Fjölrit RALA - 13.09.1980, Page 46
36
Ingvi Þorsteinsson hefur yfirumsjón með rannsóknaverkefninu, Björn
Jóhannesson sér um áburðar- og ræktunartilraunir, Þorsteinn Tómasson um
tegunda- og stofnatilraunir, og Stefán Sch. Thorsteinsson annast afkvæma-
rannsóknirnar. Verkefnið er unnið í nánu samstarfi við grænlenska aðila,
og hefur sú samvinna verió með ágætum.
Sýnt er, að rannsókninni mun ljúka á tilsettum tíma. Kortagérð er nær
lokið, og sumarið 1980 verða gerð gróðurkort af síðasta hluta svæðisins, allt að
suðurodda Grænlands. Gróðurkortin eru gerð í mælikvarða 1:20000 og hafa
verið teiknuð jafnharðan og útivinnu hefur verið lokið. Hnitun eða útreikningar
flatarmáls af kortunum er unnið á sama hátt og á íslenzku kortunum og af
sama aðila og liggja þegar fyrir niðurstöóur um beitarþol tveggja héraða. Þær
niðurstöður sýna, svo að ekki verður um villzt, að beitargildi gróðurs er að öllu
jöfnu mun meira en hér á landi, og er það umfram allt afleiðing þess,
hve lítið beitilönd þar hafa verið nýtt til þessa. Hér á landi þarf að
meðaltali 2.4 hektara algróins lands til að framfleyta lambá sumartímann,
þ.e.a.s. 3 mánuði, en á Grænlandi þarf aðeins 1-1.5 hektara að jafnaði.
Þessi gæði beitilandsins koma einnig fram í afurðum sauðfjárins. Árið 1978
var meðalfallþungi tvílembings í tilraunastöðinni Upernaviarssuk á Suður-Græn-
landi um 21.5 kg, en árið 1979 um 22.5 kg. Þess má geta, að fjöldi lamba eftLr hverja
á £ tilraunastöðinni var 1.7 lömb 1978 og 1.5 1979 og vetrarfóðrun er þar með
svipuðum hætti og sæmilegt myndi teljast hér á landi. Féð er af íslenzkum
uppruna, var flutt til Grænlands 1920. Má ætla, að þessi munur í framleiðslu
eða fallþunga lambanna eigi eingöngu rætur að rekja til gæða beitilands—
ins, enda hefur ekki verið unnið þar til þessa kynbótastarf í því skyni að
auka afurðasemi fjárins.
Áburðartilraunirnar á úthaga og túni hafa þegar gefið mikilvægar vísbend-
ingar um hvað skortir í grænlenzkan jarðveg, og þegar unnt að gefa ráð
um það. Aðallega er um að ræða fosfórskort, og hafa þær áburð-
arblöndur, sem notaðar hafa verið á Grænlandi, að jafriaði innihaldið of lítinn
fosfór til þess að gefa hámarksuppskeru.
Tegunda-og stofnatilraunimar hafa einnig gefið mjög góða raun. Reyndir
hafa verið ýmsir grasstofnar, sem gefið hafa góða raun hér á landi og virð-
ast einnig koma, margir hverjir, ágætlega út á Grænlandi. Þar hefur verið
reynd tegundin Deschaipsia beringensis, sem hingað var flutt frá Alaska fyrir
nokkrum árum. HÚn virðist reynast frábærlega vel á Grænlandi, og má um
það nefna, að meðaluppskera af þessari tegund var 70 hestburðir þurrefnis á
hektara, þegar tilraunir voru uppskornar í lok júlímánaðar síðastliðið sumar.
íslenzki vallarfoxstofninn Korpa gaf svipað magn.