Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2020, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2020, Blaðsíða 26
Af bönunum og öfgakúrum TÍMAVÉLIN M argir hafa freistast til að prófa nýjasta tískukúrinn í gegn- um tíðina til að bræða af sér spikið á sem skemmstum tíma, enda hafa fæstir úthald í að viðhalda kúrum um langt skeið. Vinsælir kúrar á árum áður voru oft æði skrautlegir og öfgafullir. Orðið kúr hefur nýverið fengið á sig neikvæða merk- ingu í daglegu tali og rétti- lega svo. Hins vegar lifa kúrarnir enn góðu lífi en kallast nú mataræði eða lífs- stílsbreytingar. Dæmi um þetta eru ketó-mataræðið vinsæla, paleo-mataræðið og lágkolvetna-lífsstíllinn. Á árum áður voru ýmsir skyndikúrar vinsælir og megrunarpillur, -duft og jafnvel megrunarkaramellur seldust eins og heitar fitu- skertar lummur. Það er þekkt staðreynd í dag að skyndi- kúrar virka ekki og geta verið skaðlegir heilsunni og það sama á við um alla kúra og matarvenjur sem byggjast á öfgum. Þessar staðreyndir voru minna þekktar í denn og því er gaman að rifja upp nokkra öfgafulla skyndikúra sem nutu vinsælda milli sjöunda og níunda áratugar síðustu aldar. Hvítvínskúrinn Hvítvínskúrinn naut nokk- urra vinsælda og var til í nokkrum útfærslum. Ein út- færslan fól í sér að drekka mátti ótakmarkað magn af hvítvíni og ekkert annað. Önnur og það líklega þekkt- asta útfærslan fólst í því að neyta hvítvínsflösku á dag í þrjá daga samhliða mjög ein- hæfu og takmörkuðu fæði. „Hafið þið heyrt um „hvít- vínskúrinn?“ sagði í Tíman- um í september 1983. „Þetta er mjög erfiður og strangur kúr, og eiginlega ekki not- hæfur nema í neyðartilvik- um, t.d. ef fötin eru orðin of þröng og stendur til að fara í stórafmæli eða aðra hátíð um næstu helgi. Ef farið er nákvæmlega eftir hvítvíns- kúrnum á fólk að geta náð af sér fimm pundum á tveim dögum.“ Þessi útfærsla fólst í því að í tvo til þrjá daga átti að fara eftir eftirfarandi matseðli: Um morguninn • Svart kaffi, 1 linsoðið egg, 1 glas af þurru hvítvíni. Hádegisverðurinn • Svart kaffi, 2 linsoðin egg, 2 glös af hvítvíninu. Miðdegiskaffið • Svart og sykurlaust kaffi. Kvöldverður • 200 grömm af nautakjöti, þurr- steikt eða grillað og með því er drukkið það sem eftir er í hvít- vínsflöskunni. Kartöflukúrinn „Senn líður að því að hægt verði að fara að narta í nýju kartöflurnar og þá er upplagt að byrja á þessum megrunar- kúr – það er að segja fyrir þá sem geta státað af einhverj- um „umframþunga“. Ef farið er nákvæmlega eftir honum má losna við 3-5 kíló á viku án þess að finna til sultar og verða meira að segja hress- ari og sprækari en áður.“ Svo sagði í Vikunni í ágúst árið 1982. „Kartöflumegrunar- kúrinn fer nú sigurför um mestan hluta hins vestræna heims. Hann er hollur og ódýr, réttirnir fljótlagaðir og flestum finnast þeir góðir.“ „Þessi kartöflukúr er jafn- framt einskonar fegrunarkúr sem stuðlar að því að svefn- inn verður dýpri, hrukkurnar færri og húðin sléttari um leið og aukakílóin hverfa og það án þess að viðkomandi finni nokkru sinni til svengd- ar,“ sagði í Morgunblaðinu í maí 1989. Á kartöflukúrnum átti að fara eftir sérstökum viku- matseðli eða matseðlum eftir því hversu lengi viðkomandi hafði hugsað sér að fylgja kúrnum. Stærstu máltíðir dagsins innihéldu mikið af kartöflum og millimálum og morgunmat var stillt í hita- einingahóf. Bananakúrinn Bananakúrinn svonefndi varð vinsæll um tíma í kringum 1970. „Þetta er ein- faldasti