Fjölrit RALA - 13.09.1980, Side 65
55
Guðmundur H. Gunnarsson/ ráðunautur B.S.E.,vann að tilraunum með tilrauna-
stjóra svipað og undanfarið.
Afkoma búsins ber nokkur merki erfiðs árferðis. Árið var að veðurfari
fádæma erfitt allt frá upphafi til ársloka. Heyskapartíð var með eindæmum
stiró. Heyfengur varð um 2.500 m^, og var nokkuð af heyjum selt. Heyforði
að hausti var af forðagæzlumanni metinn 125.250 Fe. Heygæði voru um 2.2 kg/FE.
Meðalnyt kúnna samkvæmt skýrslu var 3.512 kg á árskú. Að meðaltali skiluðu
173 fullorðnar ær 24.3kg kjöts, og til nytja komu 150 lömb eftir 100 ær.
Gemlingar skiluðu 3.9 kg kjöts, og komu þar 28 lömb til nytja eftir hverja
100 gemlinga, en margir þeirra létu lömbum skömmu fyrir burð.
Verklegar framkvæmdir voru með minnsta móti, eingöngu vegna lítilla
fjárveitinga. Við tilraunafjósið voru sperrur settar upp og keypt allmikið
, , , , 2 •• •
af efni til að gera husið fokhelt. Bustjori hof byggingu 156 m íbuðarhuss
og bílskúrs í íbúöarhúsahverfinu, og varð hvort tveggja fokhelt á árinu. Til-
raunastjóri steypti upp bílskúr við hús sitt. íbúð á efri hæð gamla íbúðar-
hússins var svolítið lagfærð,og á neðri hæð voru ofnar endurnýjaðir. Garður
umhverfis húsið var jafnaður og girtur. Norðan vió íbúðarhúsahverfi var sett
um 160 m skjólbeltatilraun í samvinnu við Skógrækt ríkisins. Lokið var við
aó koma upp súgþurrkunarkerfi í fjárhúshlöðu, en ekki fékkst þangað rafmagn,
svo að blásið var í hlöðuna með dráttarvél í sumar. Grindur í fjárhúsum
voru endumýjaðar og útblástursviftu var komið fyrir.
Grasræktartilraunir eru flestar í Skagafirði í samvinnu við Bændaskólann
á Hólum. Eru þetta aðallega tilraunir með samanburð á tegundum og stofnum
grasa. Grös í tilraununum kól lítið síðastliðinn vetur, en þó urðuveruleg afföll á
túnvingli á Langhúsum. í Fljótum, svo að nú er þar einungis góður svörður af vallar-
foxgrasi af þeim fjórum tegundum, sem þar var sáó. 1 endurvinnslutilrauninni
á Baldursheimi í Eyjafirði var grafið fyrir plastræsum og þau sett niður. Er
hugmyndin að láta landið jafna sig, áður en í það verður sáð aftur. Lokið var
verkefnum um athugun á ánamöðkum og rannsóknum á blaðblettasveppum á grösum,
og eru ritgerðir væntanlegar um þessi efni næsta ár.
Grænfóðurstilraunir voru þrjár í samvinnu við héraðsráðunauta í Húnavatns-
sýslum og Bændaskólann á Hólum. Vegna mikilla kulda var spretta viðast
slök, en þó má segja,að bæði sumar- og vetrarrýgresi hafi á þessu ári gefið
sæmilega uppskeru. Unnið er að uppgjöri þessara tilrauna.
Kartöflutilraunir voru svipaðar og árið áður, samanburður á afbrigðum,
mismmandi N-P og K-áburður og prófun á illgresiseyðingarlyf jum. Tilraunirnar
voru allar í samvinnu við Búnaðarsamband Eyjafjarðar.
Nautgripatilraunum þeim, sem getir var í síðustu ársskýrslu, var enn
fram haldið. Reynt var að samstilla gangmál kúnna með Luta-
lyse-sprautum,og þeir ÞÓrarinn Lárusson og Guðmundur H. Gunnarsson sáu um