Rit Búvísindadeildar - 15.05.1996, Side 7

Rit Búvísindadeildar - 15.05.1996, Side 7
FORMÁLSORÐ Bændaskólinn á Hvanneyri sendir frá sér tilraunaskýrslu fyrir árið 1995. í riti þessu er að fínna upplýsingar um rannsóknir og tilraunastarfsemi skólans. Fjármagn til rannsókna og tilraunastarfsemi skólans er ýmist af fjárveitingum á fjárlögum eða fjármagn sem veitt er sem styrkir frá ýmsum aðihun. Á árinu 1995 fengust styrkir til tilraunaverkefna frá Framleiðnisjóði landbónaðarins, þróunarsjóðum búgreina og fyrirtækjum. Verkefnin sem getið er í tilraunaskýrslunni eru ýmist unnin einvörðungu af starfsmönnum skólans eða í samvinnu við starfsmenn annarra stofnanna landbúnaðarins. í mörgum tilvikum er hér um samvinnu sem staðið hefur um áratuga skeið. Með þessum samstarfsverkefnum aukum við bolmagn okkar í rannsókna og ber því að efla þessi tengsl sem kostur er. * Á undanfömum árum hefur verið leitast við að efla rannsóknarstarfsemi skólans. í því skyni hefur verið unnið að því að tryggja grunnfjármögnun hennar svo unnt sé að nýta til fulls þá aðstöðu og mannafla sem skólinn hefur til umráða á sviði rannsókna og tilrauna. Rannsókna og tilraunastarfsemi skólans nam á árinu 1995 um 17 % af heildarumsvifum hans og hefur aukist á undanfömum 3 ámm árum um 25-30 %. Yfirlitsskýrsla þessi um rannsókna og tilraunastarfsemi ársins 1995 er samvinnuverkefni margra aðila. Edda Þorvaldsdóttir hefur safnað gögnunum saman og búið þau til birtingar. Öllum aðstandendum skýrslunnar flyt ég þakkir fyrir vel unnin störf að vinnslu hennar. Það er von okkar að hún megi verða einhveijum til gagns og fróðleiks. Hvanneyri í apríl 1996 Magnús B. Jónsson Skólastjóri 2

x

Rit Búvísindadeildar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rit Búvísindadeildar
https://timarit.is/publication/1498

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.