Fréttablaðið - 27.11.2020, Blaðsíða 14
Um áramótin verður innleidd 36 klukku-stunda vinnuvika dagvinnufólks hjá f é l a g s m ö n n u m Sameykis og fjölda
annarra stéttarfélag opinberra
starfsmanna. Sama gildir síðan um
vaktavinnufólk frá 1. maí næsta vor.
Árni Stefán Jónsson, formaður
Sameykis, segir vinnuna við að
búa þessari vinnutímastyttingu
umgjörð á hverjum vinnustað fyrir
sig ekki komna jafn langt á veg og
ákjósanlegt hefði verið.
„Það verður nú að segjast eins og
er að það er ekki búið að skila inn
mörgum vinnustaðasamningum
sem þarf að gera á hverjum stað
fyrir sig. Svo maður er kannski
aðeins farinn að verða órólegur; að
þetta sé kannski ekki á þeim hraða
sem við hefðum kosið okkur. Auð-
vitað kemur kóvidið inn í þetta og
við vitum að á þessum stóru stofn-
unum eins og Landspítalanum þá
hefur það verulega tafið,“ segir Árni.
Að sögn Árna skiptist umræðan
um styttingu vinnuvikunnar í
tvennt; annars vegar um dagvinnu-
fólk og hins vegar vaktavinnufólk.
„Hvað varðar dagvinnufólkið þá
er verið að vinna að þeirri stytt-
ingu úti á vinnustöðum okkar og á
því að vera lokið í síðasta lagi fyrir
1. janúar 2021. Hvað varðar vakta-
vinnufólkið þá hafa menn frest til
1. maí 2021 vegna þess að það er
miklu flóknara verkefni og þarf að
breyta forritum og ýmsu. Svo að það
er lengra í það en það er svolítið að
skríða af stað líka,“ segir hann.
Mikilvæg barátta um neysluhlé
Árni útskýrir að í raun sé í gangi
ákveðið lýðræðislegt ferli við að
skipuleggja styttinguna. „Þetta er
vinnustaðalýðræði sem menn eru
svona í leiðinni að prufa sig áfram
með. Á hverjum vinnustað á að
skipa vinnustaðanefnd sem í er
fulltrúi frá hverjum heildarsam-
tökum starfsmanna og svo einn frá
stjórnanda viðkomandi stofnunar.
Þessi nefnd á að funda með starfs-
mönnum og fá fram þær hugmyndir
sem menn hafa um þessa styttingu,“
segir hann.
Ferlið snýst ekki aðeins um stytt-
ingu vinnuvikunnar. „Í leiðinni er
verið að fara yfir hvernig menn hafa
starfað á viðkomandi stofnun og
hver vinnustaðamenningin er. Þarf
að breyta henni eitthvað til þess að
ná vel þessari styttingu?“ nefnir
Árni sem dæmi um spurningar sem
menn standi frammi fyrir. Leysa
þurfi hvernig styttingin næst án
þess að þjónusta skerðist eða laun
lækki.
„Þessar vinnustaðanefndir hafa
kannski komist of seint af stað og
svo hefur kannski borið á einu, sem
er að mínu mati kannski stærsta
ágreiningsefnið,“ segir Árni og
rekur að samið hafi verið um það í
fylgiskjali með síðustu kjarasamn-
ingum hvernig standa eigi að vinnu-
vikustyttingu dagvinnufólks. Hægt
sé að stytta á mismunandi hátt en
markmiðið sé að stytta vinnuvik-
una í 36 tíma.
„Til þess að ná þeirri styttingu
er samkomulag um það að þá færir
maður neysluhléið inn í vinnu-
tímana. Áður stóð matartíminn
fyrir utan vinnutímann og þá átti
starfsmaðurinn þennan matar-
tíma og gat svo sem gert hvað sem
var við þann matartíma; mátti fara
út af vinnustöðinni eða hvað sem
honum sýndist. Breytingin var hins
vegar þessi að þú styttir um fjóra
tíma ofan í 36 tíma. Svo er sagt með
hefðbundnum neysluhléum,“ segir
Árni sem kveður menn dálítið vera
að toga og teygja orðalagið „hefð-
bundinn“ og hvað það merki.
„Við sem sömdum um þetta héld-
um að það væri nokkuð á ljósu að
við vorum bara hreinlega að vitna
í það að á hverjum vinnustað þar
sem menn hefðu komist upp á eitt-
hvert svona lag á hvernig þeir tóku
neysluhléin, að menn myndu bara
halda því áfram. Það er hefðbundið
neysluhlé,“ segir Árni. Neysluhlé
hafi verið mismunandi útfærð á
mismunandi vinnustöðum og að
það sé í það sem er vitnað.
Síðra kerfi ýtt að starfsfólki
Nánar útskýrir Árni að með stytt-
ingu dagvinnuvikunnar í 36 tíma
með færslu neysluhléa inn í vinnu-
tímann sé matartíminn ekki lengur
á forræði starfsmannsins.
