Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2020, Page 6
6 FRÉTTIR 25. SEPTEMBER 2020 DV
MÓTMÆLI VIÐ EINKAHEIMILI OFT
KOMIÐ MÓTMÆLENDUM Í KOLL
Í vikunni sagði DV frá því að mótmælendur hefðu límt myndir af börnum
sem Útlendingastofnun hafði
synjað um dvalarleyfi í and-
dyri fjölbýlishúss í Reykjavík
þar sem Áslaug Arna Sigur-
björnsdóttir dómsmálaráð-
herra býr. Mótmælin virðast
hafa haft þveröfug áhrif við
það sem var ætlað. Viðbrögðin
við frétt DV voru nokkuð af-
gerandi og virðist fólk taka þá
stefnu að heimili sé friðhelgt,
líka heimili ráðherra.
Íslendingar hafa frá banka-
hruni kynnst mótmælum af
allt öðru kalíberi en áður. Mót-
mælt var nokkuð kröftuglega
á árunum 2008-2010. Hófust
þau kynni þegar vörubílstjór-
ar mótmæltu hækkandi bens-
ínverði. Lokuðu mótmælendur
meðal annars Suðurlandsvegi
í eitt skipti og kom til átaka
við lögreglu. Mótmælin urðu
reyndar afdrifarík fyrir aðra
en mótmælendur og lögreglu-
menn. Í beinni útsendingu af
mótmælunum heyrðist í Láru
Ómarsdóttur fréttamanni
biðja mótmælendur um að
endurtaka eggjakast í lögreglu
svo hún gæti náð því á mynd
fyrir sjónvarpsútsendingu. At-
vikið kostaði Láru starfið.
Mótmælin lögðu að mörgu
leyti grunn að því sem koma
skyldi.
Stigvaxandi harka
Fljótlega eftir gjaldþrot og
ríkisvæðingu bankanna
þriggja í október 2008 fór fólk
að hópast saman og mótmæla
hvernig komið var fyrir efna-
hagslífi þjóðarinnar. Mótmæl-
in áttu eftir að stigmagnast
dag frá degi. Í nóvember voru
mótmælendur orðnir fjögur
þúsund. 8. nóvember klifraði
einn mótmælandi upp á Al-
þingishúsið og dró Bónusfána
að hún. Mótmælendur komu
í veg fyrir að lögregla gæti
handtekið manninn.
Hægt og rólega jókst
harkan í mótmælendum og
beindist reiði þeirra ekki síst
að persónum í ráðherraemb-
ættunum. Þessi reiði beindist
líklega einna helst að Geir H.
Haarde forsætisráðherra, Þor-
gerði Katrínu Gunnarsdóttur,
varaformanni Sjálfstæðis-
flokksins og menntamála-
ráðherra, og Davíð Oddssyni
seðlabankastjóra.
Bankahrunið var ekki eini
hvatinn að mótmælum á þess-
um tíma. Árið 2009 birtust
mótmælendur utan við heimili
Rögnu Árnadóttur, sem var þá
utanþingsráðherra í vinstri-
stjórn Jóhönnu Sigurðardótt-
ur. Mótmælendur mótmæltu
þá brottvísun hælisleitenda
frá Íslandi. Á sama tíma var
mótmælt við heimili Hauks
Guðmundssonar þáverandi
forstjóra Útlendingastofnunar.
Friðhelgi heimilisins rofið
Fljótlega eftir útgáfu rann-
sóknarskýrslu Alþingis þann
12. apríl 2010 birti visir.is
fréttina „SMS-mótmæli fyrir
utan heimili Þorgerðar Katr-
ínar“. Í dag hefði Facebook
gegnt hlutverki SMS í að boða
mótmælendur á staðinn.
Var það fyrsta frétt sem
sögð var af nokkuð háværum
mótmælum utan við heimili
Þorgerðar og Kristjáns Ara-
sonar eiginmanns hennar.
Beindist reiðin að viðskipta-
sögu eiginmanns Þorgerðar,
en lán sem félag í eigu Krist-
jáns hafði tekið vegna hluta-
bréfaviðskipta voru afskrifuð.
Brutu mótmælin utan við
heimili Þorgerðar blað í ís-
lenskri mótmælasögu og upp
vöknuðu spurningar um hvort
rétt væri að blanda saman
persónulegu lífi ráðherr-
ans, friðhelgi heimilis hans
og fjölskyldu hans, og emb-
ættisfærslum. Mótmælendur
gengu mjög hart að Þorgerði
Katrínu og virðist vel hægt að
færa rök fyrir því að samúð
almennings hafi fallið með
Þorgerði í málinu vegna
hörku mótmælenda. Skulda-
afskriftum Kristjáns Ara-
sonar og Þorgerðar var ekki
mótmælt aftur af svo miklum
krafti. Þorgerður Katrín
sagði af sér varaformennsku
í Sjálfstæðisflokknum síðar í
aprílmánuði 2010. Í viðtali í
Fréttablaðinu árið 2018 sagði
Þorgerður að mótmælin fyrir
utan heimili hennar átta árum
áður hefðu verið „ein af allra
sárustu stundunum“. „Það
var verið að eggja húsið, við
vorum að reyna að fara út
áður en börnin og nágrann-
ar vöknuðu til að hreinsa.
