Fréttablaðið - 27.11.2020, Blaðsíða 74

Fréttablaðið - 27.11.2020, Blaðsíða 74
ÉG HEF SÍÐAR EINNIG ORÐIÐ FYRIR ÁHRIFUM FRÁ HENNI, EINLÆGNI HENNAR, KÆRLEIKA OG LÍKA HVERSU KLÁR OG FLOTT HÚN ER Í STÖRFUM SÍNUM. Hugmyndin um að skrifa óperu um þessa merkilegu konu og segja sögu hennar með þeim hæt t i k v i k naði fyrir fjórum árum þegar ég hafði nýlokið við mína aðra óperu, Ævintýrið um norðurljósin,“ segir sópransöngkonan, tónskáldið og kennarinn Alexandra Chernysh­ ova um sína þriðju óperu, Góðan daginn, frú forseti. Óperan fjallar, eins og titillinn ber með sér, um ævi og störf Vig­ dísar Finnbogadóttur. „Óperan er í þremur þáttum, eitthvað í kringum tvær klukkustundir, sem er kannski ekki alveg nóg til þess að koma öllu sem mig langaði til skila,“ segir Alexandra sem hlaut nýlega Súluna, menningarverðlaun Reykjanes­ bæjar, fyrir framlag sitt til eflingar tónlistarlífs í Reykjanesbæ. „Eitt er víst að frú Vigdís er okkur öllum kær og hennar saga þarf að heyrast sem víðast og verða öllum og þá sérstaklega konum hvatning til að trúa á sjálfa sig og rækta kær­ leikann, ástríðu og þor.“ Vigdís og La Traviata Alexandra hverfur allnokkur ár aftur í tímann þegar hún er spurð hvað kveikti hjá henni hugmynd að óperu um fyrstu konuna sem var þjóðkjörin forseti. „Árið 2007 í Sæluviku Skagfirðinga frumsýndi Ópera Skagafjarðar La Traviata, með ógleymanlegum hætti íþrótta­ húsinu í Varmahlíð. Þetta var fyrir fullu húsi gesta, hátt í 700 manns og ég heyrði frá tengdaföður mínum heitnum, Hilmari Jónssyni, að í salnum hefði verið frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrsti kvenforseti Íslands og í heim­ inum,“ segir Alexandra. „Ég var orðlaus í fyrstu og vissi þá ekki, 27 ára að aldri, að hún hefði verið fyrsti kvenforseti í heiminum, íslensk kona. Þannig byrjaði þetta og kveikti áhuga minn á henni. Ég hef síðar einnig orðið fyrir áhrifum frá henni, einlægni hennar, kær­ leika og líka hversu klár og flott hún er í störfum sínum.“ Hefurðu verið í sambandi eða hitt Vigdísi? „Já, við töluðum saman og höfum einnig skipst á tölvupóstum. Ég spurði hana formlega um leyfi til að skrifa óperuna sem hún gaf mér fúslega.“ Vonin sem varð að veruleika Óperan um Vigdísi er sú þriðja sem Alexandra semur og hún gaf sér góðan tíma til verksins og leitaði víða fanga og nefnir sérstaklega bókina Kona verður forseti, eftir Pál Valsson, auk fjölda greina og annars efnis um Vigdísi. „Þetta er stórt efni og mig langaði að segja sögu Vigdísar eins og hún er og ekki skálda neitt. Mig langar að segja eins og þetta var,“ segir Alexandra. „Óperan er um hennar líf og störf og byggir á sjálfsævi­ sögu hennar. Í óperunni koma fyrir atburðir sem mörkuðu líf hennar og höfðu áhrif á hana. Eins og að ætt­ leiða barn fyrst einstæðra mæðra á Íslandi, að vera hvött til að bjóða sig fram til embættis forseta og auð­ vitað kvenréttindabaráttuna og jafnrétti kynjanna.“ Alexandra segist í fyrstu hafa verið ákveðin í að semja óperuna á ensku og jafnvel frönsku þar sem hún vilji segja sem flestum konum um víða veröld sögu Vigdísar. „Svo fór ég bara að hugsa og spjalla við konur og þá sá ég hvað saga hennar Vigdísar Finnbogadóttur er stór hluti í lífi Íslendinga og bara kven­ réttindasögunni. Þetta er vonin sem varð að veruleika og þá ákvað ég bara að skrifa óperuna á íslensku.