Fjölrit RALA - 13.09.1980, Blaðsíða 45
35
hjá lúpínunni. LÍkur benda til að um mikinn breytileika sé að ræöa í
alkaloid innihaldi einstakra lúpínuplantna. Ef svo er, þá er tiltölulega
auðvelt að rækta upp úrvals fóðurlípínu með kynbótum, en uppskera lúpínunnar
er mikil, um 40-80 hestburóir af hektara eftir aðstæðum. Þessari uppskeru
nær lúpínan án áburðargjafar, en þó er líklegt, að bera þurfi á fosfór
og e.t.v. fleiri steinefni, sé lúpínan nýtt að ráði. Alaskalúpína virðist hæf til
beitar ef nógur annar gróður fylgir með henni. Skortur á fræi takmarkar sem
stendur mikla ræktun lúpínu.
Einnig voru gerðar tilraunir með kynbættar, einærar grænfóöurlúpínur. Þær
tilraunir lofa mjög góðu, og einærar lúpínur gætu einnig verið ódýrt úrvals-
fóður. Þessum tilraunum verður haldið áfram 1980.
g) Aðrar rannsóknir.
Mælingum var haldið áfram í tilraunum með ólíkar grastegundir og
stofna,sem sáð var til 1975 og 1976. Þessar tilraunir hafa m.a. leitt í ljós,
að ný grastegund, Deschampsia beringensis, sem upprunnin er í Alaska,hentar
ákaflega vel til landgræöslu vió góð jafnt sem erfið gróðurskilyrði.
Melgresi er, sem kunnugt er, eina plöntutegundin, sem fær er um að græða upp
foksand. Misjöfn spírun melfræs ásamt skorti á fræi hefur takmarkað þennan
þátt landgræðslustarfseminnar. Árið 1978 var spirunarhæfni melfræs rann-
sökuð talsvert, en verkefnið gert upp 1979. Svo virðist að með ýmsum ráðum
megi bæta spírun melfræs talsvert og auka með því nýtingu á þessu dýrmæta
fræi.
UnniÖ var að ýmsum öðrum rannsóknaverkefnum á árinu. Má þar nefna beitar-
tilraunirnar miklu# sem lýst er annars staðar í ritinu, en þær kröfðust all-
mikils hluta af vinnutíma starfsmanna deildarinnar.
h) Rannsóknir á Grænlandi.
Eins og kom fram í ársskýrslu 1978, gerði RALA samning við grænlenzk
og dönsk yfirvöld þess efnis, að RALA tæki að sér að skipuleggja og annast
rannsóknir á gróðurfari á Suður-Grænlandi og kanna skilyrði til
aukinnar sauðfjárræktar þar. Áætlað er, að rannsóknirnar standi fimm ár, og
eru nú þrjú þeirra liðin.
Meginviðfangsefni þessara rannsóknaverkefnis eru:
fLokkun og kortlagning gróðurs,
gróðurfars- og uppskerumælingar,
rannsóknir á plöntuvali sauðfjár og næringargildi beitargróðursins/
áburðartilraunir á úthaga og túnum/
tilraunir með grastegundir og stofna til túnrækta: >
afkvæmarannsóknir á sauöfé,
jarövegsrannsóknir.