Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2020, Blaðsíða 32
Matseðill
Berglindar
Morgunmatur
Búst, morgunkorn.
Millimál nr. 1
Hnetur, ávextir.
Hádegismatur
Alls konar, ýmist spæld egg á
ristuðu brauði með avókadó eða
ristað brauð með sultu og kakó-
malt með.
Millimál nr. 2
Hrökkbrauð, skyr, kanelsnúðar,
kex. Bara eftir því í hvaða stuði
ég er.
Kvöldmatur
Allt milli himins og jarðar. Stund-
um nenni ég ekki að elda og þá
er snarl sem er til dæmis súpa,
brauð, harðsoðin egg og slíkt.
Virka daga eldum við almennan
heimilismat, til dæmis hakk og
spagettí, fisk, kjötbollur, pítur og
slíkt en um helgar reynum við að
gera eitthvað fínna eins og steik
eða rétti sem tekur lengri tíma
að elda.
Pestópitsa
700 g hveiti
1 pakki þurrger (11,8 g)
1 tsk. salt
400 ml volgt vatn
4 msk. ólífuolía
Setjið öll þurrefnin saman í skál og
blandið saman.
Hellið volgu vatni ásamt ólífuolíu
saman við og hnoðið þar til deig-
kúla hefur myndast.
Setjið deigið í skál sem búið er
að pensla að innan með matar-
olíu, plastið og leyfið að hefast í um
klukkustund.
Skiptið deiginu niður í 5-7 hluta og
fletjið út nokkrar pitsur (9-12“) og
setjið áleggið á.
Álegg
2½ krukka af Sacla-pestó með
basilíku (um 450 g)
300 g kastaníusveppir
40 g smjör
1 rauðlaukur
Rifinn ostur
2 dósir mozzarellakúlur með basil-
íku (2 x 180 g)
Sólþurrkaðir tómatar frá Sacla
Klettasalat
Kasjúhnetur (saxaðar gróft)
Fersk basilíka
Ólífuolía með basilíku
Salt, pipar og hvítlauksduft
Skerið sveppina niður og smjör-
steikið þá við miðlungs hita þar til
þeir mýkjast örlítið, kryddið til með
salti, pipar og hvítlauksdufti, leggið
til hliðar.
Penslið vel af pestó á hvern pitsu-
botn og raðið næst smjörsteiktum
sveppum og rauðlauk yfir.
Rífið næst ost yfir allt saman og
bakið við 225°C í um 10 mínútur eða
þar til botninn fer að gyllast í könt-
unum. Raðið þá mozzarellakúlunum
á og bakið áfram í örfáar mínútur.
Þegar pitsan kemur úr ofninum má
pensla kantana strax með ólífuolíu
með basilíku.
Að lokum má setja klettasalat,
kasjúhnetur, sólþurrkaða tómata og
ferska basilíku yfir pitsurnar. Einnig
er gott að hella smá ólífuolíu með
basilíku yfir alla pitsuna.
Berglind Hreiðarsdóttir elskar að halda á vit ævintýranna. MYND/ANTON BRINK
32 MATUR 25. SEPTEMBER 2020 DV
Borðar í takt við árstíðirnar
Matarbloggarinn Berglind er að gefa út sína þriðju uppskriftabók. Hún ver miklum
tíma í eldhúsinu við að þróa uppskriftir en hvað ætli hún borði á venjulegum degi?
Guðrún Ósk
Guðjónsdóttir
gudrunosk@dv.is
B erglind Hreiðarsdóttir hefur verið með heimasíðuna gotteri.is síðan
árið 2013. Þar deilir hún alls
konar uppskriftum, veislu
hugmyndum, hugmyndum
að ævintýrum og umfjöllun
um veitingastaði. Auk þess
heldur hún reglulega köku
skreytinganámskeið. Hún
var að gefa út sína þriðju
uppskriftabók, Saumaklúbb
inn, og í henni má finna yfir
140 frábærar uppskriftir.
Við fengum að forvitnast um
venjulegan dag í lífi hennar og
hvað hún borðar.
„Eins og staðan er núna er
ég matar og ævintýrablogg
ari í bland við að vera heima
vinnandi húsmóðir og ég er
að elska það. Ég hef unnið við
mannauðsmál og verkefna
stýringu frá því ég man eftir
mér en langaði að breyta til
og sjá hvert þetta myndi leiða
mig,“ segir Berglind.
„Það eru engir dagar eins
hjá mér. Stundum er ég að þróa
og elda uppskriftir allan dag
inn, stundum langar mig bara
að hendast í fjallgöngu og aðra
daga er ég að stússa á fundum
úti í bæ eða annað slíkt. Ég
vakna þó alltaf með yngstu
dóttur minni sem er þriggja
ára og markmið okkar er að
hún nái í leikskólann fyrir
morgunmat svo við höldumst
í smá rútínu. Síðan er alveg
merkilegt hvað dagarnir líða
hratt þegar maður er að brasa
svona heima við allan daginn,“
segir Berglind og hlær.
Berglind elskar að hreyfa
sig utandyra. Hún vann í
líkamsræktarstöð í fimmtán
ár og fékk í kjölfarið nóg af
slíkum æfingum. „Ég fer út að
hlaupa og mikið í fjallgöngur
og næ að núllstilla mig í
fersku lofti, hvernig sem viðr
ar. Ég fer reyndar reglulega á
Pilatesnámskeið til að halda
bakinu mínu í lagi en þess á
milli hoppa ég og skoppa um
fjöll og firnindi. Ég byrjaði
einmitt á vormánuðum að
deila ævintýraferðum og
gönguferðum á blogginu svo
nú eru öll áhugamálin mín á
einum stað til að gefa öðrum
hugmyndir og innblástur.“
Mataræði
Berglind segist alls ekki
fylgja einhverju ákveðnu
matar æði heldur er það í takt
við árstíðir, líðan og hvað
líkaminn kallar á.
„Ég reyni að fara hinn
gullna meðalveg í mataræðinu
þó svo ég viðurkenni að ég er
allt of mikill nammigrís, það
er bara svo erfitt að standast
freistingarnar þegar maður er
sífellt að útbúa eitthvað góm
sætt. Ég neita mér sjaldnast
um neitt en reyni frekar að
fá mér bara minna,“ segir
Berglind.
„Ég reyni samt að borða
alltaf reglulega allan daginn,
morgunmatur, stundum milli
mál, hádegismatur, síðdegis
hressing og kvöldmatur eru
fastir liðir og svo laumast
kvöldsnarl inn svona annað
slagið. Ég reyni að halda slíku
í kringum helgarnar og segi
stundum að ég sé í „4/3 átak
inu“. Það felur í sér að borða
ekki eftir kvöldmat fjóra daga
vikunnar (mánufimmtu
daga) en svo er allt leyfilegt
hina þrjá dagana. Vinir mínir
gera mikið grín að mér þegar
kemur að mataræðinu en ætli
hver og einn þurfi ekki bara
að finna sinn takt og þetta
hentar mér bara ágætlega.“
Uppáhaldsmáltíð?
„Úff, mér finnst erfitt að
svara þessari. Hægeldaður
lambahryggur eins og amma
Guðrún gerði hann er klárlega
ofarlega á þessum lista, síðan
elska ég ristaða humarhala og
nautalund,“ segir Berglind og
deilir með okkur uppskrift að
ljúffengri pitsu. n