Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2020, Side 26
Af bönunum og öfgakúrum
TÍMAVÉLIN
M argir hafa freistast til að prófa nýjasta tískukúrinn í gegn-
um tíðina til að bræða af sér
spikið á sem skemmstum
tíma, enda hafa fæstir úthald
í að viðhalda kúrum um langt
skeið. Vinsælir kúrar á árum
áður voru oft æði skrautlegir
og öfgafullir.
Orðið kúr hefur nýverið
fengið á sig neikvæða merk-
ingu í daglegu tali og rétti-
lega svo. Hins vegar lifa
kúrarnir enn góðu lífi en
kallast nú mataræði eða lífs-
stílsbreytingar. Dæmi um
þetta eru ketó-mataræðið
vinsæla, paleo-mataræðið og
lágkolvetna-lífsstíllinn.
Á árum áður voru ýmsir
skyndikúrar vinsælir og
megrunarpillur, -duft og
jafnvel megrunarkaramellur
seldust eins og heitar fitu-
skertar lummur. Það er þekkt
staðreynd í dag að skyndi-
kúrar virka ekki og geta
verið skaðlegir heilsunni og
það sama á við um alla kúra
og matarvenjur sem byggjast
á öfgum. Þessar staðreyndir
voru minna þekktar í denn
og því er gaman að rifja upp
nokkra öfgafulla skyndikúra
sem nutu vinsælda milli
sjöunda og níunda áratugar
síðustu aldar.
Hvítvínskúrinn
Hvítvínskúrinn naut nokk-
urra vinsælda og var til í
nokkrum útfærslum. Ein út-
færslan fól í sér að drekka
mátti ótakmarkað magn af
hvítvíni og ekkert annað.
Önnur og það líklega þekkt-
asta útfærslan fólst í því að
neyta hvítvínsflösku á dag í
þrjá daga samhliða mjög ein-
hæfu og takmörkuðu fæði.
„Hafið þið heyrt um „hvít-
vínskúrinn?“ sagði í Tíman-
um í september 1983. „Þetta
er mjög erfiður og strangur
kúr, og eiginlega ekki not-
hæfur nema í neyðartilvik-
um, t.d. ef fötin eru orðin of
þröng og stendur til að fara
í stórafmæli eða aðra hátíð
um næstu helgi. Ef farið er
nákvæmlega eftir hvítvíns-
kúrnum á fólk að geta náð
af sér fimm pundum á tveim
dögum.“
Þessi útfærsla fólst í því að
í tvo til þrjá daga átti að fara
eftir eftirfarandi matseðli:
Um morguninn
• Svart kaffi, 1 linsoðið egg, 1 glas
af þurru hvítvíni.
Hádegisverðurinn
• Svart kaffi, 2 linsoðin egg, 2 glös
af hvítvíninu.
Miðdegiskaffið
• Svart og sykurlaust kaffi.
Kvöldverður
• 200 grömm af nautakjöti, þurr-
steikt eða grillað og með því er
drukkið það sem eftir er í hvít-
vínsflöskunni.
Kartöflukúrinn
„Senn líður að því að hægt
verði að fara að narta í nýju
kartöflurnar og þá er upplagt
að byrja á þessum megrunar-
kúr – það er að segja fyrir þá
sem geta státað af einhverj-
um „umframþunga“. Ef farið
er nákvæmlega eftir honum
má losna við 3-5 kíló á viku
án þess að finna til sultar og
verða meira að segja hress-
ari og sprækari en áður.“ Svo
sagði í Vikunni í ágúst árið
1982. „Kartöflumegrunar-
kúrinn fer nú sigurför um
mestan hluta hins vestræna
heims. Hann er hollur og
ódýr, réttirnir fljótlagaðir og
flestum finnast þeir góðir.“
„Þessi kartöflukúr er jafn-
framt einskonar fegrunarkúr
sem stuðlar að því að svefn-
inn verður dýpri, hrukkurnar
færri og húðin sléttari um
leið og aukakílóin hverfa og
það án þess að viðkomandi
finni nokkru sinni til svengd-
ar,“ sagði í Morgunblaðinu í
maí 1989.
Á kartöflukúrnum átti að
fara eftir sérstökum viku-
matseðli eða matseðlum eftir
því hversu lengi viðkomandi
hafði hugsað sér að fylgja
kúrnum. Stærstu máltíðir
dagsins innihéldu mikið af
kartöflum og millimálum og
morgunmat var stillt í hita-
einingahóf.
