Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2020, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2020, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR 25. SEPTEMBER 2020 DV MÓTMÆLI VIÐ EINKAHEIMILI OFT KOMIÐ MÓTMÆLENDUM Í KOLL Í vikunni sagði DV frá því að mótmælendur hefðu límt myndir af börnum sem Útlendingastofnun hafði synjað um dvalarleyfi í and- dyri fjölbýlishúss í Reykjavík þar sem Áslaug Arna Sigur- björnsdóttir dómsmálaráð- herra býr. Mótmælin virðast hafa haft þveröfug áhrif við það sem var ætlað. Viðbrögðin við frétt DV voru nokkuð af- gerandi og virðist fólk taka þá stefnu að heimili sé friðhelgt, líka heimili ráðherra. Íslendingar hafa frá banka- hruni kynnst mótmælum af allt öðru kalíberi en áður. Mót- mælt var nokkuð kröftuglega á árunum 2008-2010. Hófust þau kynni þegar vörubílstjór- ar mótmæltu hækkandi bens- ínverði. Lokuðu mótmælendur meðal annars Suðurlandsvegi í eitt skipti og kom til átaka við lögreglu. Mótmælin urðu reyndar afdrifarík fyrir aðra en mótmælendur og lögreglu- menn. Í beinni útsendingu af mótmælunum heyrðist í Láru Ómarsdóttur fréttamanni biðja mótmælendur um að endurtaka eggjakast í lögreglu svo hún gæti náð því á mynd fyrir sjónvarpsútsendingu. At- vikið kostaði Láru starfið. Mótmælin lögðu að mörgu leyti grunn að því sem koma skyldi. Stigvaxandi harka Fljótlega eftir gjaldþrot og ríkisvæðingu bankanna þriggja í október 2008 fór fólk að hópast saman og mótmæla hvernig komið var fyrir efna- hagslífi þjóðarinnar. Mótmæl- in áttu eftir að stigmagnast dag frá degi. Í nóvember voru mótmælendur orðnir fjögur þúsund. 8. nóvember klifraði einn mótmælandi upp á Al- þingishúsið og dró Bónusfána að hún. Mótmælendur komu í veg fyrir að lögregla gæti handtekið manninn. Hægt og rólega jókst harkan í mótmælendum og beindist reiði þeirra ekki síst að persónum í ráðherraemb- ættunum. Þessi reiði beindist líklega einna helst að Geir H. Haarde forsætisráðherra, Þor- gerði Katrínu Gunnarsdóttur, varaformanni Sjálfstæðis- flokksins og menntamála- ráðherra, og Davíð Oddssyni seðlabankastjóra. Bankahrunið var ekki eini hvatinn að mótmælum á þess- um tíma. Árið 2009 birtust mótmælendur utan við heimili Rögnu Árnadóttur, sem var þá utanþingsráðherra í vinstri- stjórn Jóhönnu Sigurðardótt- ur. Mótmælendur mótmæltu þá brottvísun hælisleitenda frá Íslandi. Á sama tíma var mótmælt við heimili Hauks Guðmundssonar þáverandi forstjóra Útlendingastofnunar. Friðhelgi heimilisins rofið Fljótlega eftir útgáfu rann- sóknarskýrslu Alþingis þann 12. apríl 2010 birti visir.is fréttina „SMS-mótmæli fyrir utan heimili Þorgerðar Katr- ínar“. Í dag hefði Facebook gegnt hlutverki SMS í að boða mótmælendur á staðinn. Var það fyrsta frétt sem sögð var af nokkuð háværum mótmælum utan við heimili Þorgerðar og Kristjáns Ara- sonar eiginmanns hennar. Beindist reiðin að viðskipta- sögu eiginmanns Þorgerðar, en lán sem félag í eigu Krist- jáns hafði tekið vegna hluta- bréfaviðskipta voru afskrifuð. Brutu mótmælin utan við heimili Þorgerðar blað í ís- lenskri mótmælasögu og upp vöknuðu spurningar um hvort rétt væri að blanda saman persónulegu lífi ráðherr- ans, friðhelgi heimilis hans og fjölskyldu hans, og emb- ættisfærslum. Mótmælendur gengu mjög hart að Þorgerði Katrínu og virðist vel hægt að færa rök fyrir því að samúð almennings hafi fallið með Þorgerði í málinu vegna hörku mótmælenda. Skulda- afskriftum Kristjáns Ara- sonar og Þorgerðar var ekki mótmælt aftur af svo miklum krafti. Þorgerður Katrín sagði af sér varaformennsku