„Þú átt þá ekki þennan hálftíma
á þínu forræði, starfsmaðurinn, og
getur farið út og suður. Þú bara ferð í
mat og en getur ekki sagt að nú ætla
ég að fara að skreppa út, þú þarft þá
að fá extra leyfi frá stjórnendum til
þess. Áður þurftir þú þess ekki af
því að þú áttir þennan hálftíma,“
segir Árni. Þetta hafi leitt menn inn
á óheppilega braut.
„Hinn möguleikinn er að segja;
nei, ég vil halda áfram forræðinu
yfir hálftímanum. Þá verður þetta
nefnilega þannig – og það er dálítið
mikilvægt og ég held að menn geri
sér ekki alveg grein fyrir stórleik-
anum í þessu – að í staðinn fyrir að
stytta viðveruna á vinnustaðnum í
36 tíma þá verður þú í staðinn með,
ef þú ert með forræði yfir matar-
tímanum, næstum 39 tíma við-
veru. Styttingin er þá ekki nema 65
mínútur á viku í staðinn fyrir fjórir
tímar,“ leggur Árni áherslu á.
Þetta hafi valdið ruglingi og mis-
skilningi. „Okkur finnst stjórn-
endur vera svolítið að ýta þessu
fyrirkomulagi að starfsmönnum.
Og telja því þá allt til foráttu að
menn eigi ekki forræði á matar-
tímanum og þá að matartímar og
neysluhlé verði allt öðru vísi, sem er
bara alls ekki rétt – þau verða bara
hefðbundin,“ heldur formaðurinn
áfram og tekur dæmi.
„Ef starfsmaður sem hefur stytt
ofan í 36 tíma byrjar klukkan átta
á morgnana þá er hann búinn tólf
mínútur yfir þrjú. Hann fær tvo
kaffitíma og hádegishlé eins og
hann hefur gert áður. Ef hann fer
í hitt fyrirkomulagið og byrjar
klukkan átta þá er hann ekki búinn
fyrr en 15.45. Þá lengist dagurinn.
Þetta hefur valdið smá misskiln-
ingi og við höfum þurft að reyna að
leiðrétta þennan misskilning sem
virðist vera úti á vinnustöðum,“
segir Árni.
Stór áfangi fyrir vaktavinnufólk
Aðrar leikreglur gilda um vakta-
vinnufólk og þær breytingar eiga
heldur ekki að taka gildi fyrr en 1.
maí næstkomandi enda ferlið þar
talsvert f lóknara að sögn Árna. Þar
verða ekki vinnustaðanefndir sem
ákveða fyrirkomulagið heldur verð-
ur tekin miðlæg ákvörðun. Vakta-
vinnufólk innan Sameykis eru til
dæmis fangaverðir og starfsfólk hjá
Reykjavíkurborg.
„Varðandi vaktavinnufólkið þá
er það ákveðið að menn stytta allir
ofan í 36 tíma á viku, það er að segja
156 tíma á mánuði, en þeir sem eru á
erfiðustu vöktunum geta stytt vinn-
vikuna sína ofan í 32 tíma, sem er
náttúrlega alveg glæsilegt. Þannig
að þarna hefur náðst alveg gífur-
legur áfangi og ofboðsleg kjarabót,“
ítrekar Árni.
Breytingarnar fyrir vaktavinnu-
fólk eru að sögn Árna í mótun.
„Dæmi er um ýmsar stéttir sem
hafa verið með tólf tíma vaktir. Í
þessari umræðu og ferli öllu saman
eru menn að draga það líka upp að
tólf tíma vaktir eru mjög vafasamar.
Samkvæmt nýjustu rannsóknum
varðar þetta bæði öryggi starfs-
manna og það sem þeir eru að gera.
Svo er álagið bara líka alltof mikið
á tólf tíma vöktum. Samtímis eru
byggðir inn í kerfið hvatar til að fara
úr slíku kerfi yfir í styttra kerfi og fá
þá meira út úr kerfinu,“ segir hann.
Spurður um aðdraganda þessara
breytinga segir Árni umræðuna um
styttingu vinnuvikunnar oft hafa
komið upp. Til dæmis hafa SFR, sem
nú er hluti af Sameyki, tvisvar sett
fram slíka kröfu gagnvart ríkinu.
„Menn voru svona að álykta um
þetta. Almenni vinnumarkaðurinn
sýndi þessu ekki mikinn áhuga,
opinber i markaður inn sý ndi
þessu miklu meiri áhuga. Fyrir um
þremur árum byrjar þetta með því
að Reykjavíkurborg ákveður að
búa til tilraunaverkefni. Stofnanir
borgarinnar gátu sótt um að gera til-
raun með styttingu vinnuvikunnar.
Með það gátum við pressað á ríkið
og ríkið samþykkti líka að fara í
svona tilraunaverkefni,“ segir Árni.
