Rit Búvísindadeildar - 20.07.1996, Page 14
Ura vaxtardaga og fjölda lifandi plantna gildir það sama og sagt hefur
verið hér á undan um þessi atriði.
í athugunum var hver stofn af káli aðeins ræktaður á einum tilraunareit.
Megin markmiðið með því að gera athugun var að velja úr stofna, sem æskilegt er
að reyna í tilraunum. Mat á uppskeruhæfni var gert þannig, að ár hvert voru
stofnamir flokkaðir í þrjá flokka, I, II og III flokk. í I flokk fóru stofnar, sem gáfu
mesta uppskeru og virtust eiga fullt erindi í vandaða tilraun. í IH flokk fóru þeir
stofnar, sem gáfu litla uppskeru, oftar en ekki vegna þess að þeir voru of
seinvaxnir fyrir þær aðstæður, sem þeim voru búnar á Hvanneyri. Trúlega hefði
ræktun þeirra stofna heppnast betur, ef breiddur hefði verið yfir þá trefjadúkur að
vorinu. Stofnar í II flokki virtust liggja mitt á milli hinna tveggja hvað uppskeru
áhrærir.
Höfuðin af Natalino F1 eru græn að lit og keppa því frekar við spergilkál
en blómkál. Höfuð af Ravela F1 þóttu falleg.
Spergilkál (Brassica oleracea, italica)
Hér verður fjallað um tilraun með stofna af spergilkáli, sem gerð var árið 1990 og
athuganir, sem gerðar voru árin 1991 og 1995. Áður hefur verið fjallað um
athuganir, sem gerðar voru árin 1978-1981 og tilraunir frá 1983-1988 (Magnús
Óskarsson, 1984 og 1989). Þeir Ámi B. Bragason og Magnús Óskarsson skýra
frá tilraunum með uppeldi á spergilkáli árið 1984.
Árin 1990 og 1995 var áburður hvert ár, g/m^: 18 N, 7,8 P, 21,3 K, 11,6 S,
1.8 Mg, 3,9 Ca og 0,08 B. Árið 1991 var borið á sem svarar, g/m^: 15 N, 6,5 P,
17.8 K, 9,6 S 1,5 Mg, 3,3 Ca og 0,06 B. Öll árin var notaður blandaður áburður,
sem nefnist Blákom. Stærð tilraunareita var alltaf 2,7 m^ og vaxtarrými hverrar
plöntu var 0,27 mÁ Plönturnar vom aldar upp í heitu gróðurhúsi og uppeldis-
tíminn var að meðaltali 32 dagar.
Til að verjast kálmaðki var árin 1990 notað Agritox, en Basudin 10 árin
1991 og 1995. Plöntuvamarefnin vom aðeins notuð einu sinni hvert sumar.
8. tafla. Tilraun á stofnum af spergilkáli, 1990.
Table 8. Varieties ofsprouting broccoli, experiment, 1990,
Stofn Variety Uppskera kg/m^ Yield kg/nfi Uppskera af plöntu, g Mean weight of each plant, g Sperglar á plöntu Number of sprouts on a plant Meðalþyngd á spergli, g Mean weight on a sprout, 8 Uppskera eftir 90 daga, % Yield after 90 days, %
Corvet F1 1,32 358 27 13,4 17
Greenia 0,67 181 11 16,3 16
Neptune F1 1,46 393 20 20,3 12
S.G. 1, F1 1,21 326 24 11,9 14
Laser F1 0,75 202 12 16,8 5
8