Rit Búvísindadeildar - 15.05.1996, Qupperneq 54
HEYVERKUNARRANNSÓKNIR
Bjarni Guðmundsson
Inngangur
Árið 1995 var nýtt til þess að þoka áfram uppgjöri heyverkunartilrauna fyrri ára
og búa niðurstöður þeirra til birtingar. Nokkrum fyrirferðarmikluni áföngum
lauk og er vísað til nánaii upplýsinga um þá í rita- og erindaskrá þessarar
skýrslu. Enn bíður allstór bálkur lokauppgjörs og birtingar.
Tíðarfar til heyskapar í Borgarfirði sumarið 1995 var með tvennu móti.
Framan af var tíð hagstæð. Þar sem spretta leyfði fyrri slátt í öndverðum júlí
nýttust töður afar vel. Hver þurrkdagurinn rak annan allt til 24. júlí. Þá brá til
óþurrka sem stóðu linnulítið út ágústmánuð. Hröktust hey víða auk þess sem
sláttur dróst úr hömlu. Setti hvort tveggja glöggt mark á gæði uppskerunnar þótt
hey yrðu víða mikil að fyrirferð.
Sumarið 1995 voru hafnar tvær heyverkunartilraunir sem hér verður
greint frá. Tilefni þeirra beggja eru bendingar er sumpart komu fram í fyrri
tilraunum á Hvanneyri og sumpart eiga rót í fyrirspumum sem borist hafa frá
bændum í kjölfar breyttra hátta við túnaslátt og heyverkun.
Hjálparefni við verkun rýgresis
Tilraunin er gerð til þess að athuga nýtingu á próteini í rýgresi en fyrri tilraunir
á Hvanneyri (1990-1993) vöktu grun um að hún væri ófullnægjandi þegar
fóðran mjólkurkúa átti í hlut. Því er nú leitað svara við tveimur spumingum:
a) Er unnt að bæta nýtingu próteins í súrsuðu rýgresi með notkun hjálparefnis
(KOFA-SAFA; um 2,5 1/tonn)?
b) eða er einfaldara og ódýrara að bæta nýtinguna með því að gefa kúnum
aukaprótein, t.d. með fiskmjöli?
Rýgresið var slegið með sláttuþyrlu. Við sláttinn var tætt úr því (það
knosað) og það látið liggja nokkrar stundir. Fremur hlýtt og þurrt var í veðri og
því þomaði rýgresið nokkuð í múgunum, sbr. eftirfarandi tölur:
1. tafla. Breytingar á þurrkstigi rýgresis frá slætti til bindingar (hirðingar).____
Purrefni, % Kg vatns/kg þe. A kg vaínsÆg/klst
Við slátt, 7. sept. kl. 11 (báðar spildur) 13,9 6,19 -
Við bind., 7. sept. kl. 18 (A-spilda) 18,6 4,38 0,26
Viðbind., 8. sept. kl. 13 (V-spilda) 24,7 3,05 0,10
Heyið var bundið úr múgum með Kione-rúllubindivél (KR 130 S;
lauskjamavél með skurðarbúnaði). Þar sem við átti var hjálparefni úðað í
heyið yfir sópvindu með sérstakri dælu. Baggar voru hjúpaðir sex-földu plasti
(Polybale). Heimreidd uppskera svaraði til 3300 kg þe. af ha.
A
48