kúrinn en jafnframt sá erfiðasti því fæðan er svo einhæf: Í fjóra daga er ekki borðað annað en bananar og mjólk drukkin með. Borða má allt að 8 banana yfir daginn og drekka glas af mjólk með hverjum þeirra. Þeir sem kúrinn hafa prófað segja að hann virki mjög vel,“ svo sagði í Vikunni í janúar 1988. Banana- og hvítvínskúrinn Fyrir þá sem gátu ómögulega hugsað sér hvítvínskúrinn eða bananakúrinn var fundið upp á milliveginum, banana- og hvítvínskúrnum. Þá voru borðaðir um átta bananar á dag og hvítvín drukkið með. Í dálk Pressunnar, Dagbók Dúllu, var skrifað svo í júní 1989: „Amma á Einimelnum á heila gommu af megrunar- uppskriftum en það er svo- lítið erfitt að ákveða hvaða kúr er bestur. Hún mælir mest með banana- og hvít- vínskúrnum, sem hún fór á í fyrra, en það er víst alveg útilokað fyrir mig að redda svo miklu hvítvíni. Amma tók megrunina ógeðslega alvar- lega og hreinlega lá í hvítvíni. Það má nefnilega borða eins mikið af banönum og maður getur í sig látið og drekka ótakmarkað af hvít- víni, en amma hefur alltaf haft klígju fyrir banönum. Þess vegna drakk hún bara þeim mun meira af víninu og grenntist líka um heilan helling. (Mamma er soddan kvikindi að segja að amma hafi bara grennst af nær- ingarskorti. Hún hafi verið öskufull alla daga og ekki með nægilega rænu til að geta fengið sér að borða. Ég meina það... Þetta er nú alvöru kúr upp úr Familie Jo- urnal, svo það þýðir ekkert að skammast út í ömmu greyið!“ Vínberjakúrinn Blaðamaður DV skrifaði í júlí 1985 frá Bandaríkjunum og kynnti þar til leiks furðu- legan megrunarkúr. Vín- berja kúrinn. „Einn fábrotn- asti en um leið stórbrotnasti megrunarkúr sem litið hefur dagsins ljós fer nú um heimili saklausra íbúa Bandaríkja Norður-Ameríku. Hér ræðir um vínberjakúr- inn svonefnda sem breiðir nú úr sér eins og kákasusgerill eða fótanuddtæki. Talsmenn kúrsins sem væntanlega eru bræður og vinir vín- berjaræktenda og vínberja- heildsala segja að kúrinn sé sérstaklega til þess sniðinn að hvíla meltingarkerfið. Kúrnum er ætlað að standa í 7 heila daga. Enginn hvíldar- dagur skal vera í þeirri lotu, ósagt er hins vegar um fjölda sjúkrahússdaga til hvíldar og hressingar á eftir.“ Megrunarkúrinn fólst í því að fylgja stífum matseðli sem bauð ekki upp á mikla fjöl- breytni. „Fyrsti dagur: Morgun- matur skal vera einn bolli vatn, heitt. Út í það má kreista einn fjórða part sítr- ónu. Þá skal snæða meðal- stóran klasa af vínberjum. Reyna svo að ljúka morgun- verkunum og koma sér í vinnuna. Í hádeginu má svo fá sér meðalstóran klasa af vínberjum. Í þetta skiptið ekkert fikt með sítrónu. Í staðinn má koma klasanum fyrir á grænu salatblaði áður en neysla hefst. Mun slíkt vera lystaukandi. Í lokin má svo rífa salatblað í sig. Í kvöldmat er mælt með bolla af tei. Með honum er gott að fá sér meðalstóran klasa af vínberjum. Vínberin má skreyta með ferskjuræfli eða einhverju álíka fyrirbrigði af ávaxtagerð. Þegar hér er komið við sögu er dagur að kveldi kominn. Næsti dagur hefst eins, þarnæsti dagur líka og svo koll af kolli ef menn halda út í 7 daga.“ n Erla Dóra Magnúsdóttir erladora@dv.is Bæði hvít- vín og vínber urðu undir- stöður vin- sælla skyndi- kúra á árum áður. MYND/GETTY Megrunarkúrar af ýmsum gerðum hafa notið mikilla vinsælda í gegnum tíðina, þó svo að ágæti þeirra hafi verið umdeilt, einkum þeirra kúra sem ganga út á öfgar. 26 FÓKUS 25. SEPTEMBER 2020 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.