Rit Búvísindadeildar - 20.07.1996, Qupperneq 25
Hnúðkál (Brassica oleracea, gongylodes)
Hnúðkál hefur ekki verið ræktað mikið á íslandi, en er auðvelt í ræktun. í Mið-
Evrópu hefur það verið notað síðan á 15. öld á rnjög svipaðan hátt og gulrófur eru
notaðar hér á landi (Weisæth, G. 1972).
Hnúðkál var fyrst í athugun á Hvanneyri árið 1976. Áður hefur verið skýrt
frá fyrri athugunum (Magnús Óskarsson, 1984 og 1989).
19. tafla. Stofnar af hnúðkáli 1989-1992 og 1995.
Table 19. Varieties ofkohlrabi, 1989-1992 and 1995.
Stofn Varieties Ár í tilraunum og athugunum Years in experiments and observations. Uppskera kg/m2 Mean yield kg/m2 Hlutfalis- tala Proportion ofyield % Þungi á hnúð, g Mean weight ofeach knob,g Vaxtardagar Growing period, days.
í plastgróðurhúsi. Uppskorið eftir mismunandi fiölda vaxtardaga:
(In plastic greenhouse. Harvest after variable growing period):
Blaro 1989 1,69 100 185 61
Blaro 1989 2,16 128 238 70
Blaro 1989 1,95 115 215 77
Á bersvæði (Growine in garden):
Blaro 1990 og 1991 2,65 115 398 59
Kolpak 1990-1992 og 1995 1,44 79 236 62
Korist 1990-1992 og 1995 1,85 100 293 60
Trero 1990-1992 2,30 110 352 64
White Vienne 1992 0,50 50 92 64
Undir trefjadúk (Under polvpropvlenh
Blaro 1990 og 1991 2,05 95 300 51
Kolpak 1990-1992 og 1995 1,68 93 264 51
Korist 1990-1992 og 1995 1,81 100 283 48
Trero 1990-1992 1,90 94 296 53
White Vienne 1992 1,10 79 202 62
Árið 1989 var hnúðkáli af stofninum Blaro sáð í plastgróðurhús þann 8.
júní. Skorið var upp á þremur tímum og var uppskeran sem hér segir:
Skorið upp eftir 61 dag. Uppskera 1,69 kg/m2 og þungi á hnúð 185 g.
Skorið upp eftir 70 daga. Uppskera 2,16 kg/m2 og þungi á hnúð 238 g.
Skorið upp eftir 77 daga. Uppskera 1,95 kg/m2 og þungi á hnúð 215 g.
Þessi athugun sýnir að unnt er að rækta hnúðkál í óupphiíuðu plastgróður-
húsi með því að sá kálinu beint út í húsið.
Árin 1990-1992 voru gerðar tilraunir með tveimur samreitum. Árin 1989,
1994 og 1995 voru gerðar athuganir með einum reit fyrir hveija meðhöndlun.
Athugunin 1989 var gerð inni í plastgróðurhúsi, en hin árin var hnúðkálið ræktað
út í garði og þá voru reitimir 2,7 m2 að stærð. Vaxtarrými fyrir hveija plöntu
1990 var 0,27 m2 en hin árin 0,18 m2. Áburður árin 1991 og 1992 var g/m2: 12
N, 5,2 P, 14,2 K, 7,7 S, 1,2 Mg, 2,6 Ca og 0,05 B g/m2. Árið 1990 var borið á 14
g/m2 N og 1995, 10 g/m2 N og samsvarandi magn af öðrum næringarefnum
19