Fjölrit RALA - 13.09.1980, Side 62
52
Girt var viðbótarland, sem fékkst úr gamla Korpúlfsstaóatúninu, um
10 ha, og aukast þar með því skilyrði möguleikar til frekari umsvifa.
Hefir Korpa nú til umráða fast að 30 ha. lands.
Rannsóknaráð ríkisins kom í heimsókna að Korpu og kynnti sér
starfsemi stöðvarinnar og átti viðtöl við sérfræðinga og starfsfólk. Stjórn
RALA kom og í heimsókn og sendimaður frá Norræna genbankanum. ALlnokkrir útlendingar
voru og á ferð og fjöldi innlendra manna sem ýmist skoðuðu ræktun og mannvirki
eða áttu viðtöl við starfsfólk.
Ný dráttarvél var keyptf Zetor 6945 en að hálfu eign samreksturs stofn-
ananna á Keldnaholti. Er vélin á Korpu og gerð út þaðan, en jafnframt
notuð til snjóruðnings og hreinsunar á holtinu.
Veðurfarsmælingar fóru fram tvisvar á dag,kl. 9 árdegis og kl. 3 síðdegis.
Skráð var úrkoma, hitif loftraki, vindátt, veðurhæðf skyggni og skýjafar.
Mældur var hiti í þremur jarðvegsdýptum og hámark og lágmark við jörð.
Auk þess fór fram frjókornamæling einu sinni á sólarhring. Þessar mæl-
ingar voru stundaðar á tímabilinu 1. maí til 30. september.
TILRAUNASTÖÐIN Á HESTI.
Árið 1979 var búrekstur og tilraunastarfsemi með líku sniði og undan-
farin ár. Veður var kaltf en þurrt. Voraði mjög seintf og var ekki kominn
sæmilegur sauðgróður fyrr en um miðjan júní. Sauðburður gekk velfog var frjó-
semi í meðallagi og vanhöld með minna móti; þó bar dálítið á selenskorti í
lömbum undan ýngri ánum. í ársbyrjun var fjártalan 774 ærf 132 lömbf 18 full-
orðnir hrútarf 12 lambhrútar og 3 geldingar. 1 árslok voru 712 ærf 102 lömbf
16 fullorðnir hrútarf 17 lambhrútar og 3 geldingar (sjá nánar um frjósemi,
föll og fóðrun í skýrslu Hestsbúsins í Frey). Heyskapur gekk sæmilega og urðu
hey sæmileg að gæðumf en talin minni en vanalega vegna kulda.
Tilraunastarfsemin var með líku sniði og undanfarin ár (sjá nánar sauð-
fjárrannsóknir).
Bændaskólinn á Hvanneyri kom í heimsókn seinni hluta vetrar, og búvísinda-
deildin sótti hingað próf í sauðfjárdómum. í maíbyrjun var bændum úr ná-
grenninu boðið í kaffi og sýndur staðurinn og útskýrðar þær tilraunir,
sem í gangi voru. Var þessi heimsókn vel heppnuð og bændur ánægðir.
Seinni hluta júlí komu tveir hóþar. Voru það lesendur sviss-
nesks tízkublaðs. Skoðuðu þeir staðinn og nokkrar kindur, sem heima voru, og
létu vel af. Einnig kom Stefán Aðalsteinsson tvívegis með útlendinga í stutta
heimsókn. 22. nóvember kom Magnús óskarsson með tvær enskar stúlkur,og
skoðuöu þær féð af miklum áhuga.