Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2020, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2020, Blaðsíða 21
Á rið 1947 bjó hin 26 ára gamla hjúkrunar-kona Martha Beck í borginni Milton í Flórída- fylki. Hún átti tvö börn með eiginmanni sem hafði framið sjálfsmorð. Í leit að ástinni nýtti Martha sér einkamála- dálka dagblaðanna, sem voru eins konar stefnumótasíður þess tíma. Einkamáladálkarnir leiddu til þess að Martha kynntist flagaranum Raymond Fern- andez. Skömmu eftir fyrstu bréfaskrifin þeirra á milli kom Martha börnunum sín- um fyrir hjá ættingjum eða vinum og flutti til New-York- borgar, þar sem Raymond bjó. „Dávaldur“ nýtti sér neyð einstæðra kvenna Raymond Fernandez hafði lífsviðurværi sitt af því að kynnast einstæðum, eldri og vel stæðum konum í gegnum einkamáladálkana, með það að markmiði að svíkja þær svo og pretta. Martha var hins vegar ung og illa stæð og þar af leiðandi ólík fórn- arlömbum Raymonds, enda virðist samband þeirra hafa verið sérstakt. Hann hafði lagt stund á „svartagaldur“, en hann taldi sig nefnilega geta dáleitt kon- ur til að verða ástfangnar af sér. Raymond trúði Mörthu fyrir þessum leyndarmálum sínum, en hún varð, ótrú- legt en satt, heilluð af lífsstíl Ray monds, þau ákváðu því að vinna saman. Þóttist vera systir elskhugans Raymond og Martha fundu saman fórnarlömb, sem voru líkt og áður segir einstæðar konur. Þegar kom að því að hitta eða heimsækja þær, kom Martha með, en hún þóttist vera systir Raymonds, þrátt fyrir að vera ástkona hans í raun og veru. Þetta á að hafa gert leikrit þeirra trúverðugra, þar sem „fjöl- skyldumeðlimur“ Raymonds var kominn í spilið. Þetta átti reyndar eftir að reyna á samband þeirra, en Martha á að hafa verið gríðarlega afbrýðisöm vegna samskipta Raymonds við hinar konurnar. Hann á að hafa lofað því að sofa ekki hjá neinni annarri en henni. Það stöðvaði þó ekki þráhyggju Mörthu, sem sá Raymond sí- fellt fyrir sér í örmum ann- arra kvenna. Drápu fórnarlömbin Hin 66 ára gamla Janet Fay var eitt fórnarlamba Mörthu og Raymonds. Janet flutti til þeirra árið 1949 og það með þúsundir dollara í farteskinu, fullviss um að Raymond væri ástin í lífi sínu. Sambandinu lauk þó skjótt. Þegar Martha gekk inn á Janet og Raymond trylltist hún og á að hafa slegið Janet oft og mörgum sinnum í höfuðið. Þó á Ray- mond að hafa lokið verkinu, með því að kyrkja hana með trefli. Þau földu síðan líkið með því að grafa það í jörðu. Sama ár urðu þær Delph- ine Downing, 28 ára ekkja, og tveggja ára gömul dóttir hennar fyrir barðinu á skötu- hjúunum. Martha og Ray- mond fluttu inn til þeirra í borginni Wyoming, í Mich- igan-fylki. Sú sambúð endaði með ósköpum. Þau myrtu þær báðar á hrottafenginn hátt eftir að grátur dótturinn- ar fór í taugarnar á Mörthu. Þau földu líkin í kjallara húss Delphine. Nágrannar hennar áttuðu sig á því að eitthvað grunsamlegt væri í gangi og gerðu lögreglunni viðvart. Ákærð fyrir tuttugu morð Ekki er vitað hversu mörg morð Martha Beck og Ray- mond Fernandez frömdu, en þau voru ákærð fyrir tutt- ugu. Þau játuðu fyrrnefnd morð en talið er að þau hafi játað í þeirri trú að þá yrðu þau ekki framseld til New York-fylkis, þar sem dauða- refsingin var við lýði, annað en í Michigan, þar sem þau voru handtekin. Það reyndist þó rangt og þau voru fram- seld til New-York. Sögð hafa sofið saman við hlið líksins Réttarhöldin og aðdragandi þeirra þóttu heldur óvenjuleg, en fjölmiðlar lýstu ósiðlegu kynlífi parsins. Til að mynda var því haldið fram að þau hefðu sofið saman á gólfinu við hlið líksins af Janet Fay, skömmu eftir morðið. Það hafi þau gert í stað þess að hreinsa upp blóðið eða fela líkið. Martha á að hafa verið óá- nægð með þessa umfjöllun og sent ritstjórum nokkurra dagblaða bréf vegna þessa, einhverjir hafa þó haldið því fram að hún hafi sjálf lekið sögum sem þessum til fjöl- miðla. „Hvað veit almenningur um ást?“ Verjendur þeirra héldu því fram að Martha og Raymond ættu við geðræn vandamál að stríða og væru með verulega brenglaða sýn á veruleikann. Dómarar gáfu lítið fyrir það. Bæði fengu dauðadóm og voru þau tekin af lífi þann 8. mars 1951. Lokaorð Raymonds voru: „Mig langar að öskra það. Ég elska þig, Martha! Hvað veit almenningur um ást?“ Loka- orð Mörthu voru: „Saga mín er ástarsaga. Einungis þeir sem hafa verið kvaldir af ást, munu skilja mig.“ Frábær kvikmynd var gerð um ástir og glæpi þeirra Mörthu Beck og Raymonds Fernandez. The Honeymoon Killers (1970), var eina kvik- myndaverk leikstjórans Leonards Kastle. Franska k v i k m y n d a g o ð s ö g n i n François Truffaut fullyrti einu sinni að myndin væri uppáhalds bandaríska kvik- myndin sín. n BRÚÐKAUPSFERÐ DAUÐANS Martha Beck og Raymond Fernandez voru ákærð fyrir að fremja tuttugu morð. Raymond lagði stund á „svartagaldur“ til þess að dáleiða og koma sér í mjúkinn hjá einstæðum konum. Martha þóttist vera systir hans, þó að þau væru í raun elskendur. Martha og Raymond sögðust elska hvort annað til endaloka. Hér eru þau með lögfræðingi sínum (fyrir miðju). MYND/GETTY Plaggat myndar- innar The Honeymoon Killers, sem fjallar um glæpahjúin ótrúlegu. SAKAMÁL Jón Þór Stefánsson jonthor@dv.is FÓKUS 21DV 25. SEPTEMBER 2020

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.