Fréttablaðið - 27.11.2020, Blaðsíða 3
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —2 5 2 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R F Ö S T U D A G U R 2 7 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0
HEKLA · Laugavegur 170 · Sími 590 5000 · www.hekla.is/vefverslun
SÉRVALDIR NÝIR BÍLAR
Á EINSTÖKU SÓLARHRINGSTILBOÐI AF AUKAHLUTUM Í VEFVERSLUN
*Gildir ekki af reiðhjólum
né með öðrum tilboðum
STJÓRNMÁL Töluverðrar taugaveikl-
unar gætir nú í þinginu og spennu-
stigið milli stjórnarf lokkanna er
mjög hátt. Þetta herma heimildir
Fréttablaðsins.
Spennan er annars vegar tilkom-
in vegna jólastress í þinginu og hins
vegar mikillar þreytu sem komin
er í samstarfið, þótt hennar gæti í
meiri mæli í þingliðinu en meðal
ráðherra í ríkisstjórn. Efast nú fleiri
um að framhald verði á samstarfi
f lokkanna þriggja eftir kosningar
og er þeirri skoðun jafnvel hreyft
að slíta eigi samstarfinu fyrr.
Eins og ávallt eru síðustu vikur
fyrir jól álagstími í þinginu vegna
fjárlagavinnunnar. Mikil togstreita
er sögð vera milli ráðuneyta, eink-
um milli heilbrigðisráðherra sem
vill fá tugi milljarða til viðbótar í
heilbrigðismálin og fjármálaráð-
herra sem tekur það ekki í mál.
Auk togstreitu um síðustu fjár-
lög kjörtímabilsins hafa ráðherrar
orðið áhyggjur af málastöðunni og
óttast að ná ekki forgangsmálum
sínum gegnum ríkisstjórn og þing-
flokka á þessum síðasta þingvetri.
Veldur þetta spennu milli ráðherra
og þingliðs stjórnarmeirihlutans.
Meðal þeirra mála sem ætla má að
ágreiningur sé um eru fjölmiðla-
frumvarp menntamálaráðherra,
áfengisfrumvarp dómsmálaráð-
herra og frumvörp umhverfisráð-
herra um miðhálendisþjóðgarð og
þjóðgarðsstofnun.
Þá eru þingmenn byrjaðir að
skoða stöðu sína fyrir næstu
kosningar, enda f lokkarnir farnir
að huga að uppröðun á framboðs-
lista. Þeir sem þurfa að fara gegnum
prófkjör velta því óneitanlega fyrir
sér hver sölupunkturinn inn í bak-
landið eigi að vera.
„Þá þykir mörgum hagfelldara að
sýna sérstöðu sína fremur en sam-
stöðu,“ eins og einn stjórnarþing-
maðurinn komst að orði.
– aá / sjá síðu 8
Spennustigið er hátt í þinginu
Mikil þreyta er komin í stjórnarsamstarfið og spennustigið milli stjórnarflokkanna er hátt, bæði vegna
fjárlagavinnu og komandi prófkjöra og kosninga. Togstreita er milli ráðherra vegna fjárlaga næsta árs.
Stress og taugaveiklun
einkennir stjórnarsam-
starfið vegna fjárlaga og
þess hve skammt er eftir
af kjörtímabilinu.
Aftakaveður var víða um land í gærkvöldi. Hviður fóru upp í 40 metra á sekúndu og var skyggni víða slæmt. Hálka og stórhríð var á Hellisheiði. Varð það til þess að strætisvagn á leið til
Reykjavíkur fór út af veginum og festist ofan við Skíðaskálann í Hveradölum. Sem betur fer urðu engar skemmdir og gat bílstjórinn losað bílinn og komist í bæinn. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
FÓTBO LTI Stelpurnar ok kar í
kvennalandsliðinu í knattspyrnu
eru öruggar í umspilið fyrir Evrópu-
mótið í knattspyrnu hið minnsta
eftir 3-1 sigur á Slóvakíu í gær.
Íslenska liðið lenti undir en sneri
leiknum sér í hag í seinni hálfleik.
Lokaleikur Íslands í undan-
keppninni er á þriðjudag og kemur
þá í ljós hvort stelpurnar komist
beint inn á EM eða þurfi að fara í
umspil. – hó / sjá síðu 30
Sara Björk skaut
Íslandi í umspil
Sara skoraði tvisvar af vítapunkt-
inum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI