Fjölrit RALA - 13.09.1980, Qupperneq 53
43
hrukkutíglaveiki.
3. Myndun heilbrigóra kartöflustofna og varðveizla þeirra.
Þetta verkefni er í þremur liðum, auk þess tengjast því tvö önnur verk-
efni, sótthreinsun kartöfluútsæðiö og íslenskar kartöflur.
a) Þrír bændur innan stofnræktunarinnar eru aðstoðaöir við að koma upp
heilbrigóari stofnum með úrvali og sótthreinsun. Haustið 1979 eru
þessir stofnar aóeins um 500 kg af afbrigðunum Bintje, Gullauga, Helgu
og Rauðum íslenzkum.
b) Hjá RALA hafa verið myndaðir græðlingastofnar af fyrrnefndum fjórum af-
brigðum. Með þessum stofnum ætti að vera mögulegt að draga verulega úr
bakteríu- og sveppasmiti, en ekki veirusmiti. Haustið 1979 voru þessir
stofnar aðeins um 20 kg af hverju afbrigði.
c) Merístemstofnar. Með því að einangra vaxtarpunkt (merístem) plönt-
unnar og rækta í tilraunaglasi má fá fram veirulausa og fullkomlega smitlausa
plöntu. Með styrk frá Norræna genbankanum var kleiftað ráða tvo aðstoðar-
menn í þrjá mánuði til aó aðstoða við þetta verkefni. Við lok ársins höfðu
fengizt um 20 plöntur af Rauðum íslenskum og fjórar af Helgu á þennan hátt,
en eftir er að kanna, hvort veiruhreinsunin hefur tekizt.
4. Sótthreinsun kartöfluútsæðis.
Haustið 1977 var gerð tilraun með efnin thiabendazol og thiram með mjög
góðum árangri. Sumarið 1979 keypti Grænmetisverzlun landbúnaðarins að
ósk RALA, tæki til að sótthreinsa kartöflur í stórum stíl. Síðastliðið haust
var gerð tilraun í Þykkvabæ með þetta tæki, en niðurstööur liggja enn ekki
fyrir. í þessari tilraun var einungis notað efnið thiabendazol.
5. Kartöfluafbrigði.
Þær breytingar hafa nú verið gerðar á þessum tilraunum, að nú er þeim
skipt í tilraun I, II og III. Unniö er að því að fækka afbrigðum og gera til-
raunirnar markvissari. í tilraun I, sem einungis er gerð á Korpu, eru
ný afbrigði og uppskeruminni eldri afbrigði, sem varðveitt eru um tíma. Árið
1979 voru fengin þrjú ný brezk afbrigði og 26 hollenzk. Alls voru í tilraun I
69 afbrigði, og voru hin tíu uppskerumestu öll ný, en þar sem þetta var
fyrsta sumar þeirra hér á landi, ber að bíða eftir frekari reynslu, áður en
ályktað er um hæfni þeirra. í tilraun II eru uppskerumikil afbrigði í nákvæm-
ari prófun. Þessi tilraun var gerð 1979 á Korpu, Möðruvöllum, Sámsstöðum
og við Egilsstaði. Fjöldi afbrigða var á Korpu 24, Mööruvöllum 25, Sámsstöðum
10 og við Egilsstaði 20.