í Sjálfstæðisflokknum síðar í aprílmánuði 2010. Í viðtali í Fréttablaðinu árið 2018 sagði Þorgerður að mótmælin fyrir utan heimili hennar átta árum áður hefðu verið „ein af allra sárustu stundunum“. „Það var verið að eggja húsið, við vorum að reyna að fara út áður en börnin og nágrann- ar vöknuðu til að hreinsa. Passa upp á allt fyrir börnin. Það var alltaf það sem maður var að gera, passa að daglegt líf barnanna breyttist ekki,“ sagði Þorgerður jafnframt í viðtalinu. Sama dag og Þorgerður Katrín sagði af sér fóru mót- mælendur að birtast við heimili Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur og fjölskyldu hennar. Þau mótmæli áttu eftir að standa svo til óslitin í fimm vikur, eða til 24. maí. Steinunn var á þessum tíma fyrrverandi borgarstjóri og þingmaður Samfylkingar- innar. Hún hafði sér til saka unnið að þiggja styrki frá Baugi og FL Group. Mótmælunum utan við heimili Steinunnar var seinna lýst sem „smánarbletti á ís- lenskri stjórnmálasögu“ af Birgittu Jónsdóttur, fyrr- verandi þingmanni Pírata. Birgitta var sjálf mjög virk í skipulagningu mótmælanna í kjölfar hrunsins. Þorgerður Katrín og Guðlaugur Þór Þórðar son þáðu einnig nokkuð háa styrki frá þessum fyrir- tækjum. Þó var aldrei mót- mælt við heimili Guðlaugs. Eftirmálum „hrunsins“ var svo víða og oft mótmælt. Þannig brutust út mótmæli við Stjórnarráðið og Seðla- bankann þegar Hæstiréttur hafði fellt dóm um ólög- mæti gengistryggðra lána. Við tóku háværar deilur um hvaða vexti miða skyldi við í kjölfarið. Til smávægi- legra pústra kom milli mót- mælenda og lögreglu þann 6. júní 2010 þegar því var mót- mælt að ekki skyldi miða við samningsvexti á þeim lánum. Í júlí það ár skvettu mótmæl- endur málningu á húsakynni Alþjóða gjaldeyrissjóðsins á Hverfisgötu, og grýttu svo ráðherra og þingmenn er þeir gengu til guðsþjónustu við þingsetningu 1. október. Ein fjölmennustu mótmæli Íslandssögunnar fylgdu svo fast á eftir, en 4. október tókst mótmælendum að trufla stefnuræðu Jóhönnu Sigurð- ardóttur forsætisráðherra. Mótmæli við heimili ráðherra eru óalgeng hér á landi en verða þó. Hingað til hafa þau grafið undan málstað mótmælenda og aukið samúð með þeim sem mótmælin snúa að. Heimir Hannesson heimir@dv.is Mótmæli við heimili Bjarna vöktu reiði Árið 2016 birtust svo mót- mælendur fyrir utan heim- ili Bjarna Benediktssonar. Krafðist hópurinn þess að boðað yrði til kosninga strax. Steinunn Valdís fordæmdi mótmælin og hvatti engan til þess að mæta. Eins sagði Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, að hug- myndin væri hræðileg og að „ráðherra ætti rétt á því að geta verið í friði heima hjá sér“. Eins sagði Gunnar Sig- valdason, eiginmaður Katrín- ar Jakobsdóttur formanns VG, í ítarlegri færslu á Face book að hann og eiginkona hans hefðu lent í aðstæðum sem þessum. Þar hefði fjölskyldan „orðið óttaslegin“ og „alls konar fólk“ komið óboðið heim til þeirra. Að mótmæla fyrir utan heimili fjölskylduföður- ins Bjarna Benediktssonar „væri einfaldlega rangt“. Öll tilfelli mótmæla við heimili ráðherra, þingmanna og annarra embættismanna hafa fallið um sjálf sig. Þau hafa án undantekninga dregið athygli frá málstað mótmæl- enda og úr samúð almennings með honum. Þvert á móti hafa mótmælin svo aukið samúð með persónu ráðherrans, sem virðist svo hafa smitast í emb- ættisstörf hans, enda skilin á milli persónu og embættis- mannsins oft óljós. n Mótmæli á Íslandi heyrðu til undan- tekninga fram til ársins 2008. MYND/DANÍEL

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.