Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2020, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2020, Blaðsíða 28
Konan mín fæddi okkar fyrsta barn fyrir nokkr-um mánuðum síðan. Þetta átti að vera hamingju- samasti tíminn í samband- inu okkar en raunin hefur orðið önnur. Sonur okkar er með magakveisu og hefur verið afar erfiður og lítið um svefn hjá okkur foreldrunum. Konan mín hefur verið greind með fæðingarþunglyndi og er að fá hjálp vegna þess. Hins vegar held ég að ég þjáist líka af fæðingarþung- lyndi. Ég hef lesið um að karlmenn geti fengið það líka og mér er búið að líða ömur- lega frá því að við komum heim af fæðingardeildinni og finnst ég ótrúlega gagns- laus sem faðir og maki. Ég þori hins vegar ekki að segja konunni minni frá því. Ég er hræddur um að hún upplifi það sem ég sé að gera lítið úr hennar vandamálum eða að ég sé að „stela“ fæðingar- þunglyndinu hennar, ef það meikar eitthvað sense. Hvað er best fyrir mig að gera? Ég vil bara vera til staðar fyrir son minn og hana en finnst ég vera fastur í svartholi. Einlæg spurning Sæll. Takk fyrir einlæga spurningu og innilega til hamingju með barnið þitt. Rannsóknir sýna að karlmenn upplifa mun meira fæðingar- þunglyndi en almennt er tal- ið. Lítið er rætt um þennan vanda og mikilvægt er að opna umræðuna. Af þeim sökum er ég þér afar þakklát fyrir þessa spurningu. Nýjustu tölulegu upplýs- ingar benda til þess að um 15 prósent mæðra fái fæðingar- þunglyndi og það sama á við um 12 prósent feðra. Fæðing- arþunglyndi karla stafar oft af öðrum sökum en kvenna. Hjá konum spila horm- ónar og líffræðilegir þættir stærra hlutverk, hjá körlum geta umhverfisþættir eins og álag, spennufall, áhyggjur og streita kallað fram sam- bærilega líðan. Hver svo sem ástæðan er þá er þunglyndi alltaf vont, en sem betur fer er hægt að fá aðstoð við því sem við vitum að skilar ár- angri. Líðan móður hefur áhrif Mér hefur þótt það sérlega athyglisvert að parameð- ferð hefur borið mjög góðan árangur og stundum betri en einstaklingsmeðferð þegar kemur að þunglyndi. Sömu- leiðis sýna rannsóknir í tengslum við fæðingarþung- lyndi að líðan móður eftir fæðingu getur haft veruleg áhrif á líðan föður. Þá hefur fæðingarþunglyndi feðra marktæk áhrif á tengsla- myndun beggja foreldra við barnið. Allt undirstrikar þetta hvað parsambandið er voldugt og hvað makinn er í góðri stöðu til þess að hafa áhrif á líðan hins. „Hamingjusamasti tíminn“ Þitt dæmi rímar mjög vel við þessar staðreyndir. Konan þín hefur fundið fyrir fæðingar- þunglyndi, barnið ykkar er óvært og með kveisu og tíminn sem þú sást fyrir sem „hamingjusamasta tíma lífsins“ er að valda þér von- brigðum. Þetta eru allt breyt- ur sem hafa bein tengsl við þína líðan. Það sem þó er afar mikilvægt að líta til í þessu samhengi er að þú vilt helst ekki vekja athygli á vanda þínum eða leita þér aðstoðar. Ástæðuna segir þú vera að þú viljir vera til staðar fyrir son þinn og konu. En elsku kallinn minn, ná- kvæmlega þess vegna ættir þú einmitt að ræða þetta við konuna þína. Það getur vel verið að þið séuð að hafa „smitandi“ áhrif hvort á ann- að og því fyrr sem þið bæði, helst sameiginlega, fáið að- stoð því fyrr mun ykkur báð- um líða betur. Þú ert að gera hárrétt fyrir þig, konuna þína og barnið ykkar með