Fjölrit RALA - 13.09.1980, Side 19
-13-
SAUÐFJÁRRANNSÓKNIR.
Unnið var að margvíslegum rannsóknaverkefnum.
Helztu verkefni eru eftirfarandi:
1. Rannsóknir á kynbótamöguleikum í sauðfjárrækt með tilliti til:
a) frjósemi áa,
b) vænleika lamba,
c) ullarmagns,
d) ullar- og gærugæða,
e) kjötgæða.
Rannsóknir á litaerfðum og sjaldgæfum erfðafyrirbærum í sauðfé
a) dropótt (hófust 1962),
b) arfhreint dökkgrátt (hófust 1962),
c) litleysi (albínismi) (hófust 1974),
d) litningabrengl (hófust 1974) ,
e) blóðflokkarannsóknir (hófust 1978).
Rannsóknir á fóðrun sauðfjár:
a) þangmjölsgjöf (3vetur 75/76, 77/78, 78/79)
b) fóðrun á heyi og kjarn- fóðri og heyi eingöngu, þrír flokkar (hófst 1979)
c) Haustrúningur á ásetnings- gimbrum (hófst 1979)
Rannsóknaaðstaða.
Aðstaða til rannsókna á þeim verkefnum, sem falla undir 1.-3. lið, var
á tilraunastöðvunum á Reykhólum, Möðruvöllum og Skriðuklaustri og enn fremur
á bændaskólabúunum á Hvanneyri og Hólum.
Alls voru settar á vetur 1942 ær og gimbrar á þessum búum haustið 1978,
og til nytja komu samtals 2600 lömb haustið 1979.
Yfirlit um fjárfjölda á búunum er í 1. töflu og yfirlit um lambafjölda
og lambavanhöld í 2. töflu.