“ Kraftur fjölbreytileikans Alexandra er íslenskur ríkisborgari, fædd 1979 og ólst upp í Úkraínu og Rússlandi en flutti til Íslands árið 2003. Hún hefur tekið virkan þátt í íslensku tónlistarlífi og hefur rekið menningar­ og fræðslufyrirtækið DreamVoices, ásamt eiginmanni sínum, Jóni R. Hilmarssyni, frá 2006. Hjónin settust að í Reykjanesbæ 2016 og fyrr í þessum mánuði hlaut hún Súluna, menningarverðlaun Reykjanesbæjar 2020, fyrir framlag sitt til eflingar tónlistarlífs í Reykja­ nesbæ. „Það er mér mikill heiður að fá þessa viðurkenningu,“ segir Alex­ Saga Vigdísar ómar í þriggja þátta óperu Sópransöngkonan Alexandra Chernyshova æfir nú óperu sína Góðan daginn, frú forseti sem hún byggir á ævi og störfum Vigdísar Finnbogadóttur. Hún segir sögu Vigdísar þurfa að heyrast sem víðast og ætlar að sjálfsögðu að syngja aðalhlutverkið sjálf. Alexandra hlaut Súluna fyrir framlag sitt til eflingar tónlistarlífs í Reykjanesbæ. Hér er hún með verðlaunagrip- inn, silfursúlu eftir listakon- una Elísabetu Ásberg. MYND/ JÓN HILMARSSON Alexandra heillaðist svo af Vigdísi Finnbogadóttur og sögu hennar að úr varð heil ópera með blessun forsetans fyrrverandi. Alexandra ætlar sjálf að syngja hlutverk Vigdísar og njóta þess. MYND/JÓN HILMARSSON FARSÆLL FERILL Alexandra hóf feril sinn á sviði sem einsöngvari hjá Kiev Aca- demical Musical Theater of Opera and Ballet. Alexandra söng með Kiev National Radio Orquestra, New York Contem- porary Opera, auk þess sem hún hefur sungið sem ein- söngvari með Óperu Skaga- fjarðar og fleirum. Alexandra hefur sungið víða um Ísland, Evrópu, New York og einnig í Kína og Japan. Alexandra hefur gefið út þrjá einsöngsdiska „Alexandra soprano“ (2006), „Draumur“ með rómantískum lögum eftir Sergei Rachmaninov (2008) og „You and only you“ (2011). Árið 2014 var Alexandra valin í hóp tíu framúrskarandi ungra Íslendinga fyrir framlag sitt til menningar á Íslandi. Þá komst hún í sumar á topp tíu listann í World Folk Vision, alþjóðlegri tónlistarkeppni, með laginu Ave María úr frumsömdu óper- unni Skáldið og biskupsdótt- irin. Í haust sigraði hún síðan í alþjóðlegri tónskáldakeppni í Moskvu fyrir tónsmíð úr sömu óperu sem samin er við handrit Guðrúnar Ásmundsdóttur. andra en verðlaunin eru veitt þeim sem stutt hafa vel við menningarlíf sveitarfélagsins og þegar Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, afhenti Alexöndru verðlaunin og sagði hann meðal annars: „Slagorð Reykjanesbæjar, í krafti fjölbreytileikans, á einstaklega vel við í tilfelli Alexöndru. Hún er frá­ bært dæmi um það hversu mikið það auðgar samfélag okkar að hér búi fólk af ólíkum uppruna með fjölbreytta menningu í farteskinu sem við öll njótum góðs af.“ Syngur Vigdísi sjálf Óperan Góðan daginn, frú for­ seti verður sem fyrr segir í þremur þáttum og er samin fyrir tólf ein­ söngvara, kóra og hljómsveit. Þótt Alexandra hafi ákveðið að semja óperuna á íslensku þá er hluti text­ ans einnig á frönsku og ensku. Auk þess sem ljóð eftir Sigurð Ingólfs­ son, Hannes Hafstein, Ástu Björgu Sveinbjörnsdóttur, Elísabetu Þor­ geirsdóttur og fleiri f léttast saman við texta Alexöndru. „Ég ætla að syngja aðalhlutverkið að sjálfsögðu og bara hafa gaman af því,“ segir Alexandra og bætir við að gangi allt upp stefni hún á að sýna konsertuppfærslu af óperunni í Veröld – Húsi Vigdísar á kvennrétt­ indadaginn 8. mars á næsta ári með fulltingi tónlistarfólks hvaðanæva af landinu, meðal annars kórum og söngvurum úr Reykjanesbæ. Draumurinn er síðan vitaskuld að stóru leikhúsin eða Íslenska óperan setji verkið á svið. „Ég vona að Þjóðleikhúsið eða Íslenska óperan taki óperuna til sýninga. Kannski á Listahátíð. Ég held líka að það gæti verið svolítið gott fyrir menninguna á Íslandi að þessi ópera yrði sett upp í leikhúsi. Þetta er góð tónlist og sagan er um þessa merkilegu konu og það væri gaman ef hún gæti séð þetta á sviði.“ toti@frettabladid.is 2 7 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R56 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.