Þegar komið var að gerð síðustu
kjarasamninga voru áðurnefnd
tilraunaverkefni yfirstaðin. Niður-
stöður höfðu verið dregnar og
skýrslur skrifaðar. „Það var allt í
þessu jákvætt. Það voru færri veik-
indadagar, fólk taldi að fjölskyldu-
lífið hefði batnað. Í staðinn fyrir að
koma heim hálf fimm var fólk að
koma heim tólf mínútur yfir þrjú,
það munar rosalega miklu. Það sem
var mikilvægt er að það voru bæði
starfsmenn og stjórnendur sem
töldu tilraunina hafa skilað því að
þetta væri mjög jákvætt skref,“ segir
formaðurinn.
Þjóðhagslega hagkvæmt
Þannig segir Árni að í þessum til-
raunaverkefnum hafi verið mikil
ánægja og þegar komið hafi að
kjarasamningsgerðinni hafi verið
nokkuð gefið að reynt yrði að ganga
frá vinnutímastyttingu. „Þetta er
mjög flott og stórt skref sem hefur
verið stigið í þessum kjarasamn-
ingum,“ segir hann.
Árni segir ávinninginn af styttri
vöktum vera að renna betur upp
fyrir fólki. „Menn voru sniðugir í
þessum samningum að búa líka til
hvata til að fara úr tólf tíma vöktum
– hjá okkur opinberum starfsmönn-
um. Fyrir vinnustaði hjá ríki og borg
þá er þetta ekki bara spurningin
um styttingu vinnuvikunnar, sem
er náttúrlega mjög stórt mál, heldur
líka tækifæri til þess að skoða aðeins
vinnumenninguna og ferlið og það
allt innan vinnustaðarins. Það þarf
að búa til alveg nýtt fyrirkomulag
með því að taka svona stórt stökk
frá 40 tímum ofan í 36.“
Ýmsar útfærslur koma til greina
fyrir dagvinnufólk. „Ef þú byrjar
klukkan 8.00 getur þú hætt 15.12
eða byrjað klukkan 8.00 og hætt
klukkan 16.00 fjóra daga vikunnar
en um hádegi einn daginn. Líka er
möguleiki að fá heilan dag hálfs-
mánaðarlega. En þetta þarf að passa
inn í skipulag vinnustaðarins og það
er það sem fólk skipuleggur sam-
eiginlega,“ segir Árni.
Þrátt fyrir að skipulagning á stytt-
ingu vinnuvikunnar hafi farið hægt
af stað kveðst Árni vera mjög bjart-
sýnn. „Þó að það séu kannski ekki
nema um tuttugu sem eru búnir að
skila inn hjá okkur eru um 80 pró-
sent að fara þessa leið sem við viljum
að sé farin; menn eru að stytta ofan í
36 tíma og að hefðbundin neysluhlé
eru innan vinnutímans,“ segir hann.
Til lengri tíma litið segir Árni
algerlega öruggt að stytting vinnu-
vikunnar sé þjóðhagslega hagkvæm.
„Í reynd er líka verið að taka á þess-
ari óhóflegu yfirvinnu sem hefur
viðgengist á Íslandi. Til hvers er verið
að stytta vinnuvikuna nema það sé
líka tekið einhvern veginn á því? Það
að stytta vinnuvikuna þýðir ekki að
menn ætli þá bara að auka við sig
yfirvinnu. Þá er ekkert áunnið neitt
með því,“ undirstrikar Árni.
Formaður Sameykis tekur undir
að Íslendingar séu gjarnir á að leggja
á sig mikla yfirvinnu samanborið
við það sem gerist hjá nágrannaþjóð-
unum. „Menn sjá það sem launaupp-
bót, kannski vegna lágra launa. Við
erum að fara inn á miklu heilbrigð-
ari brautir hvað varðar vinnutíma
heldur en áður, það er nokkuð ljóst.“
Styttri vinnuvika er glæsileg kjarabót
Árni Stefán Jónsson, formaður Sameykis, segir nokkuð marga vinnustaði ekki tilbúna fyrir styttingu vinnuviku hjá dagvinnufólki.
Leiðrétta þurfi misskilning um útfærslu neysluhléa. Breytingin sé mikið framfaraskref enda taki hún líka á óhóflegri yfirvinnu.
Árni Stefán Jónsson, formaður Sameykis, er bjartsýnn á að stytting vinnuvikunnar skili árangri. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Sameyki
Sameyki stéttarfélag í al-
mannaþjónustu varð til við
sameiningu Starfsmannafélags
Reykjavíkurborgar og SFR
stéttarfélags í almannaþjón-
ustu 26. janúar 2019. Félagið
þjónar rúmlega tólf þúsund
félagsmönnum um land allt.
Auðvitað kemur
kóvidið inn í þetta
og við vitum að á þessum
stóru stofnunum eins og
Landspítalanum þá hefur
það verulega tafið.
Garðar Örn
Úlfarsson
gar@frettabladid.is
20%
AFSLÁTTUR AF ÖLLUM
VÖRUM Í VEFVERSLUN
Á SVÖRTUM FÖSTUDEGI
2 7 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð