Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2020, Page 28
Konan mín fæddi okkar fyrsta barn fyrir nokkr-um mánuðum síðan.
Þetta átti að vera hamingju-
samasti tíminn í samband-
inu okkar en raunin hefur
orðið önnur. Sonur okkar er
með magakveisu og hefur
verið afar erfiður og lítið um
svefn hjá okkur foreldrunum.
Konan mín hefur verið greind
með fæðingarþunglyndi og er
að fá hjálp vegna þess.
Hins vegar held ég að ég
þjáist líka af fæðingarþung-
lyndi. Ég hef lesið um að
karlmenn geti fengið það líka
og mér er búið að líða ömur-
lega frá því að við komum
heim af fæðingardeildinni
og finnst ég ótrúlega gagns-
laus sem faðir og maki. Ég
þori hins vegar ekki að segja
konunni minni frá því. Ég er
hræddur um að hún upplifi
það sem ég sé að gera lítið
úr hennar vandamálum eða
að ég sé að „stela“ fæðingar-
þunglyndinu hennar, ef það
meikar eitthvað sense. Hvað
er best fyrir mig að gera? Ég
vil bara vera til staðar fyrir
son minn og hana en finnst ég
vera fastur í svartholi.
Einlæg spurning
Sæll. Takk fyrir einlæga
spurningu og innilega til
hamingju með barnið þitt.
Rannsóknir sýna að karlmenn
upplifa mun meira fæðingar-
þunglyndi en almennt er tal-
ið. Lítið er rætt um þennan
vanda og mikilvægt er að
opna umræðuna. Af þeim
sökum er ég þér afar þakklát
fyrir þessa spurningu.
Nýjustu tölulegu upplýs-
ingar benda til þess að um 15
prósent mæðra fái fæðingar-
þunglyndi og það sama á við
um 12 prósent feðra. Fæðing-
arþunglyndi karla stafar oft
af öðrum sökum en kvenna.
Hjá konum spila horm-
ónar og líffræðilegir þættir
stærra hlutverk, hjá körlum
geta umhverfisþættir eins
og álag, spennufall, áhyggjur
og streita kallað fram sam-
bærilega líðan. Hver svo sem
ástæðan er þá er þunglyndi
alltaf vont, en sem betur fer
er hægt að fá aðstoð við því
sem við vitum að skilar ár-
angri.
Líðan móður hefur áhrif
Mér hefur þótt það sérlega
athyglisvert að parameð-
ferð hefur borið mjög góðan
árangur og stundum betri en
einstaklingsmeðferð þegar
kemur að þunglyndi. Sömu-
leiðis sýna rannsóknir í
tengslum við fæðingarþung-
lyndi að líðan móður eftir
fæðingu getur haft veruleg
áhrif á líðan föður. Þá hefur
fæðingarþunglyndi feðra
marktæk áhrif á tengsla-
myndun beggja foreldra við
barnið. Allt undirstrikar
þetta hvað parsambandið er
voldugt og hvað makinn er
í góðri stöðu til þess að hafa
áhrif á líðan hins.
„Hamingjusamasti tíminn“
Þitt dæmi rímar mjög vel við
þessar staðreyndir. Konan þín
hefur fundið fyrir fæðingar-
þunglyndi, barnið ykkar er
óvært og með kveisu og
tíminn sem þú sást fyrir
sem „hamingjusamasta tíma
lífsins“ er að valda þér von-
brigðum. Þetta eru allt breyt-
ur sem hafa bein tengsl við
þína líðan. Það sem þó er afar
mikilvægt að líta til í þessu
samhengi er að þú vilt helst
ekki vekja athygli á vanda
þínum eða leita þér aðstoðar.
Ástæðuna segir þú vera að þú
viljir vera til staðar fyrir son
þinn og konu.
En elsku kallinn minn, ná-
kvæmlega þess vegna ættir
þú einmitt að ræða þetta
við konuna þína. Það getur
vel verið að þið séuð að hafa
„smitandi“ áhrif hvort á ann-
að og því fyrr sem þið bæði,
helst sameiginlega, fáið að-
stoð því fyrr mun ykkur báð-
um líða betur. Þú ert að gera
hárrétt fyrir þig, konuna þína
og barnið ykkar með því að
segja frá, nýta parsambandið
til góðs og fá hjálp. Finnst þér
ekki magnað hvað við erum
oft í góðri trú um að við séum
að gera góðverk og vernda
okkar nánustu á meðan við
í raun erum að grafa dýpri
skurð?