Bananakúrinn
Bananakúrinn svonefndi
varð vinsæll um tíma í
kringum 1970. „Þetta er ein-
faldasti kúrinn en jafnframt
sá erfiðasti því fæðan er svo
einhæf: Í fjóra daga er ekki
borðað annað en bananar og
mjólk drukkin með. Borða má
allt að 8 banana yfir daginn
og drekka glas af mjólk með
hverjum þeirra. Þeir sem
kúrinn hafa prófað segja að
hann virki mjög vel,“ svo
sagði í Vikunni í janúar 1988.
Banana- og hvítvínskúrinn
Fyrir þá sem gátu ómögulega
hugsað sér hvítvínskúrinn
eða bananakúrinn var fundið
upp á milliveginum, banana-
og hvítvínskúrnum. Þá voru
borðaðir um átta bananar á
dag og hvítvín drukkið með.
Í dálk Pressunnar, Dagbók
Dúllu, var skrifað svo í júní
1989:
„Amma á Einimelnum á
heila gommu af megrunar-
uppskriftum en það er svo-
lítið erfitt að ákveða hvaða
kúr er bestur. Hún mælir
mest með banana- og hvít-
vínskúrnum, sem hún fór á
í fyrra, en það er víst alveg
útilokað fyrir mig að redda
svo miklu hvítvíni. Amma tók
megrunina ógeðslega alvar-
lega og hreinlega lá í hvítvíni.
Það má nefnilega borða
eins mikið af banönum og
maður getur í sig látið og
drekka ótakmarkað af hvít-
víni, en amma hefur alltaf
haft klígju fyrir banönum.
Þess vegna drakk hún bara
þeim mun meira af víninu
og grenntist líka um heilan
helling. (Mamma er soddan
kvikindi að segja að amma
hafi bara grennst af nær-
ingarskorti. Hún hafi verið
öskufull alla daga og ekki
með nægilega rænu til að
geta fengið sér að borða.
Ég meina það... Þetta er nú
alvöru kúr upp úr Familie Jo-
urnal, svo það þýðir ekkert að
skammast út í ömmu greyið!“
Vínberjakúrinn
Blaðamaður DV skrifaði í
júlí 1985 frá Bandaríkjunum
og kynnti þar til leiks furðu-
legan megrunarkúr. Vín-
berja kúrinn. „Einn fábrotn-
asti en um leið stórbrotnasti
megrunarkúr sem litið hefur
dagsins ljós fer nú um heimili
saklausra íbúa Bandaríkja
Norður-Ameríku.
Hér ræðir um vínberjakúr-
inn svonefnda sem breiðir nú
úr sér eins og kákasusgerill
eða fótanuddtæki. Talsmenn
kúrsins sem væntanlega
eru bræður og vinir vín-
berjaræktenda og vínberja-
heildsala segja að kúrinn sé
sérstaklega til þess sniðinn
að hvíla meltingarkerfið.
Kúrnum er ætlað að standa í
7 heila daga. Enginn hvíldar-
dagur skal vera í þeirri lotu,
ósagt er hins vegar um fjölda
sjúkrahússdaga til hvíldar og
hressingar á eftir.“
Megrunarkúrinn fólst í því
að fylgja stífum matseðli sem
bauð ekki upp á mikla fjöl-
breytni.
„Fyrsti dagur: Morgun-
matur skal vera einn bolli
vatn, heitt. Út í það má
kreista einn fjórða part sítr-
ónu. Þá skal snæða meðal-
stóran klasa af vínberjum.
Reyna svo að ljúka morgun-
verkunum og koma sér í
vinnuna. Í hádeginu má svo
fá sér meðalstóran klasa af
vínberjum. Í þetta skiptið
ekkert fikt með sítrónu. Í
staðinn má koma klasanum
fyrir á grænu salatblaði áður
en neysla hefst. Mun slíkt
vera lystaukandi. Í lokin
má svo rífa salatblað í sig. Í
kvöldmat er mælt með bolla
af tei. Með honum er gott
að fá sér meðalstóran klasa
af vínberjum. Vínberin má
skreyta með ferskjuræfli eða
einhverju álíka fyrirbrigði
af ávaxtagerð. Þegar hér er
komið við sögu er dagur að
kveldi kominn. Næsti dagur
hefst eins, þarnæsti dagur
líka og svo koll af kolli ef
menn halda út í 7 daga.“ n
Erla Dóra
Magnúsdóttir
erladora@dv.is
Bæði hvít-
vín og vínber
urðu undir-
stöður vin-
sælla skyndi-
kúra á árum
áður.
MYND/GETTY
Megrunarkúrar af ýmsum gerðum hafa notið mikilla vinsælda í gegnum tíðina, þó
svo að ágæti þeirra hafi verið umdeilt, einkum þeirra kúra sem ganga út á öfgar.
26 FÓKUS 25. SEPTEMBER 2020 DV