í fersku lofti, hvernig sem viðr­ ar. Ég fer reyndar reglulega á Pilates­námskeið til að halda bakinu mínu í lagi en þess á milli hoppa ég og skoppa um fjöll og firnindi. Ég byrjaði einmitt á vormánuðum að deila ævintýraferðum og gönguferðum á blogginu svo nú eru öll áhugamálin mín á einum stað til að gefa öðrum hugmyndir og innblástur.“ Mataræði Berglind segist alls ekki fylgja einhverju ákveðnu matar æði heldur er það í takt við árstíðir, líðan og hvað líkaminn kallar á. „Ég reyni að fara hinn gullna meðalveg í mataræðinu þó svo ég viðurkenni að ég er allt of mikill nammigrís, það er bara svo erfitt að standast freistingarnar þegar maður er sífellt að útbúa eitthvað góm­ sætt. Ég neita mér sjaldnast um neitt en reyni frekar að fá mér bara minna,“ segir Berglind. „Ég reyni samt að borða alltaf reglulega allan daginn, morgunmatur, stundum milli­ mál, hádegismatur, síðdegis­ hressing og kvöldmatur eru fastir liðir og svo laumast kvöldsnarl inn svona annað slagið. Ég reyni að halda slíku í kringum helgarnar og segi stundum að ég sé í „4/3 átak­ inu“. Það felur í sér að borða ekki eftir kvöldmat fjóra daga vikunnar (mánu­fimmtu­ daga) en svo er allt leyfilegt hina þrjá dagana. Vinir mínir gera mikið grín að mér þegar kemur að mataræðinu en ætli hver og einn þurfi ekki bara að finna sinn takt og þetta hentar mér bara ágætlega.“ Uppáhaldsmáltíð? „Úff, mér finnst erfitt að svara þessari. Hægeldaður lambahryggur eins og amma Guðrún gerði hann er klárlega ofarlega á þessum lista, síðan elska ég ristaða humarhala og nautalund,“ segir Berglind og deilir með okkur uppskrift að ljúffengri pitsu. n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.