Fjölrit RALA - 13.09.1980, Blaðsíða 72
62
Hér á eftir verður getið um aðrar ráðstefnur og fundi, sem starfsmenn
sóttu á árinu:
Bjarni E. Guðleifsson sat 16. þing NJF í Oslo 3. - 6. júlí.
Bjami Guðmundsson sótti ráðstefnu NJF um þurrheysgerð, sem háð var £ Dalseli
í Noregi í febrúar. Hann sótti einnig ráðstefnu Evrópska grasræktar-
sambandsins (EGF) um heyverkun á níunda áratugnum, sem haldin var í
Brighton á Englandi um mánaðamót nóvember-desember. Bjarni sótti
þrjá almenna bændafundi.
Bjarni Helgason sat ráðstefnu um skrúðgarðyrkju 20. - 21. apríl í Hveragerði.
Hann sat aðalfund Skógræktarfélags íslands í Varmahlíð 30. ágúst til
2. september, - einnig ársfund British Society of Soil Science í Lough-
borough á Englandi 10. - 13. september.
Björn Sigurbjörnsson sat stjórnarfundi Norræna genbankans í Kaupmannahöfn í
janúar, á íslandi og Grænlandi í ágúst og í Kaupmannahöfn í september.
Hann sat stjórnarfundi í NKJ í Kaupmannahöfn 22. og 23. marz og í Osló
4. október. Björn sat fundi um norræna samvinnu í jurtakynbótum í Upp-
sölum í maí og í Helsingfors í september. Hann sat 16. þing NJF í Osló
dagana 3. - 6. júlí.
Grétar Einarsson sótti semínar á vegum NJF um loftræstingu peningshúsa, haldið
í Middelfart í Danmörku 9. - 11. apríl.
Grétar Guðbergsson sat 3. þing Bandalags háskólamanna.
Gunnar ólafsson sat stjórnarfundi NKJ í Kaupmannahöfn 22. og 23. marz og í
Osló 4. október. Hann sat 16. þing NJF í Osló 3. - 6. júlí.
Gunnar Sigurðsson sótti 16. þing NJF í Osló 3. - 6. júlí.
Haukur Júlíusson sat aðalfund Kaupfélags Borgfirðinga 2. og 3. maí og ráðstefnu
Sambands íslenzkra sveitarfélaga um byggingarmál 9. og 10. október.
Hólmgeir Bjömsson sat ráðstefnu á vegum Háskóla íslands um reiknilíkön í
fiskifræði 6. - 8. júní. Hann sótti kynningu á vegum Rannsóknaráðs
ríkisins á SCANNET 20. júní og 16. þing NJF í Osló 3. - 6. júlí.
Ingvi Þorsteinsson sat ráðstefnu samtakanna lifs og lands um málefnið Maður cg umhverf i
24. og 25. febrúar. Hann sat fund vegna Grænlandsrannsókna í febrúar
í Kaupmannahöfn og annan slíkan í júlí og enn í nóvember. Ingvi sat
16. þing NJF í Osló 3. - 6. júlí. Hann sat ráðstefnu um umhverfismál á
vegum Verkfræði- og raunvísindadeildar Háskóla íslands í október, - enn
fremur umhverfismálaráðstefnu í Helsingör í Danmörku í nóvember á vegum
Nordisk Ministerrád.
Jón ólafur Guðmundsson sótti ráðstefnu um heyverkun, sem haldin var á vegum
NJF í Noregi 13. - 16. febrúar.