Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2020, Blaðsíða 21
Á rið 1947 bjó hin 26 ára gamla hjúkrunar-kona Martha Beck í
borginni Milton í Flórída-
fylki. Hún átti tvö börn með
eiginmanni sem hafði framið
sjálfsmorð. Í leit að ástinni
nýtti Martha sér einkamála-
dálka dagblaðanna, sem voru
eins konar stefnumótasíður
þess tíma.
Einkamáladálkarnir leiddu
til þess að Martha kynntist
flagaranum Raymond Fern-
andez. Skömmu eftir fyrstu
bréfaskrifin þeirra á milli
kom Martha börnunum sín-
um fyrir hjá ættingjum eða
vinum og flutti til New-York-
borgar, þar sem Raymond
bjó.
„Dávaldur“ nýtti sér neyð
einstæðra kvenna
Raymond Fernandez hafði
lífsviðurværi sitt af því að
kynnast einstæðum, eldri og
vel stæðum konum í gegnum
einkamáladálkana, með það
að markmiði að svíkja þær
svo og pretta. Martha var
hins vegar ung og illa stæð
og þar af leiðandi ólík fórn-
arlömbum Raymonds, enda
virðist samband þeirra hafa
verið sérstakt.
Hann hafði lagt stund á
„svartagaldur“, en hann taldi
sig nefnilega geta dáleitt kon-
ur til að verða ástfangnar af
sér. Raymond trúði Mörthu
fyrir þessum leyndarmálum
sínum, en hún varð, ótrú-
legt en satt, heilluð af lífsstíl
Ray monds, þau ákváðu því að
vinna saman.
Þóttist vera systir
elskhugans
Raymond og Martha fundu
saman fórnarlömb, sem voru
líkt og áður segir einstæðar
konur. Þegar kom að því að
hitta eða heimsækja þær,
kom Martha með, en hún
þóttist vera systir Raymonds,
þrátt fyrir að vera ástkona
hans í raun og veru. Þetta
á að hafa gert leikrit þeirra
trúverðugra, þar sem „fjöl-
skyldumeðlimur“ Raymonds
var kominn í spilið.
Þetta átti reyndar eftir
að reyna á samband þeirra,
en Martha á að hafa verið
gríðarlega afbrýðisöm vegna
samskipta Raymonds við
hinar konurnar. Hann á að
hafa lofað því að sofa ekki hjá
neinni annarri en henni. Það
stöðvaði þó ekki þráhyggju
Mörthu, sem sá Raymond sí-
fellt fyrir sér í örmum ann-
arra kvenna.
Drápu fórnarlömbin
Hin 66 ára gamla Janet Fay
var eitt fórnarlamba Mörthu
og Raymonds. Janet flutti til
þeirra árið 1949 og það með
þúsundir dollara í farteskinu,
fullviss um að Raymond væri
ástin í lífi sínu. Sambandinu
lauk þó skjótt. Þegar Martha
gekk inn á Janet og Raymond
trylltist hún og á að hafa
slegið Janet oft og mörgum
sinnum í höfuðið. Þó á Ray-
mond að hafa lokið verkinu,
með því að kyrkja hana með
trefli. Þau földu síðan líkið
með því að grafa það í jörðu.
Sama ár urðu þær Delph-
ine Downing, 28 ára ekkja,
og tveggja ára gömul dóttir
hennar fyrir barðinu á skötu-
hjúunum. Martha og Ray-
mond fluttu inn til þeirra í
borginni Wyoming, í Mich-
igan-fylki. Sú sambúð endaði
með ósköpum. Þau myrtu
þær báðar á hrottafenginn
hátt eftir að grátur dótturinn-
ar fór í taugarnar á Mörthu.
Þau földu líkin í kjallara húss
Delphine. Nágrannar hennar
áttuðu sig á því að eitthvað
grunsamlegt væri í gangi og
gerðu lögreglunni viðvart.
Ákærð fyrir tuttugu morð
Ekki er vitað hversu mörg
morð Martha Beck og Ray-
mond Fernandez frömdu, en
þau voru ákærð fyrir tutt-
ugu. Þau játuðu fyrrnefnd
morð en talið er að þau hafi
játað í þeirri trú að þá yrðu
þau ekki framseld til New
York-fylkis, þar sem dauða-
refsingin var við lýði, annað
en í Michigan, þar sem þau
voru handtekin. Það reyndist
þó rangt og þau voru fram-
seld til New-York.
Sögð hafa sofið
saman við hlið líksins
Réttarhöldin og aðdragandi
þeirra þóttu heldur óvenjuleg,
en fjölmiðlar lýstu ósiðlegu
kynlífi parsins. Til að mynda
var því haldið fram að þau
hefðu sofið saman á gólfinu
við hlið líksins af Janet Fay,
skömmu eftir morðið. Það hafi
þau gert í stað þess að hreinsa
upp blóðið eða fela líkið.
Martha á að hafa verið óá-
nægð með þessa umfjöllun
og sent ritstjórum nokkurra
dagblaða bréf vegna þessa,
einhverjir hafa þó haldið því
fram að hún hafi sjálf lekið
sögum sem þessum til fjöl-
miðla.
„Hvað veit almenningur
um ást?“
Verjendur þeirra héldu því
fram að Martha og Raymond
ættu við geðræn vandamál að
stríða og væru með verulega
brenglaða sýn á veruleikann.
Dómarar gáfu lítið fyrir það.
Bæði fengu dauðadóm og
voru þau tekin af lífi þann
8. mars 1951.
Lokaorð Raymonds voru:
„Mig langar að öskra það. Ég
elska þig, Martha! Hvað veit
almenningur um ást?“ Loka-
orð Mörthu voru: „Saga mín
er ástarsaga. Einungis þeir
sem hafa verið kvaldir af ást,
munu skilja mig.“
Frábær kvikmynd var gerð
um ástir og glæpi þeirra
Mörthu Beck og Raymonds
Fernandez. The Honeymoon
Killers (1970), var eina kvik-
myndaverk leikstjórans
Leonards Kastle. Franska
k v i k m y n d a g o ð s ö g n i n
François Truffaut fullyrti
einu sinni að myndin væri
uppáhalds bandaríska kvik-
myndin sín. n
BRÚÐKAUPSFERÐ DAUÐANS
Martha Beck og Raymond Fernandez voru ákærð fyrir að fremja tuttugu morð.
Raymond lagði stund á „svartagaldur“ til þess að dáleiða og koma sér í mjúkinn hjá
einstæðum konum. Martha þóttist vera systir hans, þó að þau væru í raun elskendur.
Martha og
Raymond
sögðust
elska hvort
annað til
endaloka. Hér
eru þau með
lögfræðingi
sínum (fyrir
miðju).
MYND/GETTY
Plaggat
myndar-
innar The
Honeymoon
Killers, sem
fjallar um
glæpahjúin
ótrúlegu.
SAKAMÁL
Jón Þór
Stefánsson
jonthor@dv.is
FÓKUS 21DV 25. SEPTEMBER 2020