því að segja frá, nýta parsambandið til góðs og fá hjálp. Finnst þér ekki magnað hvað við erum oft í góðri trú um að við séum að gera góðverk og vernda okkar nánustu á meðan við í raun erum að grafa dýpri skurð? Getur gefið henni kraft Þó svo að konan þín finni fyrir þunglyndi sjálf og sé mögulega ekki mikill bógur í því ástandi til þess að hjálpa þér þá getur það samt gefið henni kraft að til hennar sé leitað. Það er enginn að biðja hana eða strákinn ykkar að taka vanlíðan þína eða taka sér minna pláss með sína líðan heldur ertu að ítreka að þið fáið öll viðeigandi aðstoð. Við meðhöndlun á fæð- ingarþunglyndi hafa verið notaðar margvíslegar að- ferðir og stundum þarf fólk að prófa nokkrar leiðir til þess að finna það sem virkar best fyrir sig. Í ykkar tilfelli finnst mér líklegt að kveisu- einkenni sonar ykkar séu að hafa mikil áhrif. Manneskjan er „forrituð“ með þeim hætti að okkur þykir óþægilegt að hlusta á barnsgrát, einmitt til þess að við bregðumst við og leitum allra leiða til að hugga og vernda barnið. Ég veit að þið eruð örugg- lega búin að prófa ýmislegt í örvæntingu ykkar, en getur verið að heilsugæslan, barna- læknir, Bowen-tækni, höfuð- beina- og spjaldhryggsmeð- ferð eða malt-extract dropar geti hjálpað? Ég er enginn sérfræðingur í kveisum en allt framangreint hef ég heyrt að geti í sumum tilfellum gef- ið góða raun. Þá er talað um að ungbörn verði oftast betri í kringum þriggja mánaða aldurinn svo mögulega eruð þið að nálgast þann þrösk- uld. Stundum dugar að taka á svona umhverfisþáttum svo líðan þeirra sem þjást af þunglyndi skáni. Þiggið alla hjálp Þá veit ég til þess að heilsu- gæslan er farin að líta miklu meira til fæðingarþunglynd- is beggja foreldra. Sumar heilsugæslur skima fyrir líð- an bæði nýbakaðra mæðra og feðra og ef eftir aðstoð er leit- að get ég ekki ímyndað mér annað en að ykkur mæti gott viðmót í ungbarnaeftirlitinu. Einnig gæti heimilislæknir ráðlagt ykkur í tengslum við lyfjameðferð og ég veit að sál- fræðingar, foreldragrúppur og námskeið í hugrænni at- ferlismeðferð eru í boði á mörgum stöðum. Í guðs bænum, þiggið þetta allt. Svo mæli ég alltaf með parameðferð, hvort sem vand- inn liggur í parsambandinu eða sem sálrænn vandi ann- ars aðilans. Sennilega virkar eitthvað af framangreindu og þá munt þú aldrei sjá eftir því að hafa ráðist í þessa vegferð. Þú ert að hjálpa þér, syni þínum og konunni þinni með því að stinga á kýlið. Með því að senda mér þessa spurningu ertu búinn að taka fyrsta skrefið. Restin verður leikur einn. Ég held með ykkur! n Við hvetjum lesendur til að senda spurningar og vangaveltur sínar til Kristínar í tölvupósti á: hjonabandssaela@gmail.com. Spurningunum verður svo svarað hér í Fjölskylduhorninu, að sjálf- sögðu nafnlaust og í fullum trúnaði. 28 FÓKUS 25. SEPTEMBER 2020 DV Fjölskylduhornið Kristín Tómasdóttir hjónabandsráðgjafi svarar spurningum lesenda um málefni er varða fjölskylduna, börnin og ástina í Fjölskylduhorni DV. Að þessu sinni svarar Kristín spurningu föður sem glímir við fæðingarþunglyndi. FINNST ÉG GAGNSLAUS SEM FAÐIR Feður glíma einnig við fæðingarþunglyndi. MYND/GETTY Sérfræðingur svarar Mér er búið að líða ömur- lega frá því að við komum heim af fæðingardeildinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.