Rit Búvísindadeildar - 15.05.1996, Blaðsíða 31
13. tafla. Þyngdaraukning á dag mUli fyrsta og annars uppskerutfma.
Þyngdaraukning, g/m2
Uppskorið 4. og 10. júlí 95
fíróðursett 22.iúní:
Uppskorið 24. og 28. júlí 137
Uppskorið 4. og 8. ágúst 65
Uppskorið 23. og 29. ágúst 35
Mælingamar sýna ljóslega að blaðkál sprettur mest um mitt sumarið. Kálið sem
skorið var upp 4. og 10. júlí var óskemmt af kálmaðki, en það sem seinna var
skorið upp var töluvert til mjög mikið skemmt, líka það sem gróðursett var 27.
júlí.
Rósakál undir trefjadúk. Ath. XVI - 95.
14. tafla. Uppskera af rósakáli.
Fyrirtæki UHtskera Meðalþungi Rósir í
kg/m2 á rós í 1 fl., g l.flokki,%
Jade F1 Ix>g. 0,95 8,9 70
Veloce (R.S. 90102) R.S. 0,70 8,6 93
Hvor stofn var aðeins ræktaður á einum reit, sem var 5,4 m^. Uppeldisdagar voru
34 og plantað var út í garði 7. júní. Áburður g/m^: 18 N, 7,8 P, 21,3 K, 11,6 S,
1,8 Mg, 3,9 Ca og 0,08 B. Toppurinn var skorinn ofan af kálinu 1. september.
Uppskorið var 2. október eftir 117 vaxtardaga. Fyrstu daganna var trefjadúkur
yfir kálinu, en það var tekið af plöntunum 21. júní. Basudin var dreift í kringum
plöntumar 27. júní.
Gerð var bragðprófun á hráum rósum við upptöku. Rósimar af Veloce þóttu betri.
Þær fengu þá urnsögn að þær væru sætar án reinmu, en rósimar af Jade F1 voru
taldar dálítið rammar.
25