Getur gefið henni kraft
Þó svo að konan þín finni
fyrir þunglyndi sjálf og sé
mögulega ekki mikill bógur í
því ástandi til þess að hjálpa
þér þá getur það samt gefið
henni kraft að til hennar sé
leitað. Það er enginn að biðja
hana eða strákinn ykkar að
taka vanlíðan þína eða taka
sér minna pláss með sína
líðan heldur ertu að ítreka að
þið fáið öll viðeigandi aðstoð.
Við meðhöndlun á fæð-
ingarþunglyndi hafa verið
notaðar margvíslegar að-
ferðir og stundum þarf fólk
að prófa nokkrar leiðir til
þess að finna það sem virkar
best fyrir sig. Í ykkar tilfelli
finnst mér líklegt að kveisu-
einkenni sonar ykkar séu að
hafa mikil áhrif. Manneskjan
er „forrituð“ með þeim hætti
að okkur þykir óþægilegt að
hlusta á barnsgrát, einmitt til
þess að við bregðumst við og
leitum allra leiða til að hugga
og vernda barnið.
Ég veit að þið eruð örugg-
lega búin að prófa ýmislegt í
örvæntingu ykkar, en getur
verið að heilsugæslan, barna-
læknir, Bowen-tækni, höfuð-
beina- og spjaldhryggsmeð-
ferð eða malt-extract dropar
geti hjálpað? Ég er enginn
sérfræðingur í kveisum en
allt framangreint hef ég heyrt
að geti í sumum tilfellum gef-
ið góða raun. Þá er talað um
að ungbörn verði oftast betri
í kringum þriggja mánaða
aldurinn svo mögulega eruð
þið að nálgast þann þrösk-
uld. Stundum dugar að taka
á svona umhverfisþáttum
svo líðan þeirra sem þjást af
þunglyndi skáni.
Þiggið alla hjálp
Þá veit ég til þess að heilsu-
gæslan er farin að líta miklu
meira til fæðingarþunglynd-
is beggja foreldra. Sumar
heilsugæslur skima fyrir líð-
an bæði nýbakaðra mæðra og
feðra og ef eftir aðstoð er leit-
að get ég ekki ímyndað mér
annað en að ykkur mæti gott
viðmót í ungbarnaeftirlitinu.
Einnig gæti heimilislæknir
ráðlagt ykkur í tengslum við
lyfjameðferð og ég veit að sál-
fræðingar, foreldragrúppur
og námskeið í hugrænni at-
ferlismeðferð eru í boði á
mörgum stöðum.
Í guðs bænum, þiggið þetta
allt. Svo mæli ég alltaf með
parameðferð, hvort sem vand-
inn liggur í parsambandinu
eða sem sálrænn vandi ann-
ars aðilans. Sennilega virkar
eitthvað af framangreindu og
þá munt þú aldrei sjá eftir því
að hafa ráðist í þessa vegferð.
Þú ert að hjálpa þér, syni
þínum og konunni þinni með
því að stinga á kýlið. Með því
að senda mér þessa spurningu
ertu búinn að taka fyrsta
skrefið. Restin verður leikur
einn. Ég held með ykkur! n
Við hvetjum lesendur til að senda
spurningar og vangaveltur sínar til
Kristínar í tölvupósti á:
hjonabandssaela@gmail.com.
Spurningunum verður svo svarað
hér í Fjölskylduhorninu, að sjálf-
sögðu nafnlaust og í fullum trúnaði.
28 FÓKUS 25. SEPTEMBER 2020 DV
Fjölskylduhornið
Kristín Tómasdóttir hjónabandsráðgjafi
svarar spurningum lesenda um málefni
er varða fjölskylduna, börnin og ástina í
Fjölskylduhorni DV. Að þessu sinni svarar
Kristín spurningu föður sem glímir við
fæðingarþunglyndi.
FINNST ÉG GAGNSLAUS SEM FAÐIR
Feður glíma einnig við fæðingarþunglyndi. MYND/GETTY
Sérfræðingur svarar
Mér er búið að líða ömur-
lega frá því að við komum
heim af fæðingardeildinni.