Passa upp á allt fyrir börnin.
Það var alltaf það sem maður
var að gera, passa að daglegt
líf barnanna breyttist ekki,“
sagði Þorgerður jafnframt í
viðtalinu.
Sama dag og Þorgerður
Katrín sagði af sér fóru mót-
mælendur að birtast við
heimili Steinunnar Valdísar
Óskarsdóttur og fjölskyldu
hennar. Þau mótmæli áttu
eftir að standa svo til óslitin
í fimm vikur, eða til 24. maí.
Steinunn var á þessum tíma
fyrrverandi borgarstjóri og
þingmaður Samfylkingar-
innar. Hún hafði sér til saka
unnið að þiggja styrki frá
Baugi og FL Group.
Mótmælunum utan við
heimili Steinunnar var seinna
lýst sem „smánarbletti á ís-
lenskri stjórnmálasögu“ af
Birgittu Jónsdóttur, fyrr-
verandi þingmanni Pírata.
Birgitta var sjálf mjög virk í
skipulagningu mótmælanna í
kjölfar hrunsins. Þorgerður
Katrín og Guðlaugur Þór
Þórðar son þáðu einnig nokkuð
háa styrki frá þessum fyrir-
tækjum. Þó var aldrei mót-
mælt við heimili Guðlaugs.
Eftirmálum „hrunsins“
var svo víða og oft mótmælt.
Þannig brutust út mótmæli
við Stjórnarráðið og Seðla-
bankann þegar Hæstiréttur
hafði fellt dóm um ólög-
mæti gengistryggðra lána.
Við tóku háværar deilur um
hvaða vexti miða skyldi við
í kjölfarið. Til smávægi-
legra pústra kom milli mót-
mælenda og lögreglu þann 6.
júní 2010 þegar því var mót-
mælt að ekki skyldi miða við
samningsvexti á þeim lánum.
Í júlí það ár skvettu mótmæl-
endur málningu á húsakynni
Alþjóða gjaldeyrissjóðsins á
Hverfisgötu, og grýttu svo
ráðherra og þingmenn er
þeir gengu til guðsþjónustu
við þingsetningu 1. október.
Ein fjölmennustu mótmæli
Íslandssögunnar fylgdu svo
fast á eftir, en 4. október
tókst mótmælendum að trufla
stefnuræðu Jóhönnu Sigurð-
ardóttur forsætisráðherra.
Mótmæli við heimili ráðherra eru óalgeng hér á landi en verða þó. Hingað til hafa þau
grafið undan málstað mótmælenda og aukið samúð með þeim sem mótmælin snúa að.
Heimir
Hannesson
heimir@dv.is
Mótmæli við heimili
Bjarna vöktu reiði
Árið 2016 birtust svo mót-
mælendur fyrir utan heim-
ili Bjarna Benediktssonar.
Krafðist hópurinn þess að
boðað yrði til kosninga strax.
Steinunn Valdís fordæmdi
mótmælin og hvatti engan
til þess að mæta. Eins sagði
Helgi Hrafn Gunnarsson,
þingmaður Pírata, að hug-
myndin væri hræðileg og að
„ráðherra ætti rétt á því að
geta verið í friði heima hjá
sér“. Eins sagði Gunnar Sig-
valdason, eiginmaður Katrín-
ar Jakobsdóttur formanns VG,
í ítarlegri færslu á Face book
að hann og eiginkona hans
hefðu lent í aðstæðum sem
þessum. Þar hefði fjölskyldan
„orðið óttaslegin“ og „alls
konar fólk“ komið óboðið heim
til þeirra. Að mótmæla fyrir
utan heimili fjölskylduföður-
ins Bjarna Benediktssonar
„væri einfaldlega rangt“.
Öll tilfelli mótmæla við
heimili ráðherra, þingmanna
og annarra embættismanna
hafa fallið um sjálf sig. Þau
hafa án undantekninga dregið
athygli frá málstað mótmæl-
enda og úr samúð almennings
með honum. Þvert á móti hafa
mótmælin svo aukið samúð
með persónu ráðherrans, sem
virðist svo hafa smitast í emb-
ættisstörf hans, enda skilin á
milli persónu og embættis-
mannsins oft óljós. n
Mótmæli á
Íslandi heyrðu
til undan-
tekninga fram
til ársins 2008.
MYND/DANÍEL